Dagur - 08.01.1982, Síða 11
Molar
af borðum bæjarstjórna
Akureyri:
Heiðrún ráðin
Fyrir skömmu var auglýst staöa
við afleysingar á Félagsmálastofn-
un. Þrír sóttu um: Haraldur
Hansen, Heiðrún Steingrímsdótt-
ir og Þorsteinn Friðriksson. Sam-
þykkt var að ráða Heiðrúnu til
starfsins frá og með 1. janúar.
Jörfabyggð
Bygginganefnd hefur samþykkt
að ný gata sunnan Suðurbyggðar
skuli nefnd Jörfabyggð.
Rífa hús
Bygginganefnd hefur samþykkt
að rífa megi húsið nr. 10 við Gler-
árgötu.
Hundagjald
Heilbrigðisnefnd hefur komist
að þeirri niðurstöðu að eigendum
hunda beri að greiða kr. 600 í leyf-
isgjald fyrir árið 1982.
Nefnd um fjar-
skiptastrengi
Á fundi bæjarstjórnar 24. nóv.
sl. var samþykkt að kjósa 5 manna
nefnd, sem á að gera tillögu til
bæjarstjórnar um á hvern hátt
skuli af bæjarins hálfu staðið að
lögn og rekstri fjarskiptastrengja í
bænum í framtíðinni. Bæjarráð
hefur lagt til að eftirfarandi menn
skipi nefndina: Freyr Ófeigsson,
Gísli Ólafsson, Heiðarlundi 2j,
Gunnlaugur Fr. Jóhannsson, Ing-
ólfur Árnason og Sólveig Gunn-
arsdóttir.
Vilja kaupa Ljósstaði
Akureyrarbæjar hefur áhuga á
að kaupa húseignina Ljósstaði í
Glerárhverfi og hefur bæjarstjóra
verið falið að annast málið.
Nokkur ný starfsleyfi
Heilbrigðisnefnd hefur fjallað
um nokkur starfsleyfi og sam-
þykkt þau. Þar á meðal er starfs-
leyfi fyrir verslun Gunnars
Skjóldal í húsnæði á Gleráreyr-
um, starfsleyfi fyrir „Brauðstofu"
að Skólastíg 5,starfsleyfi fyrir
líkamsræktarstöðina Pallas, Gler-
árgötu 26 og starfsleyfi fyrir
Tískuverslunina Sif, Kaupangi.
Húsavík:
Lóðaúthiutun á
Húsavík
Bygginganefnd Húsavíkur kom
saman á fund þann 17. desember
sl. Fundarefni: Úthlutun bygging-
arlóða og var samþykkt að úthluta
eftirtöldum lóðum:
Stórhóll 2, Hafliði Gunnarsson,
Stórhóll 4, Ólafur G. Emilsson,
Stórhóll 6, Þórólfur Aðalsteins-
son, Stórhóll 8, Þórarinn Ólafs-
son, Baughóli 54, Daníel Guð-
jónsson, Baughóli 56, Guðmund-
ur A. Hólmgeirsson,Baughóll52,
Jóhann Þór Kröyer.
Bygginganefnd samþykkti að
leggja til við bæjarstjórn að göt-
unni í brekkunni frá Hlíð að Þórs-
hamri verði gefið nafnið Skála-
brekka. Nefndin samþykkti út-
hlutun eftirtalinna lóða við þessa
nýju götu (Skálabrekku):
Skálabrekka 7, Egill Olgeirsson,
Skálabrekka 11, Tryggvi Krist-
vinsson, Skálabrekka 13, Frið-
björn Þórðarson.
Samþykkt var að fela bygginga-
fulltrúa að bjóða þeim umsækj-
endum sem ekki fengu úrlausn,
að sækja um lóðirnar tvær í Urð-
ar- og Steinagerði. Einnig var
byggingafulltrúa falið að halda á
lofti og að húsbyggjendum, hin-
um góðu raðhúsalóðum í Stórhól.
Eignarrétturinn best
tryggður með samningum
Stjórn iandeigendafélags Aust-
ur-Húnavatnssýslu hélt fund að
Stóru-Giljá í byrjun mánaðar-
ins. Vegna samningaviðræðna
um Blönduvirkjun samþykkti
fundurinn einróma svofellda
ályktun:
Stjórn Landeigendafélags
Austur-Húnavatnssýslu hvetur
alla íslenska bændur til að standa
dyggilega vörð um eignarétt sinn
að landi, jafnt í byggð sem í
óbyggð. Jafnframt skal bent á að
rétti til að eiga og nota landið
hljóta og að fylgja þær skyldur að
bændur séu reiðubúnir til að láta
nokkuð land af hendi gegn sann-
gjarnri greiðslu eða bótum í öðru
formi, ef gera þarf nauðsynlegar
framkvæmdir á landinu til hags-
bóta fyrir einstök byggðarlög eða
þjóðfélagið í heild. Með virkjun
Blöndu fer mikið og verðmætt
land undir miðlunarlón, aðrenn-
slisskurði og önnur mannvirki við
virkjunina. Land þetta hefur ve-
rið notað til beitar fyrir búpening
bænda frá upphafi Islandsbyggð-
ar. Stjórn Landeigendafélags
Austur-Húnavatnssýslu hvetur
landeigendur til að ná samningum
við virkjunaraðila. Telur stjórnin
að á þann hátt verði best tryggður
eignarréttur landeigenda í fram-
tíðinni.
varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur-
um, plötuspilurum, segulbandstækjum, bíl-
tækjum, talstöðvum, fisklleltartækjum og sigl-
ingartækjum.
isetning á bíltækjum.
Orgeltónleikar
Antonio Corveiras
í Akureyrarkirkju
Til lesenda
Vegna bilunar i setningarbúnaði
Dagsprents kemur Helgar-Dagur
ekki út
Kabarett á Dalvík
Dalvík 6. janúar
Um jólin hefur verið sýndur hér á Dal-
vík kabarett á vegum Leikfélags Dal-
víkur. Hér er um heimatilbúinn kab-
arett að ræða. Höfundar eru Þorsteinn
Aðalsteinsson, Kristján Hjartarson
og Björn Þorleifsson. Fjallað er um
menn og málefni á liðnu ári á gaman-
saman hátt.
Leikendur eru 10 og flestir af
yngri kynslóðinni. Margir eru í
fyrsta sinn á sviði. Leikstjóri er
Kristján Hjartarson. Hljómsveitin
Coma sér um undirleik. Búið er að
sýna kabatettinn 5 sinnum og oftast
fyrir fullu húsi og við mikinn fögnuð
áhprfenda.
Á síðustu sýningu, sl. sunnudag.
urðu margir frá að hverfa. Því hefur
verið ákveðið að hafa aukasýningu
annað kvöld, föstudagskvöld kl. 21.
Þetta er í annað sinn sem L.D. sýnir
kabarett um jólin. Kunna Dalvík-
ingar og Svarfdælingar vel að meta
og bíða spenntir eftir næsta kabarett.
AG
Miklar hafnar-
framkvæmdir fyrir-
hugaðar á Raufarhöfn
Raufarhöfn, 5. janúar.
Miklar hafnarframkvæmdir
standa fyrir dyrum á Raufarhöfn í
sumar, en fjárveiting til hafnar-
mála hér á þessu ári er 2 milljónir
króna. Ætlunin er að ljúka gerð
smábátahafnar og byrja á löndun-
arkanti, sem kemur fyrir neðan
frystihúsið. Viðlegupláss í höfn-
inni er mjög lítið, sem sést best á
því þegar loðnuskip koma inn,
skapast oft hreint vandræða-
ástand.
G.H.
Húsmunamiðlunin
auglýsir:
Svefnsófar fleiri gerðir, skatt-
hol, skrifborð og símaborð,
nýkomið.
Bíla- og húsmunamiðlunin
Hafnarstræti 88
Simi: 23912
Spánski orgelleikarinn Antonio
Corveiras, sem undanfarin ár
hefur starfað m.a. sem organleik-
ari við Hallgrímskirkju í Reykja-
vík, heldur tónleika í Akureyrar-
kirkju á föstudag og laugardag og
hefjast báðir tónleikarnir kl.
20.30.
Corveiras hefur áður haldið
organtónleika í Akureyrarkirkju,
haustið 1980. Á efnisskrá föstu-
dagstónleikanna verða m.a. verk
eftir Froberger, Bach, Schumann
og fleiri, en á tónleikunum á laugar-
dagskvöld verða meðal annars verk
eftir C. Franck, Brahms, Vierne,
Satie og fleiri. Aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn.
AUGLÝSIÐ í DEGI
Alþýðu-
flokksfólk
Aöalfundur fulltrúaráös al-
þýöuflokksfélaganna veröur
haldinn laugardaginn 9. jan.
’82 kl. 14.00 aö Strandgötu 9.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalf.st.
Prófkjörsmálefni.
Stjórnin.
Nýir símar
Auglýsingar og afgreiðsla: 24222
Ritstjórn: 24166 & 24167
Dagur, Strandgötu 31, Akureyri.
'^^^^^^^^m—mmmmmmmmmmmimm^mmm
: C& jaflúa/v1 ?.82 n iPaPMF|í1 1