Dagur - 05.06.1981, Page 2
Margrét Krístinsdóttir
Matur - niatur - matur -
Þá er sumarið loksius komið og
þungu fargi létt af sálum okkar
með vaxandi birtu og hlýindum.
Við þessar aðstæður grípur
okkur oft óviðráðandi löngun til
að komast út í náttúruna, njóta
gróðursins, fuglakvaksins og
lækjarniðarins. Við förum á bíl,
á hjóli eða gangandi, leitum uppi
friðsælan reit og hreiðrum um
okkur með nestiskörfuna, ung-
um og öldnum til óblandinnar
ánægju. En það er einmitt nest-
iskarfan sem verður til umræðu
nú.
Fólk velur sér nesti eftir smekk
hvers og eins, en það sem við höf-
um þó helst í hugum okkar er að
það sé liolll, gott og fvrlrferóarlítiS
— og gleymum ekki ruslapokan-
urn.
Við tökum gróf brauð fram yfir
hveitibrauð í flestum tilfellum,
ávaxtasafa og mjólkurdrykki fram
yfir gosdrykki og ef við förum með
einhvers konar majónessalöt mun-
um við eftir að kæla þau mjög vel
áður en farið er af stað.
Allir þekkja þetta venjulega nesti
svo sem samlokur, kex, osta og
ávexti og kannski er verið að bera í
bakkafullan lækinn að bæta þar
einhverju við. Þó fá að fljóta með
nokkrar skemmtilegar uppskriftir
sem auðvitað má nota alveg eins
heima og í nestiskörfuna.
Fyllt snittubrauð
/ snittubrauð
Vi gúrka í litlum bitum, takið e.t.v.
kjarnana úr þá verður fyllingin ekki
eins blaut.
2-3 msk. sýrðar gúrkur. saxaðar
350 g skinka, söxuð
200-250 g góður ostur, t.d. Búri, rif-
inn
1 búnt graslaukur, eða Vi laukur
1 búnt dill
1 búnt steinselja eða I tsk. af þurrk-
ttðll
150 g smjör
salt, pipar, parika
Meðlæti ef vill: harðsoðin egg og
tómatar.
Skerið brauðið langsum og takið
töiuvert innan úr því með teskeið
(þurrkið það og notið í rasp).
Klippið kryddjurtirnar smátt og
hrærið svo öllu vel saman. Setjið
fyllinguna í neðri brauðbotninn,
hvolfið hinum ofan á og þrýstið vel
saman. Setjið álþynnu utan um og
kælið vel.
Brauðið er síðan sneitt og og
e.t.v. borin harðsoðin egg í bátum
og tómatar í bátum með.
Kjúklingasalat
IV:i dl majones
1-2 tsk. karry
2 msk. sítrónusafi
100 g hnetukjarnar, saxaðir
350 g soðið eða steikt kjúklingakjöt
i litlum bitum
salt, pipar, steinselja.
Blandið öllu vel saman og setjið í
samlokur eða í tartalettur. Kælið
vel.
Túnfiskssmjör
1 ds túnfiskur, þerraður og saxaður
2 tsk. gott edik
2 msk. tómatsósa
2 tómatar, afhýddir og saxaðir
salt og pipar
50 g lint smjör
Blandið öllu saman. Athugið að
auðvelt er að afhýða tómatana með
því að dýfa þeim smástund í sjóð-
andi vatn áður. Ljóst rúgbrauð er
tilvalið með og ætti þessi uppskrift
að duga í 5-6 samlokur.
Kræklingasalat
150 g majones
2 msk. rjómi
1 rifið epli
2 msk. pickles, saxaður
ögn af sinnepi
20-30 niðursoðnir krœklingar
dill eða steinselja
e.t.v. ögn af sherry
Hrærið allt vel saman, setjið í vel
lukt ílát og kælið vel. Hafið brauð
eða kex með. Einnig má búa til
samlokur og nota salatið sem
fyllingu og muna að kæla vel áður
en farið er af stað.
Heimabakaðir brauð-
hleifar úr grófu mjöli,
léttir og ilmandi
450 g heilhveiti
450 ghveiti
2 tsk. salt
25 g olía
5 tsk. þurrger (perluger)
3 tsk. sykur
6 dl volgt vatn
Setjið vatnið í skál, stráið gerinu
yfir og látið bíða um stund. Blandið
olíu saman við og setjið u.þ.b. % af
þurrefnunum út í. Sláið vel af lofti í
deigið með góðri trésleif, stráið
mjöli yfir, breiðið klút yfir og látið
lyfta sér í 30-40 mínútur. Sláið þá
nýtt loft í deigið með sleifinni, setj-
ið það á borð og hnoðið því sem
eftir var af mjölinu upp í. Athugið
þó að gera ekki deigið of þurrt, það
á að vera mjúkt, volgt og þétt.
Mótið 2 kringlótta hleifa og setj-
ið á smurða bökunarplötu, skerið
kross í miðjuna, breiðið yfir og látið
lyfta sér við yl í 20-30 mínútur.
Bakið við 180° C í u.þ.b. 50 mínút-
ur, penslið brauðin með vatni eftir
30 mínútna bakstur og aftur um
leið og þau eru tekin út úr ofninum.
Kælið á rist.
Fmun húsvfð BORGARSÍDU!
Tvílyft einbýlishús
Við bjóðum til sölu fimm glæsileg einbýlishús úrtimbri,
hæð og ris, samtals 163,5 m2 að stærð, hvert um sig.
Húsin eru byggð úr einingum frá Húseiningum h.f. á
Siglufirði, og verða þau tilbúin til afhendingar fyrstu
dagana í september n.k.
Upplýsingar
Allar upplýsingar verða gefnar hjá Byggi s.f., Sunnu-
hlíð 10, sími 24719, kl. 19-22 daglega
Teikningarog upplýsingabækurtil reiðu.
Sérhönnuð einingahús
Húsin eru teiknuð af Viðari Olsen, sérhönnuð fyrir lóð-
irnar við Borgarsíðu 23,25,27,29 og 31. Hægt er að velja
um þrjú byggingarstig við kaupin. Grafið verður út fyrir
bílskúr og bílstæði, en skúrinn er ekki reiknaður með í
verði hússins.
BYGGIR
Akureyri
2.DAGUR