Dagur - 21.01.1982, Blaðsíða 1
65. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 21. janúar 1982
7. tölublað.
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
Fastur starfsmaður útvarpsins
hefji störf á Akureyri í vor
„Útvarpið stefnir að því að
fastur starfsmaður taki til starfa
á Akureyri í vor og allir virðast
sammála um að þetta sé gott
mál, sem þurfí að hrinda í fram-
kvæmd sem fyrst“, sagði Hörð-
ur Vilhjálmsson, fjármálastjóri
Ríkisútvarpsins, í viðtali við
Dag. Hann var staddur á Akur-
eyri ásamt Jónasi Jónassyni, en
þess hefur verið farið á leit við
Jónas, að hann taki að sér upp-
byggingu starfseminnar á Ak-
ureyri.
„Þetta er fyrst og fremst vett-
vangskönnun til að safna upplýs-
ingum um það, hvað hægt sé að
gera. Nú eru uppi hugmyndir um
að endurnýja tækjakostinn í
hljóðhúsinu við Norðurgötu,
breyta innréttingum og taka allt
húsið í notkun, þ.á.m. 25 ferm.
viðbyggingu við austurgaflinn.
Þar mætti hafa upptökutæki,
stúdíó gæti veri á neðri hæðinni,
sem hefur verið nær ónotuð, og
skrifstofa á efri hæð, þar sem upp-
tökuherbergið er nú. Það verður
sem sagt reynt að bæta aðstöðuna
í þeim húsakynnum sem fyrir
hendi eru a.m.k. fyrst í stað“.
„Nú hefur það oft reynst svo,
að þó að starfsmenn útvarpsins
hafí haft vilja til að koma ein-
hverju í framkvæmd, þá hefur
það ekki alltaf gengið, er ekki
svo?“
„Þetta mál hefur haft nokkurn
aðdraganda. Fjórðungssamband
Norðlendinga ályktaði á sínum
tíma að ráðinn yrði fastur starfs-
maður með aðsetur á Akureyri og
nefnd sem menntamálaráð-
herra skipaði skilaði fyrir áramót
einróma áliti í þessa veru. Vilji út-
varpsmanna til að auka starfsem-
ina úti á landsbyggðinni kom ótví-
rætt fram 1979, þegar hljóðhúsið
svokallaða var keypt á Akureyri.
Það er rétt, að þau kaup gengu
ekki þrautalaust fyrir sig, því það
tók á annað ár að fá heimild til að
kaupa þessa ódýru aðstöðu.
Starfsmenn ríkisútvarpsins voru
hins vegar staðráðnir í að koma
þessu máli í höfn. Því var byrjað á
því að leigja húsið. Starfsmenn
Helgarferð til Kaupmannahafnar:
Ðeint flug
frá Aku rey r i
Það hefur lengi verið áhugamál
Akureyringa og fleiri Norð-
lendinga að fljúga beint frá Ak-
ureyri til útlanda, og þann 25.
febrúar getur sá draumur orðið
að veruleika. Þá mun Ferða-
skrifstofa Akureyrar gangast
fyrir helgarferð til Kaup-
mannahafnar, og verður haldið
af stað frá Akureyri með
Boeingþotu Flugleiða kl. 16 á
fimmtudag. Fl0gið verður tíl
Keflavíkur og höfð stutt við-
dvöl svo farþegar geti versl-
að í Fríhöfninni. Um kl. 18
verður svo haldið í loftið á ný,
og stefnan sett á Kaupmanna-
höfn.
Þessi ferð er fyrsta tilraun
Ferðaskrifstofu Akureyrar og
Flugleiða til þess að koma til móts
við fjölmargar óskir Akureyringa
og Norðlendinga um beint flug til
útlanda, en telja verður að hér sé
um beint fiug að ræða þótt fæti
verði stungið niður í Fríhöfninni á
útleið. Flugið heim á sunnudegin-
um frá Kaupmannahöfn verður
hinsvegar beint til Akureyrar.
Gististaður í Kaupmannahöfn
er Hótel Palace, 4 stjörnu hótel
sem stendur andspænis hinu
þekkta ráðhúsi Kaupmannahafn-
ar við Ráðhústorg. Hótelið er
mjög miðsvæðis og stutt til ýmissa
þeirra lystisemda sem kóngsins
Kaupmannahöfn bíður upp á.
Verð er kr. 3.450 og fararstjóri
verður Arnar Einarsson.
Ferðaskrifstofa Akureyrar hef-
ur gert uppkast að hugsanlegri
dagskrá í ferðinni, en að sjálf-
sögðu verður Kaupmannahöfn
iðandi af lífi og fjöri öll kvöldin
eins og venjulega, fyrir þá sem
hyggjast skoða næturlífið.
Smám saman hverfa gömlu húsin - sum eru rifin en önnur brenna. Slökkvilið Dalvíkur kveikti í þessu húsi fyrir
skömmu og æfðu slökkviliðsmenn sig síðan í að slökkva eldinn, en að lokum var það látið brenna tii grunna. Skammt
frá þessu húsi var annað sem brennuvargar kveiktu í fyrir jól. Þeir hafa ekki fundist. - Myndina tók Rögnvaldur.
skutu saman í fyrstu tveggja mán-
aða leiguna og útvarpið greiddi
fyrir næstu tvo mánuði og þá loks
var húsið keypt“, sagði Hörður
ennfremur.
„Á árunum 1979 og 1980 var
ómaklega farið með Ríkisútvarp-
ið, þegar afnotagjöldin voru svo
lág að allt stefndi í bullandi tap-
rekstur. Þá var ekki hægt að huga
að neinum framkvæmdum. Nú
horfir hins vegar betur, því jafn-
vægi var í rekstrinum á síðasta ári.
Því verður vonandi hægt að hefja
þessa starfsemi á Akureyri með
vorinu, en reynslan sker úr um
framhaldið", sagði Hörður að
lokum.
Jónas Jónasson sagði, að enn
væri ekki fullráðið hvort af því
yrði að hann flyttist norður. Hann
sagði að sér litist hins vegar mjög
vel á hugmyndina, enda hefði
hann árum saman verið með hug-
myndir um aukna starfsemi Ríkis-
útvarpsins á landsbyggðinni og
hefði í sínu starfi reynt að vinna í
þeim anda.
Hörður vilhjálmsson, fjármálastjóri ríkisútvarpsins (t.v.) og Jónas Jónasson.
Myndin er tekin í hljóðhúsinu við Norðurgötu. Mynd: áþ.
Togaraútgerð á Akureyri 1981:
Meiri afli á
færri dögum
— heldur en árið á undan
Á síðasta ári varð heildarafli
akureyrsku togaranna tæplega
24.950 lestir, á móti tæplega
22.500 árið 1980. Veiðiferðir
togaranna 5 voru samtals 127 á
móti 123 árið á undan, veiði-
dagar voru 1391, 1306 árið á
undan, og úthaldsdagar voru
1753, en 1679 árið 1980. Afli
hvern veðidag varð að jafnaði
rúmlega 17,9 tonn, en 17,2
tonn árið áður.
Aflahæstur togaranna varð
Kaldbakur með 6.005 lestir, en
hann varð jafnframt aflahæstur
stóru togaranna yfir allt landið.
Kaldbakur hafði fæsta úthalds-
daga, eða 343, veiðidagar voru
274 og afli hvern veiðidag að jafn-
aði 21,9 tonn. Togarinn fór 25
veiðiferðir, brúttóverðmæti
aflans var 20 milljónir kr og með-
alverð á hvert kíló 3 kr og 33 aur-
ar.
Svalbakur var með 344 úthalds-
daga í 25 veiðiferðum, aflinn varð
5.295 tonn, veiðidagar voru 280
og afli á veiðidag 18,9 tonn.
Brúttóverðmæti aflans varð 17,3
milljónir og meðalverð 3,27 kr.
Harðbakur var með 346 úthalds-
daga, aflinn varð tæplega 5.410
lestir, veiðidagar 281 og afli á
veiðidag tæplega 19,3 tonn. Veið-
iferðir voru 25, brúttó-
verðmæti afla 17,2 milljónir og
meðalverð 3,19 kr. Sléttbakur
hafði 358 úthaldsdaga, veiddi
4.864 tonn á 295 veiðidögum í 26
veiðiferðum. Afli hvern veiðidag
varð 16,5 lestir, aflaverðmæti 15,6
milljónir og meðalverð 3,20 kr.
Sólbakur var með 362 úthalds-
daga, fékk rúmlega 3.372 lestir á
261 veiðidegi í 26 veiðiferðum.
Afli hvern veiðidag varð að jafn-
aði 12,9 lestir, brúttóaflaverð-
mæti 12,1 milljón og jafnaðarverð
3,61 kr, sem var hæsta meðalverð-
ið hjá togurum Ú.A.