Dagur - 05.06.1981, Side 11
ÍÞRÓTTIR
\ /
V.
vv
gjS|OÖUB j
lioqsujBA '01
jnijjjS '6
>061 CMy '8
•is|)|/iu)i/.8i| uin 'L
•uoss)||v)|si)oo
PPO JiJja pnuauiBisni u[Xm 9
•jn3Bpes'6Z 'S
•uossJ9p||BH sijj3is 'p
•JcpjufjSjeiQ 3o jegjufjniSis !|I!W '£
•uossgjnSis'uuEiipf jnjB|Q 'j
'A3S|jh I
— njspA — 9|A jqas
■pj njs ujdojci
'8£ njo jjujhSujujXiijjcI
■jeSun|js i :u|9J3j|Q|0A
"N
uu|ui|x
nfjOAp§BQ
b usnnq
Sigbjörn Gunnarsson
Boltinn farinn að rúlla
t
Þá er boltinn farinn að rúlla, hin-
um fjölmörgu áhugamönnum til
ánægju. Líkast til hafa Akureyr-
ingar sjaldan beðið með meiri
óþreyju eftir íslandsmótinu í
knattspyrnu, en einmitt í ár, þar
sem bæði félögin okkar eru að
þessu sinni í 1. deild.
Ekki verður annað séð en fé-
lögin fari allvel af stað. Þegar
þetta er ritað voru mér einmitt að
berast úrslit úr leik Fram og Þórs í
Reykjavík, þar sem Þórsarar sigr-
uðu með einu marki gegn engu.
Þar með hafa Þórsarar hlotið þrjú
stig úr jafnmörgum leikjum, og
verður að segjast að það er betri
árangur en menn hefðu þorað að
vona. Nær allir sem spurðir hafa
verið álits, hafa dæmt Þórsara
sem „fallkandidata". Þó skammt
sé liðið á mót virðast Þórsarar þó
ætla að spjara sig mun betur, en
„spájöfrarnir" hafa getið til um.
KA hefir í sínum tveimur leikjum
hlotið tvö stig, og er það nokkuð í
samræmi við þær hugmyndir sem
menn hafa gert sér Um gengi
liðsins.
Áhorfendur
Á dögunum hitti ég nokkuð stór-
an hóp knattspyrnumanna og
áhugamanna um íþróttina í
Reykjavík. Talið barst að áhorf-
endum á hinum ýmsu stöðum á
landinu og voru menn nokkuð
sammála um að framkoma
áhorfenda í Vestmannaeyjum
væri með því versta sem gerðist
hér á landi. Síðan voru Akureyr-
ingar nefndir næstir í röðinni. Ég
reyndi að malda í móinn, en varð
lítt ágengt. Ekki var ég alveg sátt-
ur við þessi ummæli þegar ég
hvarf á braut, en þegar ég fór að
hugleiða málið í rólegheitum er
ég ekki frá því að framkoma
áhorfenda hafi farið versnandi á
síðustu árum hér. Þar kemur
einkum tvennt til. í fyrsta lagi
hefir verið tekin upp sú stefna hér
að leika flesta heimaleiki á föstu-
dögum, sem er ágætis tímasetning
frá mínum bæjardyrum séð. Sé
leikið á föstudögum er ekkert sem
hindrar knattspyrnuáhugamenn
að sinna fjölskyldum sínum um
helgar, og auk þess geta leikmenn
þá eytt helgunum fyrir sig og sína.
Sá galli fylgir þó gjöf Njarðar að
ölvun hefir verið afar áberandi
oft á tíðum á föstudagsleikjum og
fylgifiskur ölvunar á vellinum
hefir verið leiðinleg framkoma í
garð dómara og leikmanna, sem
veitir okkur Akureyringum
þennan vafasama heiður að vera
taldir meðal leiðinlegri áhorf-
enda á landinu. Að sjálfsögðu er
það mikill minnihluti áhorfenda
sem þarna á í hlut, en nógu stór
samt. Einhvern veginn verður að
komast fyrir ölvun á vellinum, því
betra er að vera án þeirra króna,
sem þessir vallargestir greiða, en
halda reisn og orðspori sem
sannir knattspyrnuunnendur.
Annað sem veldur er að liðin
hér á Akureyri eru nú orðin tvö í
stað eins áður, og þar með magn-
ast viss spenna á milli áhangenda
liðanna, einkum þó þeirra yngri,
sem veldur orðaskaki og leiðind-
um á vellinum.
íþróttir í sjónvarpi
Svona rétt í lokin langar mig að
koma fram ábendingu til þeirra
íþróttafréttaritara í sjónvarpinu.
Margir eru þeir sem hafa hug á
að heyra úrslit úr þeim íþrótta-
mótum sem fram fara á laugar-
dögum. Víst er að úrslitin birtast í
íþróttaþættinum fyrr eða síðar.
Hins vegar hefir fólk ekki alltaf
hug á, eða tækifæri til, að sitja yfir
sjónvarpi lon og don í tvo tíma á
laugardögum. Því er það vissa
mín að íþróttaunnendur mundu
fagna því ef úrslit birtust alltaf á
sama tíma í þættinum og þá t.d. í
upphafi þáttarins, þau úrslit sem
þá yrðu kunn og síðan færu síð-
ustu mínútur þáttarins í að skýra
frá helstu viðburðum dagsins.
Því að leita langt yf ir skammt?
Ýmsir
litir og
margar
gerðir
COLT
LANCER
GALANT
SAPPORO
PICKUP
4x4 PICKUP
MINIBUS
SENDLABILAR
Nýi bíllinn er til á Akureyri!
Tugir bíla í tollvörugeymslu
Fjölnisgata 2A.
MITSUBISHI
1 MorraRS _
VdAGUR - Auglýsingadeiid
Komið og
leitið upp-
lýsinga
hjá sölu-
manni!
Nýju bílarnir í tollvörugeymslunni bíða nýrra eigenda.
Við bjóðum líka upp á fullkomna
viðgerðarþjónustu.
Verkstæðið er við Fjölnisgötu 2A.
Síminn er 21365.
S á
Akureyri:
HOLDURS/F
Tryggvabraut
14
Símar: 21715
og 23515
Sölumaður:
Eyjólfur
Ágústsson
DAGUR.11