Dagur - 26.05.1981, Blaðsíða 9
Valur í
Stuðlafelli
látinn
Valur Kristinsson, forstjóri
Stuðlafells, lést á sjúkrahús-
inu á Akureyri sunnudaginn
24. maí, 43ja ára að aldri.
Valur var ættaður frá
Möðrufelli í Eyjafirði. Hann
lærði húsasmíðar og varð
meistari í iðninni. Hann stofn-
aði byggingafyrirtækið Stuðla-
fell 1975 ásamt Þórði Pálma-
syni.
Eftirlifandi kona hans er Sara
Valdimarsdóttir og eignuðust
þau þrjú böm. Valur verður
jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju kl. 13.30 n.k. föstudag.
LANDSÞING
JCÁ
AKUREYRI
20. landsþing J.C. Islands verður
haldið á Akureyri dagana 28.-30.
maí n.k. Þetta verður eitt fjöl-
mennasta landsþing J.C.Í., sem
haldið hefur verið, enda koma
um 350-400 manns.
Auk hinna venjubundnu þing-
starfa verður m.a. fjallað um mál-
efnið „Leggjum öryrkjum lið.“
Þetta er landsverkefni J.C. fslands í
ár og jafnframt kjörorð þingsins.
Föstudaginn 28. maí kl. 13:15
verður svonefnd panelumræða um
málefni fatlaðra í Borgarbíói.
Framsögumenn í þeim umræðum
verða þeir Bjarni Kristjánsson, for-
stöðumaður Sólborgar, Valdimar
Pétursson stjórnarmaður í Sjálfs-
björg Akureyri, Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, Reykjavík, og Markús
Öm Antonsson, ritstjóri, Reykja-
vík.
Þessi umræðufundur er opinn
þeim, sem vilja koma og taka þátt i
umræðum og skoðanaskiptum um
þessi mál.
Jafnhliða þinginu verður opnuð
sýning á verkum fatlaðra í húsi
Sjálfsbjargar við Bugðusíðu.
Sýningin opnar kl. 14:00 á
fimmtudag og stendur fram á
sunnudag. Efnið á sýninguna er
sótt til Reykjavíkur, Akureyrar og
víðar.
Bæjarbúar sýnið málefnum fatl-
aðra áhuga. Mætið sem flestir á
fundinn í Borgarbíói og á sýning-
una í Sjálfsbjargarhúsinu.
Landsþingsnefnd JC A kureyri
Byggðarlagsnefnd JC A kureyri
Flóamarkaður
við Nonnahús
Ef veður leyfir mun Zonta-
klúbbur Akureyrar halda úti-
markað á tjarnarbakkanum fyrir
framan Nonnahús á uppstign-
ingardaginn — 28. maí —
klukkan 15.
Hér er um að ræða flóamarkað,
þar sem selt verður m.a. fatnaður,
bækur, blöð, plötur, leikföng, bús-
áhöld og fleira. Pottablóm og
garðplöntur verða á boðstólum og
ýmsar veitingar s.s. heitt kakó,
íummur, gosdrykkir og poppkorn.
Blásarasveit Tónlistarskólans mun
leika undir stjóm Roars Kvam.
Zontaklúbbur Akureyrar sér um
rekstur Nonnahúss og vinnur auk
þess að líknarmálum. Um þessar
mundir að málefnum sjónskertra.
Af þeirri ástæðu hefur klúbburinn
veitt styrk til náms í augnþjálfun og
fyrirhuguð eru kaup á augnþjálf-
unartæki.
3ÖÖÖ55
UMSJÓN:
Ólafur Ásgelrsson
Krlstján G. Arngrímsson
Oheppnir Þórsarar
Á föstudagskvöldið lék Þór
sinn fyrsta heimaleik i knatt-
spyrnu, og þá við „sputtnikk-
lið“ Breiðabliks, sem að
mörgum var talið eitt sterk-
asta lið deildarinnar. Ef svo
er þá þurfa Þórsarar engu að
kvíða um framhaldið i deild-
inni, því ef dæma má af þess-
um leik, þá voru Þórsarar
einfaldlega betri. Heppnir
Blikar fóru heim með annað
stigið í leiknum en honum
lauk með jafntefli, eitt mark
gegn einu.
Þórsarar kusu að leika undan
lítilli sunnan golu, en fyrstu
mín. í leiknum hófust með
hörkusókn hjá Breiðablik. Á
KR lagt
að velli
KA gerði góða ferð til
Reykjavíkur á fimmtu-
dagskvöldið, en þá lék liðið
við KR í fyrstu deildinni í
knattspyrnu. KA vann
sannfærandi sigur leikn-
um, skoraði eitt mark gegn
engu. KA var sterkari aðil-
inn og sótti nær stanslaust
allan leikinn. Markið kom
fimm mín. fyrir leikslok, en
þá „vippaði“ Hinrik yfir
markvörðinn sem um leið
braut gróflega á Hinriki,
svo flytja mátti hann á
sjúkrahús, m.a. nefbrotinn.
fjórðu mín. ná Þórsarar góðri
sókn, en skot Jóns Lárussonar
var varið. Nokkrum mín. síðar
sækja Þórsarar ennþá, en
markmaður Blikanna bjargar
vel í hom. Um miðjan fyrri
hálfleik var nokkuð jafnræði
með liðunum, og sóttu þau til
skiptis, en þrátt fyrir að Blik-
amir virtust spila meira með
boltann en Þór, voru sóknarlotur
Þórsara mun hættulegri, þær
byggðust flestar á löngum
sendingum á eldfljóta fram-
herja. Á 22. mín. var gefinn
góður bolti fyrir mark Blikanna,
og Jónas Róbertsson skallar og
sneiðir boltan yfir mark-
manninn, en í stöng fór boltinn
og út í teiginn þar sem Blikarnir
voru fljótir að afgreiða hann
langt fram á völlinn. Á 26. mín.
komst Guðmundur Skarphéð-
insson innfyrir vörn Blikanna,
eftir klaufaleg vamarmistök
þeirra, og Guðmundur renndi
boltanum fyrir markið, en þar
var enginn til að stýra boltanum
í netið. Fjórum mín. síðar er
horn á Breiðablik, Jónas gefur
góðan bolta fyrir markið og Jón
Lár afgreiðir hann viðstöðu-
laust að markinu, og framhjá
markmanninum, en vamar-
maður Blikanna ver á línu.
Þama skall hurð nærri hæl-
um við markið hjá Blikunum og
voru þeir sannarlega heppnir að
vera ekki búnir að fá á sig mark.
Þegar flautað var til hálfleiks
hafði boltinn aldrei komist í
netið, en eftir gangi leiksins
hefði ekki verið ósanngjarnt að
Þór hefði haft eitt til tvö mörk
yfir.
Þórsarar hófu síðari hálfleik
með sókn og tvívegis komst Jón
Lár í gott færi en Blikamir
björguðu á síðustu stundu. Á 15.
mín. síðari hálfleiksins kom svo
fyrra markið. Jón Lár lék upp
vinstri kanntinn og lék laglega á
bakvörðinn og sendi síðan bolt-
ann þvert fyrir markið á
Guðmund Skarphéðinsson sem
var þar inn á milli þriggja vam-
armanna Blikanna. Sennilega
hafa þeir ætlað hvor öðrum að
sjá um Guðmund, en reyndin
ustu mín. fengu þeir auka-
spymu reít utan við vítarteiginn
og skutu að marki, en Eirikur
hálfvarði, og einn Bliki fylgdi
vel eftir og skoraði. Hann var
þama rangstæður og markið því
talið ólöglegt, og þar sluppu
Þórsarar með skrekkinn. Úrslit
leiksins urðu því jafntefli eitt
mark gegn einu. Þórsarar stóðu
sig mjög vel í þessum leik, sér-
staklega vömin, en hún virkaði
örugg, og gaf fljótum Blikunum
ekkert eftir. Jón Lár og Guð-
Blikamir koma engum vömum við, Guðmundur Skarphéðinsson sendir bolt-
ann rakieitt í netið, 1-0 fyrir Þór. Mynd: KGA.
Næstu leikir
Fjórða umferð deildarinnar fer fram um næstu helgi. Á
sunnudag kl. 20 leika hér á Akureyri FH og KA. Þetta
verður hörkuleikur þar sem FH hefur tapað öllum leikjum
sínum til þessa, en þeir hafa yfirleitt verið óheppnir. Það
má því búast við þeim mjög grimmum í leiknum á föstu-
daginn. Á laúgardaginn fara Þórsarar til Reykjavíkur og
leika við FRAM, en þelr hafa engum leík tapað til þessa, en
heldur engan unnið. Sama dag leika m.a. Völsungar í
Keflavík, en þar verða norðanmenn að taka á honum stóra
sínum ef þeir ætla að krækja í stig.
var sú að hann fékk að vera
óáreyttur, og lagði boltann vel
fyrir sig og skoraði síðan af ör-
yggi. Þremur mín. síðar höfðu
þeir Jón og Guðmundur verka-
skipti, en þá lék Guðmundur
upp vinstri kanntinn og renndi
boltanum fyrir markið á Jón en
aðeins of fast þannig að Jón
náði honum ekki. Einni mín.
síðar á Guðmundur í höggi við
varnarmann Blikanna rétt
framan við markið, og varnar-
maðurinn „kiksar" eins og kall-
að er, en því var Guðmundur
ekki við búinn, því hann stóð
allt i einu fyrir opnu marki með
boltan á ristinni, en skaut yfir. Á
30. mín. jafna svo Blikarnir.
Þvaga hafði myndast úti í vítar-
teig hjá Þór og Eiríkur mark-
maður ætlar að henda sér á
boltann í þvögunni, en einn
Blikinn var á undan og potaði í
markið.
Við þetta jafnaðist leikurinn
nokkuð, en síðustu mín. sóttu
Blikarnir nær stanslaust. Á síð-
mundur Skarphéðinsson áttu
góða spretti í sókninni, og
hrelldu mjög vöm Blikanna.
Sanngjöm úrslit í leiknum
hefði verið Þórssigur með einu
til tveimur mörkum.
Þorvaldur
kennir golf
Golfáhugafólki gefst á næst-
unni tækifæri til að leika golf
undir leiðsögn kennara. Það
er Þorvaldur Ásgeirsson
golfkennari sem verður að
Jaðri dagana 29. maí til 5.
júní, n.k. og mun veita þeim
sem áhuga hafa, tilsögn i
íþróttinni.
Það má með sanni segja að
þetta sé hvalreki á fjörur
golfáhugafólks, og án efa munu
margir verða til að notfæra sér
þetta tækifæri.
Tekið er á móti tímapöntun-
um i Sport & Hljóð.
Nýja línon fra
GUSTAVSBERG
Hönnud til aö mæta kröfuhöröum
hagstil byggingamóös níunda áratugsins.
Enda kaupa fleiri hér á landi
GUSTAVSBERG
en öll önnur hreinlætistæki samanlagt.
Á veröi sem allir ráöa vió.
Leitiö upplýsinga. Biöjiö um myndlista.
GUSTAVSBERG
Édb, Kaupfélag Þingeyinga
WW Húsavík
DAGUR.9