Dagur - 05.06.1981, Page 3
Þorvaldur Þorsteinsson
LIFANDI BÆR tfk
Uppstigningardagur var góður
dagur á Akureyri. Kom þar
einkum tvennt til; veðrið var
ágætt og mannlífið óvenju
mannlegt. Zontakonur héldu
útimarkað jnni í fjöru og
lúðrasveit gekk spilandi um
götur bæjarins. Mátti víða sjá
brosandi andlit i gluggum og
sumir gerðu sér ferð út í dyr til
að fylgjast með tónlistar-
mönnunum og njóta tilbreyt-
ingarinnar.
En þetta var aðeins einn dagur.
Einn af allt of fáum líflegum
dögum hér í bæ. Allt of sjaldan
erum við minnt á það að sam-
félagið hefur upp á annað að
bjóða en slys, morð, stríð og
slæmar fréttir. Því miður gerist
það sjaldan að grímunni er svipt
af andlitinu og því leyft að brosa
framan i náungann. Til þess gefst
hvorki tími né tilefni, að því er
virðist, — „jafnvel" ekki hér á
Akureyri.
Ég legg til að í sumar verði
þessu breytt. I sumar ættum við
að nota hvert tækifæri til að lífga
upp á miðbæinn okkar og gefa
grafalvarlegum vegfarendum til-
efni til að afhjúpa jaxlana og tipla
ögn léttar um torgið. M.ö.o. gera
bæjarbraginn skemmtilegan.
Möguleikarnir eru ótalmargir, —
ég nefni nokkur dæmi:
Lítill útimarkaður við torgið
gæfi miðbænum þekkilegan svip.
í fyrra minnir mig að vísir að úti-
markaði hafi verið á torginu.
Hann þarf að endurvekja og helst
auka við.
ísvagn á heitum dögum væri
kærkominn. Mætti ganga þannig
frá vörunni að engin óþrif hlytust
af. Ekki ætti pylsuvagn að spilla
Flóamarkaður
Dagana 19.-29. júní n.k. verður
haldið í Hamar í Noregi alþjóðlegt
lúðrasveitamót þar sem mættar
verða um 100 sveitir frá 10-12
löndum.
Ákveðið hefur verið að Blásara-
sveit Tónlistarskólans taki þátt í
þessu móti til uppörfunar og
skemmtunar fyrir félaga sveitar-
innar.
Fjáröflun hefur verið í gangi að
undanförnu og sem liður í henni
verður haldinn Flóamarkaður á
föstudaginn kemur þar sem boðið
verður upp á fjölbreytta muni,
seldar veitingar og lúðrablástur.
Flóamarkaðurinn verður hald-
inn á túninu fyrir sunnan Fata-
hreinsunina í Hólabraut og hefst kl.
14.
fyrir stemmingunni. Þó er hann
síðri vegna óþrifa sem væntan-
lega fylgja, því ekki kunnum við
enn að ganga um bæinn að
mennskum sið. (Nægir að minna
á vanþekkingu varðandi notkun
rusladalla og óvirðingu við
blómaskreytingar á torginu í
fyrra).
Hvetja þarf tónlistarfólk til
dáða. Tónlistarmaður sem fitlar
við hljóðfæri sitt í sólskininu
gleður hjarta náungans og léttir
honum sporin. Harmonikkuleik-
ari, gítarleikari, flautuleikari eða
fiðluleikari, — allt þetta lífgar
upp á tilveruna. Er ekki kjörið
fyrir nemendur í Tónlistarskól-
anum að spreyta sig á þennan
hátt?
Leikflokkar gætu einnig reynt
sig á torginu. Þyrfti lítinn, jafnvel
engan viðbúnað svo gaman yrði
að.
Og hvað með götumálara eða
— teiknara?
Nú finnst einhverjum að
draumórar einir séu á ferð. Að
fæst af þessu sé framkvæmanlegt
í okkar risjótta veðurfari. Þeirri
svartsýni svara ég með því að
benda á að allt það sem hér hefur
verið nefnt er mjög einfalt og
auðvelt í meðförum. Auðvelt er
að koma því upp með litlum fyr-
irvara á góðviðrisdegi og hætta
við ef syrtir í álinn.
Ég er sannfærður um að hægt
er að gera miðbæinn lifandi á
einfaldan máta. Ekki skortir
möguleikana, aðeins fram-
kvæmdina. Hér ættu einhverjir
áhugasamir menn að ýta úr vör.
Það þarf einhvern til að brjóta ís-
inn, — eftir það er leiðin greið.
Drífum í þessu í sumar. Það er
ekki eftir neinu að bíða.
Góða skemmtun.
Nýja linan fni
GUSIAVSBERG
Hönnuö til ad mæta kröfuhöröum
hagstíl byggingamóös níunda áratugsins.
Enda kaupa fleiri hér á landi
GUSTAVSBERG
en öll önnur hreinlætistæki samanlagt.
Á verði sem allir ráða við.
Leitið upplýsinga. Biðjið um myndlista.
Kaupfélag Eyfirðinga
Byggingavörudeild
Póstsendum um allt land
Nýjungamar fylgja
Örugg og tæknilega fullkomin.
Ódýr, stílhrein og audstillanleg.
Glæsileg i nýja baöherbergiö og eldhúsid
og audtengjanleg viö endurnýjun á gömlu.
Leitiö upplýsinga. Biöjiö um myndlista.
Kaupfélag Eyfirðinga
Byggingavörudeild
Póstsendum um allt land
Það stendur í blaðinu, að þjófarnir
séu alitaf að verða bíræfnari.
DAGUR.3