Dagur - 08.01.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 08.01.1982, Blaðsíða 9
Hestaeigendur Akureyri Af gefnu tilefni er nauðsynlegt að benda á að óheimilt er að losa skít úr hesthúsum á land Akur- eyrarbæjar, þar með taldir vegir og vegkantar í hesthúsahverfum. Heimilt er að geyma skít á girtri hesthúsalóð yfir veturinn. Möguleiki er að losna við skítinn á vorin í samráði við garðyrkjustjóra. Hestamenn, sýnið fram á að draslbúskapur og hestamennska fara ekki saman. Haldið húsunum og umhverfi þeirra snyrtilegum. Hugmyndir eru uppi um fegrunarviku í byrjun júní. Heilbrigðisfulltrúinn Akureyri Auglýsing um lausar íbúðarhúsalóðir Lausar eru til umsóknar einbýlishúsalóðir við Jörvabyggð og Háhlíð og raðhúsalóðir við Vestur- síðu og Háhlíð, ásamt öðrum lausum íbúðarhúsa- lóðum. Upplýsingar veittar á skrifstofu byggingafulltrúa Geislagötu 9, frá 10. janúar n.k. í viðtalstíma kl. 10.30-12.00. Þeir sem óska eftir lóðarveitingu fyrir 1. febrúar n.k. athugið að umsóknir þurfa að berast til skrif- stofu byggingafulltrúa eigi síðar en 20. janúar n.k. Nauðsynlegt er að endurnýja eldri lóðarumsóknir. Akureyri, 6. janúar 1982 Byggingafulltrúinn á Akureyri Nauðungaruppboð sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á fasteigninni Granaskjóli 4 (hesthús) v/Akureyri, þingl. eign Jóns Ásmundssonar, Benedikts Ólafssonar, Óla G. Jóhanns- sonar og Þórhalls Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Bæjar- sjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri mánudaginn 11. janúar n.k. kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og siðasta á fasteigninni Tjarnarlundur 10B, Akureyri, talin eign Bjarna Sigtryggssonar, fer fram eftir kröfu Kristjáns Eiríkssonar, hrl., Jónasar A. Aðalsteinssonar, hrl. og inn- heimtumanns ríkissjóðs, á eigninni sjálfri þriðjudaginn 12.01 n.k. kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var 181., 83. og87. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 a fasteigninni Hrafnagilsstræti 27, Akureyri, þingl. eign Guðnýjar Jónsdóttur og Gylfa Snorrasonar, fer fram eftir kröfu Lands- banka (slands, veðdeild, Hreins Pálssonar, hdl., Gunnars Sólnes, hrl. og Jóns Kr. Sólnes, hdl. áeigninni sjálfri mánudag- inn 11. janúar n.k. kl. 14.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 73., 76. og 79. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á fasteigninni Grundargerði 7D, Akureyri, þingl. eign Ingva Óðinssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes, hrl. áeigninni sjálfri mánudaginn 11. janúar n.k. kl. 14.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Heimsmetin dugðu skammt Eins og kunnugt er setti Jón Páll hlyti útnefninguna en margfaldur heimsmethafi kraftlyftingamaðurinn Jóhann- ekki Jóhannes Hjálmarsson, og heimsmeistari. es Hjálmarsson frá Akureyri fjölda heimsmeta í íþrótt sinni á síðasta ári, auk þess sem hann varð heimsmeistari með niikl- um yfirburði í sínum aidurs- flokki á HM öldunga sem fram fór í Chicago í Bandaríkjunum í október. Jóhannes gerði sér lítið fyrir og setti 6 heimsmet er hann keppti sem gestnr á Landsmóti UMFl Akureyri sl. sumar. Er hann keppti á HM-öldunga í Chicago bætti hann tveimur heimsmetum við, lyfti þá 267,5 kg í réttstöðu- lyftu og samanlagður árangur hans í öllum þremur keppnis- greinunum, 597,5 kg, var einnig nýtt heimsmet. Árangur Jóhannesar á árinu var því 8 heimsmet og heims- meistaratitill. Kom það því veru- lega á óvart að Lyftíngasamband íslands skyldi geta leyft sér það að horfa framhjá þessum afrekum þegar það tilnefndi ,,Lyftinga- mann ársins“ fyrir ÍSI og íþrótta blaðið sem heiðruðu „Iþrótta- menn ársins" í öllum þeim íþróttagreinum sem keppt er í hérlendis. marssonar sem hlaut útnefning- una injög góður á árinu, en hann státar þó ekki af einu einasta heimsmeti og ekki af heimsmeist- aratitli. Væri fróðlegt að sjá hvað Lyftinga samband íslands lagði til grundvallar þegar ákveðið var að „Lyftingamaður ársins", Jón Páll Sigmarssonsésthéraðstoðahinnáttfalda heímsmeistara í hnébeygjunni. Heimsmeistari með sýningu og kennslu Andreas Cahling sýnir og kennir Akureyringum um helgina. Heimsmeistarinn í Itkams- rækt, Andreas Cahling, mun um helgina halda námskeið í líkamsrækt á Akureyri. Það fyrra verður í Líkams- ræktinni Pallas við Glerárg- ötu og hefst kl. 10.30 um morguninn, en kl. 13.30 hefst annað námskeið hjá Lyftingaráði Akureyrar í Lundarskóla. Allt áhugafólk um líkamsrækt er hvatt til að sækja námskeiðin, en þátt- tökugjald er kr. 50. Heimsmeistarinn hefur nóg að gera á sunnudaginn, því kl. 16.30 hefst sýning hans í sal Gagnfræðaskóla Akureyrar. Þar sýnir kapp- inn hinar ýmsu æfingar sem hann framkvæmir með hin- um stórkostlega líkama sínum. Lyftingaráð Akur- eyrar vill hvetja alla til þess að láta þetta ekki fram hjá sér fara. 8. janúar 1982 - DAGUR 9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.