Dagur - 08.01.1982, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, föstudagur 8. janúar 1982
2. tölublað
HLÍÐARFJALL:
MASTUR
BROTNAÐI í
LYFTUNNI
Mastur i skíðalyftunni í Hlíð-
arfjalli brotnaði um síðustu
helgi og lagðist niður. Óhappið
átti sér stað skömmu eftir að
lyftan var sett af stað og voru
fáir í henni og meiddist ekki
nokkur þeirra. Málmþreyta i
suðu neðarlega í mastrinu er
talin vera ástæðan fyrir þvi að
mastrið féll. í gær og fyrradag
var unnið við að röngten-
mynda öll möstrin, sem eru 11
taIsins,og öll úr járni. í dag fæst
úr þvi skorið hvort málmþreytu
séaðfinna ífleirimöstrum,en
samkvæmt fyrstu athugun er
ólíklegt talið að svo sé. Búið er
að reisa mastrið.
Að sögn ívars Sigmundssonar,
forstöðumanns Skíðastaða, er at-
burður sem þessi einsdæmi.
Forráðamenn Skíðastaða vilja
hins vegar ekki eiga neitt á hættu
og því mun starfsmaður fyrirtæk-
isins, sem seldi lyftuna hingað til
lands, koma og athuga hvort vír-
inn hafi nokkuð skemmst er
mastrið féll.
Eins og fyrr sagði eru möstrin
úr járni. Gerður hefur verið sam-
anburður á suðunum í þeim og
við fyrstu athugun bendir margt
til að suðan í mastrinu er féll hafi
ekki verið eins vönduð og aðrar.
Gert er ráð fyrir að lyftan fari
aftur af stað í dag eða á morgun ef
ekkert óvænt kemur fyrir. ívar
sagði að skíðafæri væri sérstak-
lega gott um þessar mundir og
hvatti hann alla rólfæra til að
koma upp í fjall og anda að sér
hreinu lofti.
Fulltrúaráð Framsóknarfélags Akureyrar:
Ákvarðanir teknar
um framboðsmál
Á fundi í fulltrúaráði Fram-
sóknarfélags Akureyrar í gær-
kvöldi var samþykkt, að þar sem
tveir framboðsaðilar til bæjar-
stjórnarkosninga í vor hefðu
ákveðið að taka ekki þátt í sam-
eiginlegu prófkjöri, væru for-
sendur fyrir þátttöku Framsókn-
arflokksins i slíku prófkjöri
brostnar.
Áður en Alþýðubandalagið og
kvennaframboðið ákváðu að
draga sig i hlé, rikti mikill áhugi
um það i fulltrúaráðinu að taka
þátt i sameiginlegu prófkjöri, að
sögn Hákonar Hákonarsonar,
formanns fulltrúaráðsins.
Hákon sagði, að á fundinum hafi
verið ákveðið, að viðhafa forval
meðal nokksbundinna Frámsókn-
armanna og skulu niðurstöður þess
vera leiðbeinandi fyrir sjö manna
uppstillinganefnd, sem kjörin var á
fundinum.
Stefnt er að því að framboðslist-
inn liggi fyrir um miðjan febrúar.
A fundinum var einnig kosið í lleiri
nefndir til undirbúnings bæjar-
stjórnarkosninga.
Tveir togarar bundnir við bryggju á Akureyri.
SKIP BUNDIN VIÐ BRYGGJU
Enn hefur fiskverð ekkl verið
ákveðið og samningar hafa
ekki tekist við sjómenn. Fiski-
skip landsmanna eru því bund-
in við bryggju og Qölmörgu
landverkafólki hefur verið sagt
upp starfi.
Rauðinúpur frá Raufarhöfn er
eitt þeirra skipa sem liggur í Ak-
ureyrarhöfn, en að sögn Ólafs
Kjartanssonar, framkvæmdas-
tjóra, var ætlunin að skipið sigldi
á veiðar í þessari viku, en þá skall
verkfallið á og ekkert varð úr
þeim framkvæmdum.
„í>að var búið að skoða gúmmí-
báta, talstöðvar og það sem nauð-
synlegt er til að skip fái haffærn-
isvottorð,“ sagði Ólafur.
VersBunarmiðstöðin í Glerárhverfi:
Fyrstu verslanirnar
verða opnaðar í vor
„ Ætlunin er að opna fyrir
vorið,“ sagði Tryggvi Pálsson,
framkvæmdastjóri Smárans,
sem byggir nýju verslunarmið-
stöðina í Glerárhverfi. „Stefnt
er að því að opna nokkrar versl-
anir í einu. Flestir munu miða
við að opna um svipað leyti og
Kaupfélag Eyfirðinga opnar
þar sína matvöruverslun.“
Enn er töluvert óselt af verslun-
arplássi í umræddu húsi. Tryggvi
gerði ráð fyrir að háir vextir og lí-
til arðsemi kæmi í veg fyrir að ein-
staklingar og fyrirtæki fjárfestu í
verslunarhúsnæði. Tryggvi sagði
að það væri stefnt að því að ljúka
við frágang utanhúss í sumar. „Er
ekki líklegt að það takist?" - Ja,
við vonum það, sagði Tryggvi að
lokum.
Útgerð smærri báta á Rauf-
arhöfn að leggjast niður?
„Eins og kunnugt er hefur
afli á vetrarvertíð fyrír sunnan
aukist gífurlega hin síðarí ár.
Nú er svo komið að Suðurland
er arðvænlegasta útgerðarstöð
Iandsins. Þjóðhagsstofnun hef-
ur tekið mið af rekstrarafkomu
þeirra báta sem þar fiska, en
það hefur aftur á móti haft það í
för með sér að rekstrargrund-
völlur smábáta hér á Norður-
landi er ákaflega örðugur,”
sagði Ólafur Kjartansson,
framkvæmdastjóri Jökuls hf. á
Raufarhöfn er hann var spurð-
ur um ástæðuna fyrir því, að
bátum á Raufarhöfn hefur
fækkað stórlega hin síðari ár.
Nú er svo komið að þar er einn
15 tonna bátur, en aðrir heima-
bátar eru mun minni.
Ólafur sagði að á árunum 74/75
hefðu verið gerðir út nokkrir
bátar 15 til 30 tonn að stærð. „Ég
gæti trúað að við höfum fengið um
2000 tonn af fiski af þessum flota
þegar best lét.“ Ólafur gat þess að
afli Rauðanúps hefði aukist
undanfarin ár, en sú aflaaukning
hefur ekki náð að brúa það gap
sem myndaðist eftir að bátarnir
hurfu. „Ástæðan fyrir þátttöku
okkar í togarakaupunum með
Þórshafnarbúum var hugsuð sem
mótvægi; til að jafna móttöku á
hráefni.“
Það kom fram í viðtalinu við
Ólaf að hann taldi að það væri
gott fyrir útgerðarstað eins og
Raufarhöfn að gera bæði út tog-
ara og smærri báta, því það er
ekki alltaf sem það fer saman að
bátarnir og togararnir afla vel. „Á
þessum árum sem ég nefndi áðan
var maður bjartsýnn á að bátaflot-
inn og Rauðinúpur yrði miklu
meira en nóg fyrir Jökul, en smám
saman hefur hallað á ógæfuhlið-
Loðnubræðsla SR er starfrækt
á Raufarhöfn og hafa margir karl-
menn á Raufarhöfn fremur kosið
að vinna þar en stunda sjóinn,
enda öruggar tekjur í verksmiðj-
unni.
Þegar rætt var við Ólaf var einn
60 tonna bátur í höfninni á Rauf-
arhöfn, Þorsteinn GK 15. Hann
hefur verið gerður út frá Raufar-
höfn, en mun verða gerður út frá
Vestmannaeyjum í vetur.