Dagur - 26.05.1981, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
mammmmmmmmm■
64. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 26. maí 1981
41. tölublað
HIHU—1———■
mmmmm
jHHTIHfft
Jón Gauti
ráðinn
Jón Gauti Jónsson, kennari
við Gierárskóla á Akureyri
hefur nýlega verið ráðinn
framkvæmdastjóri Náttúru-
verndarráðs, en 19 manns
sóttu um það starf þegar það
var auglýst laust til umsókn-
ar. JónGauti hefur störf 1.
júlí n.k.
Jón Gauti er fæddur á Akur-
eyri 1952, sonur hjónanna Jóns
Sigurgeirssonar, fyrrum ráðs-
manns á sjúkrahúsinu, og
Ragnhildar Jónsdóttur, starfs-
manns á Skattstofunni á Akur-
eyri. Hann lauk stúdentsprófi
frá M.A. 1972, búfræðiprófi frá
Hvanneyri 1974 og B.S.-prófi í
landafræði frá H.í. í febrúar
1978.
Jón Gauti er ekki ókunnugur
starfsemi Náttúruverndarráðs,
því frá 1976 hefur hann unnið
þar að ýmsum verkefnum, fyrst
sem landvörður í Herðubreið-
arlindum, síðan þrjú ár á skrif-
stofu ráðsins og nú síðasta ár
hefur hann m.a. verið eftirlits-
maður Náttúruverndarráðs
með framkvæmdum við Kröflu.
Svo sem kunnugt er hefur Jón
Gauti skrifað greinaflokka fyrir
Helgar-Dag og frá áramótum
verið umsjónarmaður blaðsins.
Aðal-
fundur
KEA
Aðalfundur Kaupfélags
Eyfirðinga verður haldinn í
Samkomuhúsinu á Akureyri
föstudaginn 29. og laugar-
daginn 30. maí. Fundurinn
hefst kl. 10 á föstudags-
morgun.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa mun Eysteinn Jónsson,
fyrrverandi formaður stjórnar
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga, flytja ávarp. Sérmál að-
alfundarins verður „Stefnuskrá
samvinnuhreyfingarinnar" og
verður Hjörtur E. Þórarinsson,
formaður stjórnar KEA frum-
mælandi.
HEITA V ATNSLEIÐSLUR
UM FJÖLL OG FIRNINDI
— til að réttlæta Fljótsdalsvirkjun og þar með Kísilmálmverksmiðju
og eldsneytisverksmiðju á Reyðarfirði
Þrátt fyrir það, að margt mæli
gegn því að kísilmálmverk-
smiðju verði valinn staður á
Reyðarfirði, hefur staðarvals-
nefnd um iðnrekstur komist að
þeirri bráðabirgðaniðurstöðu,
að æskilegt væri að velja fyrir-
hugaðri kísilmálmverksmiðju
þar stað. Þó kemur það fram í
álitinu, að sérstakan fyrirvara
verði að gera þar sem fyrsta áf-
anga í heildarúttekt á staðarvali
fyrir iðnrekstur, svokölluðu for-
vali, sé ekki lokið.
„Það liggur ekki enn alveg Ijóst
fyrir hversu tjónið í brunanum
varð mikið, en það skiptir ein-
hverjum tugum milljóna gam-
alla króna. Það stefnir allt í það
að húsið verði rifið og raunar öll
þessi gamla húsasamstæða,
enda eiga þau ekki að standa
samkvæmt nýju skipulagi,“
Þetta mál tengist Fljótsdals-
virkjunarmálinu, því virkja þarf
stórt á Fljótsdal svo virkjunin verði
hagkvæm, eða 150 MW virkjun.
Kísilmálmverksmiðja nægir ekki til
að réttlæta svo stóra verksmiðju.
Því er nauðsynlegt að koma upp
annarri verksmiðju, eldsneytis-
verksmiðju, sem nýti kolsýring frá
kísilmálmverksmiðjunni og fram-
leiði vetni með rafgreiningu á
vatni. Þar til eldsneytisverksmiðja
kemur til sögunnar telur nefndin að
afgangsvarmi frá kísilmálm-
verksmiðju verði að nýtast til hús-
hitunar í nágrenni verksmiðjunnar.
sagði Valur Arnþórsson, kaup-
félagsstjóri KEA, þegar hann
var inntur eftir framtíðaráform-
um í kjölfar brunans á gömlu
kornvörugeymslunni.
Elds varð vart í húsinu laust fyrir
klukkan hálf ellefu á fimmtudags-
kvöld og var búið að ráða niður-
lögum hans um klukkan tvö um
Mergurinn málsins er sá, að á
Reyðarfirði er ekki sá fólksfjöldi til
staðar, né í næstu byggðarlögum, að
heppilegt sé að setja þar á fót kísil-
málmverksmiðju, sem er talin
þurfa 2 þúsund manns innan 15 km
frá verksmiðjunni, svo byggða-
röskun verði ekki óhófleg né óþörf.
Dæmið hlýtur að sjálfsögðu að vera
enn vafasamara, ef önnur verk-
smiðja kemur, en þess er ekki getið
í áliti staðarvalsnefndar. Þar til
eldsneytisverksmiðja kemur þyrfti
að nota kolsýringinn til að fram-
leiða varmaorku sem gæti nægt til
að hita upp 5-10 þúsund manna
nóttina. Nokkrum erfiðleikum var
bundið að ráða niðurlögum eldsins
vegna geysimikils hita, auk þess
sem nokkurn tíma tók að tengja
slöngur og dælur svo hægt væri að
dæla sjó, en vatn dugði ekki til
slökkvistarfa.
I húsinu voru m.a. áhöld og efni
til útstillinga og viðhaldsdeild með
trésmíðavélum og efni.
byggð með tilheyrandi atvinnu- og
þjónustuhúsnæði. Mikið vantar á
að slíkur fjöldi fólks sé í nágrenni
Reyðarfjarðar, en til að nálgast þá
tölu segir í nefndarálitinu, að „auk
þess gæti orðið hagkvæmt að leggja
heitavatnsleiðslu frá verksmiðjunni
til Neskaupstaðar."
Þrjú atriði skipta sköpum varð-
andi staðarval, þ.e. fólksfjöldi,
hafnarskilyrði og raforka. Fyrsta
grundvallaratriðið er ekki fyrir
hendi á Reyðarfirði og langt því
frá, ef tekið er mið af því að nauð-
synlegt verður að reisa aðra verk-
smiðju eða hita upp hús mjög stórr-
ar byggðar. Auk Reyðarfjarðar,
telur staðarvalsnefnd, að Reykja-
víkursvæðið og Eyjafjörður komi
vel til álita. Veigamesta atriðið sem
skilur Reyðarfjörð frá Eyjafirði og
Reykjavík er nýting afgangsvarm-
ans, segir í álitinu. Ljóst virðist að
fjölmennar byggðir við Eyjafjörð
gætu t.d. nýtt aukna orku, án þess
að nauðsynlegt væri að leggja
leiðslur yfir fjöll og firnindi.
Athyglisvert er, að staðarvals-
nefndin tekur einn stað fram yfir
aðra, án þess að grundvallarupp-
lýsingar um staðarval, svokallað
forval, liggi fyrir.
Ekiðá
stúlku
Um hádegisbil s.l. föstudag
varð umferðarslys á Glerár-
götu. Ekið var á 10 ára stúlku
sunnan við gatnamót Glerár-
götu og Þórunnarstrætis. Að
sögn lögreglu var stúikan að
hlaupa yfir götuna, sunnan
við gangbrautina. Stúlkan
hlaut opið fótbrot, en mun nú
vera á batavegi.
Um helgina fór bifreið út af
veginum við Staðarbakka í
Hörgárdal. Bifreiðin valt og
skemmdist mikið. Engin slys
urðu á fólki. Einnig ók bifreið
út af veginum við Syðri-Bægisá.
Enginn meiddist, en bifreiðin er
nokkuð skemmd. Um helgina
voru tveir ökumenn teknir á
Glerárgötu fyrir of hraðan
akstur.
Sólin er farin aö bera þvf við að skina á Norðlendinga og þá fyrir unga fólkið, þó að sumum eldri finnist e.t.v. nógu langt
er eins og falli af mönnum fjötrar. Feimnin hverfur eins og gengið. Þessi mynd var tekin við Sundlaug Akureyrar fyrir
dögg og ekkert mál að bera sig svolftið i blíðunni, a.m.k. ekki helgina.
Húsin verða rif in
RÉTTIÐ HJÁLPARHÖND
Nú hefur verið ákveðið að koma
fót hjúkrunardeild fyrir öldrun-
arsjúklinga í svokölluðu Systra-
seli, sem er á lóð fjórðungs-
sjúkrahússins. Hópur áhuga-
manna hefur unnið að fram-
gangi þessa máls, en sem
kunnugt er liggur við neyðar-
ástandi í þessum málum, ekki
síður hér á Akureyri en á höf-
uðborgarsvæðinu. Stefnt er að
því að taka deildina í notkun um
áramót og nú er hafin fjársöfn-
un vegna þessa verkefnis undir
heitinu „Við réttum hjálpar-
hönd“, en skjót lausn þessa máls
byggist fyrst og fremst á því að
almenn samstaða náist meðal
fólks um að rétta hjálparhönd
og leggja fram fé.
- Sjá nánar bls. 4
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180