Dagur - 05.06.1981, Side 4
„Dagdveljau
Hve margir takkar
eru á hnettinum?
Umsjón: Jón Gauti Jónsson
Bragi V. Bergmann
Ég er bæði elstur og yngstur í
heiminum.
*
Ingimundur og hans hundur
sátu báðir og átu.
Nú nefni ég hundinn,
og gettu mína gátu.
*
Hve margar
tröppur?
í eldsvoða einum fyrir skömmu
stóð slökkviliðsmaður í miðþrep-
inu á brunastiganum og beindi
vatnsbununni inn í logandi bálið.
Þegar nokkuð sló á eldinn og
reykinn, hækkaði hann sig í stig-
anum um þrjú þrep og hélt starfi
sínu áfram þaðan. En allt í einu
magnaðist eldurinn á ný og hann
neyddist til að færa sig niður um
fimm þrep. Skömmu síðar færði
hann sig upp um sjö þrep og þar
stóð hann þar til eldurinn var
slökktur. Þá klifraði hann upp sex
síðustu þrepin og skreið inn í
bygginguna.
Hve mörg þrep voru t stigan-
um?
i •L 3 y
r fe ? 9
to II
13 IW i r F
Veistu?
1. Hvor eyjan er stærri, Hrísey eða Grímsey?
2. Eftir hvem er bókin; Hreiðrið?
3. Hvar á landinu er Lágheiði?
4. Hversamdi lagið: Litla flugan?
5. Hvað er tunglmánuður langur?
6. Hvaða bók er talið að komið hafi fyrst út á íslensku?
7. Hver er hraði hljóðsins?
8. Hvaða ár kom fyrsti bíll til landsins?
9. Hvað eru 0 gráður á Celcius margar gráður á Fahrenheit?
10. Hvert er annað nafn á sporasóley?
Fangelsið
í fangelsinu eru 15 klefar, auk
klefa fangavarðarins, sem er
merktur F. Hvernig getur fanga-
vörðurinn gengið úr klefa sínum í
alla hina klefana og til baka, án
þess að fara tvisvar í gegnum
sama klefann.
Veiðiferðin
Ég tók silungsstöngina mína
einn sunnudagsmorgun í sumar
og fór niður að síkinu til að veiða.
Er ég kom heim aftur, spurði Bína
systir mín, hve marga silunga ég
hefði veitt. Þá svaraði ég á þessa
leið: Ég ætlaði mér að veiða
fimmtíu silunga í síkinu, en þegar
til kom, vantaði mig tvo silunga
til að hafa veitt fimmta partinn af
helmingi þess, sem ég upphaflega
ætlaði. Hve marga silunga veiddi
ég?
4.DAGUR