Dagur - 08.12.1981, Side 8

Dagur - 08.12.1981, Side 8
Minning: Halldóra Bjarnadóttir Kveðja frá Lystlgarðlnum á Akureyri Þær konur, sem á sínum tíma komu á fót Lystigarðinum á Ak- ureyri, unnu verk sín í kyrrþey. Að minnsta kosti er erfitt að finna ritaðar heimildir um þau störf, Halldóra Bjarnadóttir. sem þær leysu af hendi. Undan- tekning eru þó fundargerðir Lystigarðsfélagsins, en þærskráði Halldóra Bjarnadóttir allt frá stofnfundi félagsins og fram yfir 1920. Við fráfall brautryðjandans Önnu Schiöth árið 1921 tók Halldóra við formennsku félagsins og hafði hana með höndum, þar til hún fluttist úr bænum nokkr- um árum síðar. Halldóra mun hafa beitt sér fyrir því, að nem- endum barnaskólans voru fengn- ir gróðurreitir til að annast í Lystigarðinum. Munu það vera fyrstu skólagarðar hér á landi og þekki ég engin eldri dæmi slíkra garða erlendis frá heldur. Með Halldóru Bjarnadóttur er hinn seinasti af stofnendum Lystigarðsfélagsins fallinn frá. Æfiskeið þessarra frumherja heyra nú minningunum til, en á hverju vori, þegar björkin laufg- ast og laukurinn grær, verður hugsjón þeirra okkur veruleiki. Jóhann Pálsson. ® ® nýjar Skjaldborgarbækur 1 Útgáfubækur Skjaldborgar eru eftirfarandi: Aldnir hafa orðið, 10. bindi, skráð af Erlingi Davíðssyni. Undir fjögur augu, eftir Erling Davíðsson. Gaman að lifa, æviminningar Jóhanns Ögmundssonar, skráðar af Erlingi Davíðssyni. Með reistan makka, sögur af hestum, skráðar af Erlingi Davíðssyni. Meðal gamalla granna, eftir Braga Sigurjónsson. Lengi væntir vonin, 3. bindi æviminninga Einars Kristjánssonar. Fornar rætur, ástarsaga, eftir Aðalheiði Karlsdóttur. Ást og dagar, ástarsaga, eftir Guðbjörgu Hermannsdóttur. Mannlíf í mótun, síðara bindi æviminninga Sæmundar G. Jóhannessonar. Skíðakappar fyrr og nú. Haraldur Sigurðsson safnaði og skráði. Minningarbók íslenskra hermanna 1914-1918. Stór og vönduð bók, bundin í skinnband. Dvergmál, Ijóð, eftir Baldur Eiríksson. Hans hágöfgi, hörkuspennandi bók, eftir David Beaty. Geimskipsmáninn dularfulli, eftir Don Wilson. Barna- og unglingabækur: Geiri „Glerhaus", eftir Indriða Úlfsson. Systurnar í Sunnuhlíð, eftir Jóhönnu Guðmundsdóttur. Bjössi og hvolpurinn hans, eftir Heiðdísi Norðfjörð. Dolli dropi í Kina, eftir Jónu Axfjörð. Káta á hættuslóðum, eftir Hildegard Diessel, 11. Kátu-bókin. Bækur fyrir alla fjölskylduna Bókasala hjá Skjaldborg stendur nú sem hæst. Bækurnar fást hjá öllum bóksölum. Tryggið ykkur eintak í tíma. Skjaldborg MINNING - FRIÐRIK A. FRIDRIKSSON Séra Friðrik Aðalsteinn Friðriks- son. fyrrum prófastur á Húsavík er látinn og verður til moldar borinn í dag. Hann andaðist á sjúkrahúsinu þar 16. nóvember síðastliðinn eftir nokkurra vikna legu vegna afleið- inga heilablóðfalls, fullra 85 ára að aldri. Á Húsavík hefur hann dvalið ásamt konu sinni hin seinustu ár meðal vandamanna og vina, að loknu löngu preststarfi þar og síðar í nokkur ár á Hálsi í Fnjóskadal. Mannfræðirit, svo sem Guðfræð- ingatal, Kennaratal og íslenskir samtíðarmenn geyma heimildir um ætt hans og æviferil fram á efri ár. — Margir munu geta hans að verðleikum. Sá er þetta ritar lætur eftir sér að rifja upp í fáum orðum persónuleg kynni og minnast frá- bærra hæfileika hans og mann- kosta. Á útmánuðum 1934 sá ég séra Friðrik í fyrsta sinn. Það var messudagur á Hálsi, og kirkjugestir sátu í stofu að lokinni guðsþjónustu. Presturinn, Ásmundur prófastur Gíslason, var þá kvaddur fram vegna gestkomu. Brátt kom hann inn aftur og vísaði á undan sér ókunnum manni. Við litum öll upp. f dyrum stóð ungur maður, en þó fullþroska, dökkur á hár, en þó yfirlitsbjartur, þrátt fyrir auðsæjan þreytusvip eftir langa göngu í þungri færð. Teinbeinn og upplits- djarfur ávarpaði hann kirkjugesti alla í senn, einarður en látlaus. Séra Ásmundur kynnti gest sinn, Húsa- víkurprestinn nýja, er komið hafði þangað frá Ameriku á liðnu vori, en væri nú á léið til Akureyrar og vænti bíls á móti sér að Skógum. Prestarnir ræddust einir við yfir borðum og við hlýddum á. En brátt reis séra Friðrik úr sæti og kvaðst verða að halda för sinni áfram. Ég bauð samfylgd mína og að bera tösku hans. Aldrei gleymist mér þessi för okkar um barangurinn milli Háls og Skóga. Ég spurði, hann svaraði. Hann færði umræðuefnið út og á hærra svið. Honum var gefið að láta aðra sjá sýnir undir hönd sér. — Bíll beið við Skógahlíð og lagði þegar á brattann. Ég stóð einn eftir og fannst sem eitthvað sérstakt hefði skeð. Ég var annar en áður. Er ég kom heim á Skógahlíð hélt ég enn á tösku séra Friðriks. Árin liðu, og það heyrðist sitt hvað um nýja prestinn á Húsavík. Hann gekk stundum í vinnuföt- um og vann eins og vikingur. Hann safnaði um sig ungum og gömlum og stýrði bæði karlakór og kirkju- kór. Hann orti ljóð og söngtexta. Hann samdi lög. Hann skrautritaði og skrifaði nótur, líklega fegur en nokkur annar íslendingur á þeirri tíð. Hann bjó bækur undir prentun, ýmist einn eða með öðrum. Nefna má: Þingeysk ljóð, Afmælisdaga- bók sérstæða, og skráði til ljósrit- unar kórlög og lög við Passíusálm- ana. Síðar á árum þýddi hann merka skáldsögu: „Hún Antónía mín,“ er ber þýðanda sínum ljósara persónulegt vitni en venjulegt er um þýðingar. Áður en langt leið var séra Frið- rik orðinn fyrirliði nýrrar presta- kynslóðar í héraðinu, frjálshuga, starfsglaðra manna, er kenndu til í þrautum sinnar tíðar og voru ákveðnir í að láta gott af sér leiða. Þeim tókst að gera hugsandi, gagn- rýna almenning kirkjunni vinveitt- ari en áður og glöggsýnni á að í siðalögmáli og kærleiksboðun Krists felast allar þær mannbóta- hugsjónir, sem mannkynið hefur eignast og haldbestar hafa reynst. Um annasaman áhugamann leika jafnan vindar úr ýmissi átt, og tíð séra Friðriks á Húsavík var engin undantekning hvað það snerti þar skiptust á skin og skúrir, sársauki og sæld. Auk starfa prestsins var hann hlaðinn öðrum störfum fyrir bæjarfélag sitt og sýslu. Ég sá hann oftast um langt skeið í lok hvers sýslufundar á Húsavík. I kveðjuhófi er sýslumaður var vanur að halda í fundarlok, var hann ávallt boðinn. Með honum kom hressandi gustur. Lund manna léttist og gladdist. Karl Kristjánsson, sem þá var enn sýslunefndarmaður Húsavík- ur, gat þess þar eitt sinn við mig, að þá á útmánuðunum hefðu þeir séra Friðrik gert sér það til gamans að yrkja daglega sína vísuna hvor. Ein þessi vísa prestsins var svona: „Skynjun helg og hugsjón góð, heim og líf sem fegrar, viðlag sé við yndisóð iðju hversdagslegrar." Hversdagsiðja hins dugandi, heiðvirða manns er yndisóður hans til lífsins. Dýpri skilningur og hærri skal vera honum lífsfylling. Þannig fór séra Friðrik á kostum. Hugurinn hvarflar einnig til konu séra Friðriks. —Á námsárum sínum kynntist hann ungri menntakonu, Gertrud Estrid Elise. Foreldrar hennar voru Holger Nielsen ríkisskjalavörður í Kaup- mannahöfn og kona hans Dagmar, fædd Thomsen. Ung ferðaðist hún um vegleysur íslands nær hálfhring um landið til móts við örlög sín. Ung lifði hún síðan með manni sínum þeirra frumbýlingsár í annarri heimsálfu, Ameríku, þar sem hann var þjón- andi prestur frjálslyndra íslenskra safna um skeið. Fullþroskuð kona skóp hún þeim heimili að nýju við nyrsta haf, er þau fluttu til Húsa- víkur 1933, og gegndi þar vanda- sömum störfum utan heimilis og innan í þrjá áratugi af sínum kunna dugnaði. Sá einn sem reynir, veit hvað það er að eiga maka af öðru þjóðerni, skipta um föðurland og leitast síðan við af alúð að verða honum og þjóð hans samstiga í blíðu og stríðu. Það tókst henni með ágætum. Aldur færðist yfir þessi hjón sem aðra og eðlilegum starfstíma lauk á Húsavík. Beint lá við að þau flyttu til Reykjavíkur, þar sem margs var að njóta og aðstaða best til að sinna fjölþættum hugðarefnum að frjálsu vali, En sú för var aldrei farin. Þess var óskað við séra Friðrik, að hann tæki að sér um stundarsakir að þjóna Hálsprestakalli, þar til annar prest- ur yngri leysti hann af hólmi. Hann fékkst ekki um, þótt við- brigðin yrðu mikil, að hverfa frá hinni hátimbruðu Húsavíkurkirkju til litlu sveitakirknanna í Fnjóska- dal. Og dvölin þar varð ekki aðeins tvö misseri eða svo, heldur nærfellt átta ár. Ég sannfærðist brátt um, að hér undu þessi rosknu hjón sér vel og kölluðu í gamni þetta tímabil Indí- ánasumarið þeirra. „Indíánasum- ar, hvað er átt við með því?“ kann einhver að spyrja. Það er sumar- aukinn ljúfi, sem enginn getur full- treyst að komi að liðnum anna- og uppskerutíma, en getur orðið allra stunda bestur. Sumarið er þá að ljúka hlutverki sínu, skila ávöxtum liðins þroskaskeiðs í fang framtíð- ar. En hafi þessi tími á Hálsi verið presthjónunum góður, þá var hann safnaðarfólkinu það ekki síður. Þau miðluðu því af þekkingu sinni og lífsreynslu, en þó fyrst og fremst af kærleika sínum og góðhug. f fersku minni þess er prestkonan roskna, er kenndi börnunum sönginn, æfði kirkjukór á heimili sínu og spilaði án endurgjalds við guðsþjónustur manns síns á annexíunum, vann sér vinarhug á hverju heimili prestakallsins og prjónaði í tómstundum fatnað til þess að gefa litlum börnum, sem voru að rísa á legg. — Barnaskóli sveitarinnar naut starfskrafta hjón- anna beggja. Þar var þeirra ávallt beðið með óblandinni gleði. Séra Friðrik var bæði óvenjuleg- ur kennari og prestur. Boðskapur hans var háleitur og fagur. í hríf- andi ræðu, sem hann eitt sinn flutti á bændadegi Suður-Þingeyinga á Laugum og kallaði Draumsól, komst hann meðal annars þannig að orði: „Draumsólirnar leita stöðugt ljóssins. Það ættum vér líka að geta gjört. Því að yfir oss skín ljósið, sem „upplýsir hvern mann,“ — ljósið Krists, sem kom til að sýna oss kærleika, og hjálpa oss að vaxa í elsku, þekkingu og allri greind. ---------Getur það dulist nokkr- um þeim, er um það hugsar, að draumur Guðs býr í hverri manns- sál?“ Við fráfall þessa hugljúfa manns leitar þrátt á hugann erindi Sig- urðar Sigurðssonar frá Arnarholti: „Þungt er tapið, það er vissa — þó vil ég kjósa vorri móðir: að ætíð megi hún minning kyssa manna, er voru svona góðir — að ætíð eigi hún menn að missa meiri og betri en aðrar þjóðir.“ Blessuð sé minning séra Friðriks A. Friðrikssonar. 28. nóvember 1981, Jón Kr. Kristjánsson. 8 - DAGUR - 8. desember 1981

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.