Dagur - 26.05.1981, Side 4
Arni Sigurðsson
Fœddur 21. nóv. 1907 — Dáinn 15. maí 1981
Hinsta kveðja f rá KA
Undir voru aöalsmerki
œskan djörf aö leikum gekk,
þorði að lúla í lœgra haldi
lika margan sigur jékk.
Heill sé þeim sem œsku alla
aldrei sína köllun sveik.
Heill sé þeim, sem vaskasi vörðu
vigi sin i hverjum leik.
Og nú er komið að leikslokum.
í miðjum gróandanum þegar
grösin eru tekin að spretta og fyrstu
blómin sprungin út, er Árni Sig-
urðsson allur.
Hann var formaður KA á árun-
um 1942-45 og var með í uppbygg-
ingu félagsins frá því fyrsta.
Þegar blöðum sögunnar í starfi
KA er flett, kemur m.a. fram, að
Ámi var upphafsmaður að bygg-
ingu tennisvallar félagsins 1931,
sem var sannkallað Grettistak á
þeirra tíma vísu. í formannstíð
hans, ná íþróttamenn félagsins
glæsilegum árangri einkum þó á
skíðum, en einnig í knattspyrnu,
handknattleik kvenna og sundi.
Árni var í forsæti glæsilegrar
árshátíðar 1943 þar sem haldið var
upp á að KA hefði nú slitið ferm-
ingarfötunum ogorðið 15 ára. Á 50
ára afmæli felagsins var Ámi Sig-
urðsson heiðraður og kjörin heið-
ursfélagi KA. Árni var á sinn sér-
staka ljúfa hátt alls staðar nálægur,
þar sem félagið var annars vegar.
Tvennt er einkum minnisstætt í því
sambandi frá s.l. vetri. Þá var hann
myndaður glaður og reifur í hópi
10 formanna KA en sú mynd var
prentuð í ársskýrslu Í.B.A. fyrir s.l.
starfsár. Og svo þegar hann heim-
sótti KA miðstöðina einn sólbjart-
an sunnudagsmorguninn og fór þar
höndum um gamla bikara félags-
ins, glæst sigurtákn genginnar tiðar
og gekk þá ríkt eftir því við for-
mann að fundargerðarbækurnar
væru nú örugglega allar vel
geymdar. en regla og skipulag á
hlutunum, jafnt í starfi sem einka-
lífi var honum hjartans mál. Á að-
alfundi félagsins i vetur bar Áma
enn á góma, þar sem rædd voru
fjármálin með þessum orðum:
„Sjálfsagt má af því tilefni taka
undir með fyrrverandi formanni
KA, Árna Sigurðssyni, sem sagði
einu sinni að í lok síðari heims-
styrjaldarinnar hefði kaup á einum
fótknetti verið meir háttar fjárfest-
ing fyrir félagið. Verðbólgan hefir
síðan séð um að blása þennan fót-
knött upp í fanginu á öllum stjóm-
um félagsins síðan.“
Þannig var Ámi, alltaf nálægur
þar sem KA átti í hlut og hann var
ræktunarmaður í bestu merkingu
þess orðs. Það var hlýja handtakið
og uppörvandi brosið sem treysti
þau vináttubönd sem Ámi batt við
samtíð sína. Og hann hjálpaði
ótöldum fjölda unglinga við að
læra að rækta eigin reit góðvildar
og vináttu og að því býr margur til
frambúðar. Spakur maður sagði
um vináttuna: „Vinur þinn er þér
allt. Hann er akur sálarinnar, þar
sem samúð þinni er sáð og gleði þín
uppskorin. Hann er brauð þitt og
arineldur. Þú skal ekki hryggjast
þegar þú skilur við vin þinn, því að
það sem þér þykir vænst um í fari
hans, getur orðið þér ljósara í fjar-
veru hans, eins og fjallgöngumaður
sé fjallið betur af sléttunni.
Þannig er ljúft að minnast Áma
Sigurðssonar að leiðarlokum, með
virðingu og þakklæti.
KA kveður vin og velunnara og
KA félagar senda vandmönnum
innilegar samúðarkveðjur.
Jón A rnþórsson,
formaður KA.
íþróttadeild
Léttis
heldur deildarfund í Lundarskóla miðvikudags-
kvöldið 27. maí kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Sumarstarfið framundan.
3. Hestamennska fyrir fatlaða.
4. Önnur mál.
Munið greiðslu árgjalda.
í.d. L.
Hestaíþróttir
íþróttadeild Léttis heldur deildarmót á hringvelli
félagsins í Breiðholti laugardaginn 30. þ.m. kl.
10.00 og sunnudaginn 31. þ.m. kl. 13.00.
Keppnisgreinar: Tölt, fjórgangur, fimmgangur, tölt
unglinga, fjórgangur unglinga.
Tilkynning þátttöku og greiðsla þátttökugjalds þarf
að hafa borist Aldísi Björnsdóttur, Goðabyggð 7,
fyrir kl. 22.00 fimmfudaginn 28. þ.m.
í.d. L.
VK> RETTUM
HJÁLPARHÖND
f október 1980
komu fulltrúar ýmissa heilbrigðis-
stétta bæjarins, og frá Kristneshæli,
alls um 20 manns, saman til að
ræða hugsanlega lausn á auknu
rými fyrir hjúkrunarsjúklinga, en
samkvæmt könnun, sem gerð var á
því svæði er leitar þjónustu til
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
vantar nú um 50 hjúkrunarpláss.
Þessi samstarfshópur varð sam-
mála um að óska eftir því við stjóm
F.S.A. að svokallað „Systrasel I“,
sem er á lóð sjúkrahússins yrði
tekið til þessara nota, en það tæki
tiltölulega stuttan tíma að breyta
húsinu, og koma því í not, en þarna
yrðu 18 sjúkrarúm, sem leysti
brýnasta vandann.
Sjúkrahússtjórn samþykkti að
mæla með því við Heilbrigðis-
málaráðuneytið að Systrasel yrði
látið til þessara nota og féllst ráðu-
neytið og Félagsmálaráðherra á þá
beiðni, sem staðfest er með bréfi
dagsettu 10. apríl s.l.
Samkvæmt kostnaðaráætlun má
gera ráð fyrir að breytingar á hús-
inu — kaup á rúmum, tækjum og
öðrum búnaði verði 1,5-2,0 millj.
króna.
Ætlunin er sú að þessi fram-
kvæmd verði fjármögnuð með
frjálsum framlögum, en F.S.A
annist síðan rekstur deildarinnar.
Ástæða þess að ekki er knúið á dyr
ríkisvaldsins, svo sem eðlilegt gæti
talist, er fyrst og fremst sú að mati
áhugamannahópsins og einnig
sjúkrahússtjórnar, að ekki mætti á
nokkurn hátt skerða það takmark-
aða fjármagn, sem ætlað er til
byggingaframkvæmda við F.S.A.,
sem nú standa þar yfir, og flestum
finnst að alltof hægt miði. Þv;
verður að treysta á samstillt fram-
tak almennings og þá ekki síst
þeirra, sem búa á því svæði er leita
þurfa sjúkrahúsvistar á F.S.A., en
það nær frá Akureyri og Eyjafirði
allt austur á Vopnafjörð.
Skjót lausn þessa máls byggist
því fyrst og síðast á skilningi, áhuga
og samstöðu allra þeirra sem rétt
geta hjálparhönd, og vissulega er
hér um knýjandi framkvæmd að
ræða, ekki síður en á höfuðborgar-
svæðinu þar sem talað er um að
neyðarástand ríki í þessum efnum.
Ef við gefum okkur þá forsendu
að 10 þús. manns, sem er um
helmingur þeirra sem á því svæði
búa, sem áður er getið og til F.S.A.
leita um læknisþjónustu, meira eða
minna, vildu rétta hjálparhönd, þá
væri hér um að ræða 150-200 krónu
framlag á mann. Flestir ættu auð-
velt með að leggja fram slíka
upphæð á næstu 5-6 mánuðum eða
1 krónu á dag — og margir yrðu
vafalaust stórtækari. Þetta er því
spuming um áhuga og samstöðu,
því margar hendur vinna létt verk.
Fyrir þá sem fullfrískir eru, er það
ljúf skylda að rétta bágstöddum og
sjúkum vinar- og hjálparhönd, og
hinir sem sjálfir, eða vegna sinna
þurfa á slíkri þjónustu að halda,
vilja áreiðanlega nokkuð á sig
leggja svo málið fái farsæla lausn
hið bráðasta.
f fullu trausti þess að sveitafélög,
stofnanir, fyrirtæki, félög, klúbbar
og allur almenningur samstilli
krafta sína að því marki, að hægt
verði að afhenda hjúkrunardeild-
ina fullbúna til starfrækslu um
næstkomandi áramót, hleypum við
þessari fjársöfnun af stokkunum og
hefjum framkvæmdir undir kjör-
orðinu: „VIÐ RÉTTUM HJÁLP-
ARHÖND“.
Undirritaðir skipa fram-
kvæmdastjóm þessa verkefnis:
Ásgeir Höskuldsson, framkv.stj.,
Halldór HaHdórsson, lœknir,
Hulda Baldursdóttir, hjúkrunarfr.,
Jón Kristinsson, forstöðum.,
Ólafur H. Oddsson, héraðsl,
Ólafur Sigurðsson, yfirl.
Upplýsingar veita Jón Kristins-
son forstöðumaður í síma 22860 kl.
9-10 og kl. 15-17 heirna í síma
22860 kl. 9-10 og kl. 15-17 heima í
síma 23639.
Einnig er tekið við framlögum og
veittar upplýsingar á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í síma 22100 milli kl.
15 og 19.
Sumarvörurnar
streyma aö þessa dagana
Tjöld: 10 gerðir.
Svefnpokar, svampdýnur
Sóltjöld h. 130 og 150 cm.
Krjkket 4-6 m. Piknikktöskur
Útigrill: 4 gerðir. Griiikoi.
Grillvökvi, grillgrindur,
kælibox 20, 25, 35 I. Pottasett.
Sólhúsgögnin eftirspurðu
koma einhvern næstu daga
Greiðslukjör við stærri kaup.
Brynjólfur Sveinsson h.f.
4.DAGUR