Dagur - 08.01.1982, Blaðsíða 8

Dagur - 08.01.1982, Blaðsíða 8
VIÐRÆÐUR UM SAMEININGU KAUPFÉLAGA Nú standa yfir viðræður milli fnlltrúa frá Kaupfélagi Norður- Þingeyinga og Kaupfélags Raufarhafnar um sameiningu félaganna. Allt bendir til að samkomulag muni nást og að austur-slétta verði deild í KNÞ. KR var stofnað árið 1960, en fram til þess tíma höfðu íbuar Raufarhafnar verið innan KNÞ. Félagið hætti rekstri, m.a. vegna greiðsluerfiðleika, árið 1968 og um leið stofnaði KNÞ útibú á Raufarhöfn. Ástæður fyrir því að ekki varð af sameiningu fyrr eru ýmsar, en sl. sumar sendi stjórn félagsins út bréf til meðlima og þeir spurðir hvort þeir væru hlynntir samein- ingu. I ljós kom að lang flestir vildufaraþá leið. Þess má geta að félagafundur í KNÞ samþykkti á sínum tíma sameiningu, ef vilji væri fyrir því á Raufarhöfn, en formlegt sam- þykki vantar frá félagsmönnum í KNÞ. Þó gengið verði frá eigna- yfirfærslu á næstunni getur form- leg sameining ekki átt sér stað fyrr en eftir tvö ár, en lög mæla svo fyrir að aðalfundir þurfi að fjalla tvisvar um málið. Stærstu fyrirtækin: KEA NÚMER 7 í RÖDINNI Áramótabrenna í Innbæ Akureyrar Kaupfélag Eyfirðinga var sjöunda stærsta fyrirtæki lands- ins árið 1980, samkvæmt lista sem tímaritið Frjáls verslun hefur birt. í þessari viðmiðun er stuðst við veltu fyrirtækj- anna. Veltuhæsta fyrirtækið Fyrir 30 kr. á mánuöi áttu kost á ríflegum glaðningi sem getur gerbreyttfjárhagsstööu þinni. Haföu þessar staðreyndir í huga: Allar þær 136 milljónir sem HHi greiöirí vinninga íáreru skattfrjálsar. Milljónin sem getur lentá trompmiðanum er þaö líka. Ekkert annað happdrætti hefur hærra vinnigshlutfall. Vinningaskrá: Vinningar eru 135 þúsund talsins. Allt í beinhöröum peningum. Pú þarft ekki aö hafa fjámnálavit til aö reikna út aö þaö er svo sannarlega tilvinnandi aö spila meö . >: -jýCsrxti' 9 @ 200.000 - 1.800 000,- 9 — 5Ö.000.- 450.000 - 9 — 30.000- 270.000 - 198 — 20 000 - 3.960.000- 1.053 — 7.500- 7.897 500 - 27.198 — 1.500 - 40.797.000 - 106 074 — 750 - 79 555.500 - 134.550 134 730 000 - 450 3 000 - 1.350.000- 135.000 136.080.000- Freistaöu gæfunnar! r ••■•■ ■■ ••• ■■■■■■■ ■ •■• • •• •■•••■■ • ••• ••• • ••••• • ••• • B •■••■ ■■ ■•••■ • ■■ • ■■ ■ ■■ ■■•• ■■• • ■ L ■■■■■ ■■■ HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS hefur vinninginn var Samband íslenskra sam- vinnnfélaga. Röð efstu fyrirtækja var að öðru leyti sú, að í öðru sæti var Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, þá Landsbanki íslands, íslenska álfélagið, Sölusamband ísl. fisk- framleiðenda, Olíufélagið, Kaup- félag Eyfirðinga, Flugleiðir, Áf- engis og tóbaksverslun ríkisins og Olíufélagið Skeljungur var í 10. sæti. Ef miðað er við starfsmannafj- ölda þessara tíu veltuhæstu fyrir- tækja árið 1980, er Sambandið í fyrsta sæti með 1250 starfsmenn, Flugleiðir í öðru sæti með 1124 starfsmenn og Kaupfélag Eyfirð- inga í þriðja sæti með 1057 starfsmenn. Starfsmannafjöldi er miðaður við slysatryggðar vinnu- vikur. í söngför til Færeyja Samkór Raufarhafnar hefur hafið vetrarstarf sitt. Ætlunin er að halda tónleika í Hnitbjörgum í mars nk. og að fara í söngferðalag til Þórshafnar og víðar í sumar. Dagskráin í vetur verður byggð á fslensku efni, ásamt þjóðlögum frá Norðurlöndunum, Englandi og Þýskalandi. Leikskóli á Raufarhöfn Frá því um miðjan nóvember hefur staðið yfir tilraun með að reka leikskóla á Raufarhöfn. Hefur verið boðið upp á að taka böm þangað í gæslu allan daginn fyrir 750 krónur á mán- uði eða hálfan daginn fyrir 450 krónur. Auk þess hefur verið veittur afsláttur fyrir böm ein- stæðra foreldra. Litið hefur verið á þessa opnun leikskólans sem tilraun, og mun ákvörðun verða tekin um áfram- hald þegar ljóst er hvort þörfin sé það mikil að hún réttlæti það að reka leikskóla yfir veturinn. Þátt- taka hefur hinsvegar ekki verið mikii, og ef ekki rætist úr henni má búast við lokun skólans fram á sumar a.m.k. 8 DAGUR - 8. janúar 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.