Dagur - 08.01.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 08.01.1982, Blaðsíða 12
Flakkarinn heitir nú Sjávarborg „Toldum ekki þorf á okkar framlagi fyrir norðan“ - segir rannsóknarlögreglustjóri ríkisins um ástæður þess að hann sendi ekki menn norður vegna innbrotsins hjá Höldi s.f. Flakkarinn heitir nú Sjávarborg Nú hefur endanlega verið geng- ið frá kaupum fyrirtækisins Sjávarborgar í Sandgerði á „Flakkaranum“, og sagði Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar í samtali við Dag að skipið hefði fengið nýtt nafn og héti nú Sjávarborg GK 60. Gunnar sagði að söluverð skipsins væri ekki gefið upp, en sagði að Slippstöðin kæmi sæmi- lega frá þessu, sérstaklega ef mið- að væri við að smíði skipsins hefði verið verkefni sem hefði fyllt upp í eyður hjá fyrirtækinu. Það kom fram í samtali við Skúla Ágústsson í Degi sl. þriðjudag að bæði fyrirtækið Höldur sf. og Rannsóknarlög- reglan á Akureyri hefðu óskað eftir því að menn frá Rann- sóknarlögreglu ríkisins kæmu norður þegar eftir innbrotið í Tryggvabraut 12 og kynntu sér aðstæður á innbrotsstað. Sagði Skúli að Rannsóknarlögregla ríkisins hefði ekki verið fáanleg til þess að senda menn norður, og var hann hvassyrtur í garð Rannsóknarlögreglu ríkisins. Af þessu tilefni ræddi Dagur við Hallvarð Einvarðsson rann- sóknarlögreglustjóra ríkisins, og var hann spurður um þetta. „Það er ekki rétt að orða þetta þannig að aðstoð hafi ekki fengist, við höfum haft samráð um ýmsa hluti varðandi þetta mál, en hinsvegar var ekki talin þörf á beinu framlagi af okkar hálfu þarna fyrir norðan,“ sagði Hall- varður. „En þeir sem vinna að rannsókn málsins hafa haft hér samráð og við höfum aðstoðað við rannsókn málsins með athug- unum á ýmsum hlutum sem í ljós hafa komið.“ - Var það mat lögreglunnar á Akureyri eða ykkar, að ekki væri þörf á að senda menn norður? „Það var okkar mat, sem hvíldi á sameiginlegum viðræðum. En ætli það sé ekki best að þið ræðið þetta við lögregluna á Akureyri,“ sagði Hallvarður. Hann bætti því við að það væri takmarkað hvað Rannsóknarlögregla ríkisins gæti látið af mörkum í þessu efni vegna anna. „Það væri svo sannarlega æskilegt að menn frá okkur gætu farið í ríkara mæli út á land en nú er,“ sagði Hallvarður. „Við vildum ekki að okkur yrði legið á hálsi fyrir það að gera ekki það sem við gátum og þar af leið- andi óskuðum við eftir að fá menn að sunnan,“ sagði Daníel Snorra- son rannsóknarlögreglumaður á Akureyri er við spurðum hann um þetta mál. „En svo er það aftur matsatriði hvað þeir gátu gert sem við gátum ekki gert,“ bætti Daníel við. I harðri samkeppni á þessum markaði - segir framkvæmdastjóri Odda h.f. sem hefur flutt út mikið af bobbingum til Kanada og Noregs Unnið við framleiðslu á bobbingum hjá Vélsmiðjunni Odda h.f. „Við erum í harðri sam- keppni á þessum markaði við Breta og Portúgala, en þótt við séum með hærra verð en þeir, hafa kaupendurnir komist að því að það sé hagkvæmast fyrir þá að kaupa okkar fram- leiðslu,“ sagði Torfi Guðm- undsson, framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar Odda hf. í sam- tali við Dag. Vélsmiðjan Oddi hefur á nýliðnu ári náð umtals- verðum árangri í útflutningi á bobbingum. Framleiðslan hef- ur verið flutt út til austurstrand- ar Kanada og til Noregs. „Við hófum tilraunir með þessa framleiðslu árið 1978, en það má segja að árið 1981 sé það fyrsta sem skilar verulegum árangri,“ sagði Torfi. „Verðmæti útflutn- ings á því ári nam rúmlega einni milíjón og sjö hundruð þúsund- um. Ég held að við höfum nokkuð tryggan markað, nema eitthvað óvænt komi upp, og reikna með jafn mikilli sölu á þessu ári eða jafnvei aukningu. Það er tölu- verður markaður óunninn ennþá. í Kanada eru t.d. fleiri fyrirtæki, sem við eigum eftir að kynna okk- ar framleiðslu.“ Torfi sagði að þessi útflutning- ur væri mjög erfiður vegna gengis- þróunar og að útflutningurinn gæfi minna nú í aðra hönd en þeg- ar hann hófst. „Óhagstæð gengis- þróun hefur gert okkur sérstak- lega erfitt fyrir á Evrópumarkaði, en ástandið er heldur skárra hvað varðar Kanada.“ Vélsmiðjan Oddi flutti fyrir ári í nýtt húsnæði með framleiðslu á bobbingum og má segja að nú fyrst sé fjöldaframleiðsla hafin. Að staðaldri vinna við framleiðsl- una 6 menn og framleiðslutækin eru svo afkastamikil, að fram- leiðslugeta þeirra er ekki nýtt nema að hálfu leyti. Það er því Ijóst að fyrirtækið getur annað aukinni eftirspurn og er stefnt að því að auka útflutninginn til mikilla muna. Slökkvilið Akureyrar: FÆRRI ÚTKÖLL Á SÍDASTA ÁRI Á árinu 1981 voru 59 brunaút- köll hjá Slökkvíliði Akureyrar, en voru 73 árið áður. Af þess- um 59 útköllum voru 3 utan bæjarins þar af ein aðstoð við annað slökkvilið. Stærstu eldsvoðarnir voru í gamla Kornvöruhúsinu við Kaupvangsstræti í maí og í Sjálfstæðishúsinu skömmu fyrir jól. Sjúkraútköll voru 1.067 á árinu 1981 þaraf 175 utanbæjar, en voru 1.068 þar af utanbæjar 241 árið áður. Af þessum 1.067 voru 143 neyðartilfelli. • Af hverju ekki? Eínn starfsmanna Dags, sem nýlega kom þaki yfir höfuð sér, var ekki alls fyrir löngu að velta fyrir sér vandamáium byggingariðnaðarins. Af nógu var að taka - ekki vant- aði það. Þessi starfsmaður hafði eitt sitt átt i vandræðum með að koma fyrir rúðu ( gluggakarm á annarri hæð og til þess þurfti hann að prfla upp á vinnupall. Þetta var er- fitt verk því pallurinn var sfður en svo traustur. Starfs- manninnum datt til hugar hvort einhver hönnuðurinn gæti ekki útbúið gluggakarma sem væru þeirrar náttúru, að glerið væri sett f innanfrá. Hugmyndasmiðurinn vildi halda því fram að þetta gæti sparað mönnum ómælt erfiði og hann benti m.a. á í því sam- bandi að það er hreint ekki svo lítið verk að setja rúður í háhýsi - kostnaður hlyti að verða minni ef rúðan kæmi „hina leiðfna“. • Birgðir í Straumsvík Sölutregða á áli hefur valdið því að birgðir hafa safnast fyrir hjá Álverinu f Straum- svík. Eins og gefur að skilja þýðir birgðasöfnun minni gjaldeyristekjur, en gjaldeyrir er eitt af því sem við íslend- ingar eigum víst aldrei nóg af. Þeirri spurningu var varpað fram f áheyrn S&S hvort ekki væri hægt að tengja saman sölutregðu á áli og núverandi rfkisstjórnar. M.ö.o. hvorteig- endur meirihluta f álverinu, sem hafa bæði töglin og hagl- dirnar í kaupum á hráefni og sölu á áll, komi þvf þannig fyrir að Straumsvfk safnar birgðum. Þetta er vissulega ákaflega alvarleg ásökun, en vitað er að það rfklr enginn vinaskapur milli iðnaðarráð- herra, Hjörleifs Guttorms- sonar, og Svisslendinganna sem stjórna þessu fjölþjóða- fyrirtæki. Slík fyrirtæki hafa orðið uppvfs að ýmsu miður fallegu á undanförnum árum. # Ábyrgð and- stæðinga Ábyrgð andstæðinga rfkis- stjórna er mikil. Þeir verða að kunna þá miklu list að láta ekki andúð sína, eða annað miður fallegt, stjórna gerðum sínum. Það er vitað að til eru þeir andstæðingar núverandi ríkisstjórnar sem hafa það eitt að leiðarljósi að fella rfkis- stjórnina. Þeirra draumur er að ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsen vfki fyrir hópi dug- mfkilla og leiftrandi frjáls- hyggjumanna með Gefr vlð stjórnvölinn. Öllum meðulum er beitt f þeirri baráttu. Á þvf leikur enginn vafi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.