Dagur - 08.01.1982, Blaðsíða 5
Sýslunefnd Austur-Húnavatnssýslu:
Nauðsyn að Blönduvírkjun
verði næsta stórvirkjun
Sýslunefnd Austur-Húna-
vatnssýslu hefur gert samþykkt
um Blönduvirkjun, þar sem
FuIItrúafundur Landssamb-
andsins gegn áfengisbölinu,
sem haldinn var í lok síöasta
árs, skoraði á stjórnvöld og all-
an almenning að vinna af heil-
um hug og djörfung gegn því
þjóðarmeini sem áfengisneysl-
an veldur.
Fundarmenn minntu á nokkur
atriði sem draga munu úr áfengis-
neyslu - og þar með afleiðingum
hennar - verði þeim framfylgt.
Hvatt er til að vínveitingum á veg-
um hins opinbera verði hætt með
öllu og þann veg sýnt ómetanlegt
fordæmi. Með skattgreiðsluregl-
um verði ýtt undir að samkom-
uhús og matsölustaðir selji ekki
áfengi, og mætti gera það með
skattaívilnunum.
Leyfisgjald til vínsölu verði
hækkað verulega og þess gætt við
setningu skattareglna og álagn-
ingu skatta að enginn einstakling-
ur eða fyrirtæki geti með lögleg-
um hætti hagnast á sölu áfengis.
Allt áfengi verði greinilega
merkt sem hættulegt eitur- og
vanabindandi fíkniefni með var-
úðarmiðum á neysluumbúðir.
Afbrot, slys og dauðsföll, sem
rekja má til áfengisneyslu, verði
skráð, svo og kostnaður eftir því
sem við verður komið, og þær
skýrslur birtar opinberlega þann-
ig að hverjum einum sé auðvelt að
bera þessi gjöld samfélagsins
saman við tekjur ríkissjóðs af áf-
engissölu.
Beitt verði þeim hömlum sem
Alþj óðaheilbrigðismálastofnunin
hefur bent á til að draga úr áf-
engisneyslu, svo sem hækkuðu
verðlagi og fækkun útsölustaða.
Öll áfengissala frá Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins verði skráð
á nafn, svo sem gert er við löglega
sölu ýmissa annarra vanabindandi
efna.
Hætt verði að senda áfengi í
pósti eða á annan hátt til staða þar
sem ekki eru áfengisútsölur.
Nýir útsölustaðir áfengis verði
ekki opnaðir nema meirihluti af
íbúum staðarins eða bæjarhverf-
isins hafi látið í ljósi ótvíræðan
vilja sinn til þess við almenna at-
kvæðagreiðslu, og gömlum útsöl-
ustöðum verði lokað að fullu þeg-
ar meirihluti íbúanna á staðnum
eða í bæjarhverfínu krefst þess
með sama hætti.
Framfylgt verði áfengislögum
og engin undanlátssemi sýnd, þar
með stöðvaður innflutningur á
sterkum bjór, innflutningur og
bruggun úr hraðvíngerðarefnum,
og hvers konar auglýsingastarf-
semi bein og óbein stöðvuð.
Ríkisfjölmiðlum verði beitt
markvisst til þess að upplýsa og
undirstrika hve varhugavert efni
áfengi er. Þá skal varað við þeirri
óraunhæfu og villandi mynd sem
oft kemur fram í því skemmtiefni
sem flutt er, t.d. í sjónvarpi.
Stjórnvöld auki mjög verulega
fjárframlög til Áfengisvarnarráðs
fram kemur, að nauðsyn sé á að
Blönduvirkjun verði næsta
stórvirkjun landsmanna vegna
svo að grundvöllur skapist til skip-
ulegra, markvissra og virkra fyrir-
byggjandi aðgerða að frumkvæði
opinberra aðila.
Þá leggur fundurinn áherslu á
stóraukin framlög frá ríki og
bæjar- og sveitarfélögum til bind-
indissamtaka og annarra sem
vinna forvarnarstarf í áfengismál-
öryggis í raforkumálum og upp-
byggingu atvinnu heima í hér-
aði. í samþykktinni er ríkis-
stjórnin því hvött til þess, að
leysa virkjunarmál landsmanna
í samræmi við það. Ályktunin
var samþykkt með níu atkvæð-
um gegn einu, en einn nefndar-
manna var fjarverandi. Fulltrúi
Bólstaðahlíðarhrepps var and-
vígur tillögunni, en fulltrúi
Blönduósshrepps var fjarver-
andi, Hreppsnefnd Blönduóss-
hrepps hefur hins vegar lýst sig
fylgjandi virkjunartilhögun
eitt.
Ályktun sýslunefndar A-
Húnavatnssýslu er svohljóðandi:
1. Það er þjóðarnauðsyn vegna
öryggissjónarmiða í raforkumál-
um að Blanda verði næsta stór-
virkjun.
2. Það er staðreynd að virkjun
Blöndu er langhagkvæmasti virkj-
unarkostur, sem völ er á, og fjár-
hagur þjóðarinnar leyfir ekki
stórauknar erlendar lántökur
vegna óhagkvæmari virkjunar-
kosta.
3. Það liggur fyrir að 5 af 6
hreppum, sem land eiga á Auð-
kúluheiði og Eyvindarstaðaheiði,
hafa þegar samþykkt að ganga til
samninga um virkjunarleið 1 eða
óskað eftir frekari viðræðum um
fyrirliggjandi samningsdrög.
Nauðsyn ber því til að halda
samningaviðræðum áfram og taka
tillit til sanngjarnra og eðlilegra
óska heimamnna um breytingar á
samningsdrögum.
4. Taka þarf upp samræmda
stefnu um atvinnuuppbyggingu,
sem miði að því að koma á fót
hæfilega stórum iðnfyrirtækjum
til nýtingar raforku. Þannig séu
sköpuð ný atvinnutækifæri heima
i héraði samhliða því að byggingu
virkjunar lýkur. Sýslunefnd vill
bjóða sýslunefndum Skagafjarð-
arsýslu og Vestur-Húnavatns-
sýslu ásamt bæjarstjórn Sauðár-
króks til samstarfs um slíka
atvinnuþróun þessara héraða.
Hver aðili tilnefni tvo menn í við-
ræðunefnd, sem taki strax til
starfa, þegar endanleg ákvörðun
um virkjun Blöndu liggur fyrir.
5. Sýslunefnd leggur þvf ríka
áherslu á að ríkisstjórnin leysi
virkjunarmálin á þann veg að
Blanda verði valin næsta stór-
virkjun landsmanna.
um.
8. janúar 1982 - DAGUR 5
Heilshugar gegn
áfengisneyslu