Dagur - 21.01.1982, Side 6
UfcsiUUUsU
r 2-*»7. í v. ?' *■, **:» :XaO
liteiiÉ
■ •
Fablon sjálflímandi
dúkur
I miklu úrvali
Höskuldur Jónsson á Glóð frá Árgerði.
Fyrstur fer Haraldur Guðmundsson á vindsokkóttum hesti frá Bólu í Skagafirði. Myndin var
tekin þegar hestamenn voru á leið á landsmót fyrir sunnan.
6 - DAGUR 21. janúar 1982
Þessi mynd var tekin þegar Léttir átti 50 ára afmæli. Þess minntust félagar
með fagnaði á Hótel KEA.
í" aí':
- Sem kólfur loftið kljúfi klár-
inn fer - raulaði tíðindamaður
Dags, þegar hann valdi 22909.
Það er síminn hjá Birni Mika-
elssyni, formanni Hestamanna-
félagsins Léttir á Akureyri.
Björn kom í símann og eftir
nokkur orðaskipti féllst hann á
að leyfa Degi að eiga við sig
viðtal um hesta og hestamenn.
Björn setti þó tvö skilyrði: Það
yrði að vera minnst á árshátíð
Léttis og og á nauðsyn þess að
félagsmenn væru tilbúnir til að
starfa á vegum félagsins, enda
af nógu að taka. Þetta tvennt
var samþykkt og hefst nú við-
talið við formann Hestamanna-
félagsins Léttir.
Búnir að taka
hross á hús
Ef þú vilt eignast hest og byggja
yfir hann hús er það skilyrði sett af
hálfu bæjaryfirvalda á Akureyri
að þú gerist félagi í Létti. Þetta
ætti varla að fara fyrir brjóstið á
neinum enda virðist félagið vera
áhugavekjandi, a.m.k. er nóg að
gerast á vegum þess. Félagsmenn
hafa komið sér vel fyrir í hesta-
mannahverfi sem nefnist Breið-
holt, og er skammt vestan og ofan
við bæinn. Einnig eru þeir að
hasla sér völl í landi Lögmanns-
hlíðar, nánar tiltekið í Hlíðar-
holti, en þar verður framtíðarað-
staða félagsins. í Hlíðarholti er
unnið að gerð skeiðvallar og er
farið að huga að byggingu húss í
Breiðholti. Félagsmenn hafa
fengið afnot af Sörlastöðum í
Fnjóskadal og þar hafa þeir í
hyggju að starfrækja einskonar
orlofshús. Keppnisaðstöðu hefur
félagið á Melgerðismelum í sam-
vinnu við tvö önnur hestamanna-
félög í Eyjafirði. Melgerðismelar
eru eitt besta keppnissvæði
landsins. Alls eru um þrjú hundr-
uð félagsmenn í Létti og hús í
Breiðholti eru talin vera um eitt
hundrað.
- Hvernig er vetrarstarfínu
háttað? Hvað eruð þið hestamenn
að gera þessa dagana?
Menn eru nýbúnir að taka hross
á hús, og nú eru félagsmenn að
járria og temja. Að sjálfsögðu er
svo riðið út þegar það er hægt. Á
veturna reynum við að halda ís-
kappleika um páskaleytið og er
það íþróttadeild Léttissem annast
þá. Það eru líka margar nefndir í
gangi hjá Létti á veturna og ég
gæti nefnt skemmtinefnd sem sér
um árshátíð félagsins, sem að
þessu sinni verður fimmta febrú-
ar. Fræðslunefnd er til og eins og
nafnið bendir til sér hún um
fræðslufundi.
Framtíðaraðstaða
í Hlíöarholti
- Hvernig stendur á því að þið
eruð að byggja nýjan skeiðvöll í
Hlíðarholti, þegar þið hafíð að-
gang að einum besta skeiðvelli
landsins á Melgerðismelum?
- í Hlíðarholti verður aðalað-
staða félagsins í framtíðinni og
Melgerðismelar eru einfaldlega of
langt í burtu til að geta þjónað
okkur að öllu leyti. Þeir eru góðir
fyrir öll stærri mót, en ég vil benda
á að við höfum orðið að halda
firmakeppnina syðst á Þórunnar-
stræti. Það er ekki heppilegur
staður fyrir keppni eins og firma-
keppnina.
- Léttir hefur einnig í hyggju
að byggja hús í Breiðholti, en
framtíðaraðstaðan er í Hh'ðar-
holti. Skýtur það ekki skökku
við?
- Nei, það er lang að bíða eftir
því að Hlíðarholt verði eins og
það á að vera og í Breiðholti eig-
um við lítinn hringvöll og tamn-
ingagerði. Auk þess er bróður-
partur félagsmanna þar með að-
stöðu. Þetta á að verða vísir að
félagsheimili. Við ætluðum að
byrja s.l. haust, en veðráttan kom
í veg fyrir það, en það verður haf-
ist handa í vor. Aðalfélagsheimili
Léttis verður að sjálfsögðu í Hlíð-
arholti, en Breiðholt er orðið svo
stórt að annað er óforsvananlegt
en að koma þar upp húsi. Það
mun líka eflaust nýtast okkur í
sambandi við reiðskólann, sem
við höfum rekið í samvinnu við
æskulýðsráð. Það er starfsemi
sem hefur heppnast mjög vel og
margur hestamaðurinn hefur ein-
mitt byrjað í reiðskólanum.
Og í fyrsta framhjáhlaupi má
geta þess að Léttir hefur nána og
góða samvinnu við þýskt hesta-
mannafélag. Allt þetta krefst þess
að við höfum einhverja aðstöðu
sem því nafni má kalla. í dag leigir
Léttir eitt herbergi út í bæ þar sem
haldnir eru fundir.
Loks að fá síma
í Breiðholt
- Ef ég man rétt þá hefur það
verið gagnrýnt að enginn sími er í
Breiðholti. Stendur það eitthvað
tilbóta?
- Já, það er rétt að hverfið hef-
ur verið símalaust og er það enn
þann dag í dag. En þessi mál
standa til bóta. Með fjárhagsað-
stoð Brunabótafélags íslands
verður hægt að koma á símasam-
bandi í vetur. Það er búið að
leggja símastreng upp eftir og
innan skamms verður tengt. Þetta
er eingöngu hugsað sem neyðar-
sími með sambandi við slökkvi-
stöð. Síminn verður rétt hjá
tamningagerðinu. Eg er að sjálf-
sögðu afskaplega ánægður með
það fá loks síma í Breiðholtið því
tvisvar hefur átt sér stað stórbruni
og erfitt hefur verið að ná sam-
bandi við slökkvilið. Með öðrum
orðum er þetta sjálfsagt öryggis-
atriði.
- Þegar þú talar um öryggi
kemur méríhugh vort hestamenn
séu nægilega vel merktir þegar
þeir eru á hestum sínum að ríða
úti á vegum?
skortir stundum á það. Á síðasta
ári urðu t.d. tveirhestamenn fyrir
bílum. En þetta hefur lagast
mikið á undanförnum árum og
götur sem hestamenn fara mikið
eftir eru sífellt betur og betur
lýstar.
Ég get t.d. nefnt Súluveg frá
Möl og Sandi að Breiðholtshverfi,
einnig er búið að lýsa upp veginn
frá Möl og Sandi og í áttina að
Hlíðarholtshverfinu. Hins vegar
er það rétt að það komi fram hér
að bæjaryfirvöld hafa ekki staðið
sig nógu vel hvað varðar lagningu
vegar áð Breiðholti og gerð reið-
gatna, en vonandi er ekki langt að
bíða að þær framkvæmdir geti
hafist. Umferð ríðandi manna og
bifreiða fer alltaf illa saman. En
auðvitað mætti hvetja hestamenn
til að vera með endurskinsmerki,
bæði á sér sjáifum og á hestunum.
Einnig mætti benda hestamönn-
um á baujuljós, sem fást í veiðar-
færaverslunum. Þau er hægt að
setja á reiða á hnökkunum og þar
koma þau að verulegu gagni.
Dýrt og tekur
minni tíma
- Er ekki dýrt að vera áhuga-
maður um hestamennsku og tek-
urhún ekkimikinn tíma?
- Jú, það fylgir þessu mikill
kostnaður, rétt eins og svo mörg-
um tómstundaiðjum og vissulega
fer mikill tími í þetta. Hestarnir
eru lifandi verur og eigendum
þeirra ber að fara vel með þá og
það verður vart gert nema að
mikill tími fari í það. Sem betur
fer er það svo með flesta, ef ekki
alla, félaga í Létti að þeir fara
mjög vel með hestá sína.
Þú spyrð um hve mikið hestur
kosti. Ég gæti trúað að þú fáir
varla hest undir 10 þúsund
krónum, en ef þú vilt fá góðan
hest hækkar verðið ört. Reiðtygi
kosta einnig sitt. Það er áætlað að
vetrarforði fyrir hest sé um 10
hestburðir eða 1 tonn. Hvert kíló
Bjöm Mikaelsson, formaður Léttís.
Verkefnin óteljandi
- Rætt víð Björn Mikaelsson formann
Hestamannafélagsins Léttis
getur kostað frá einni upp í tvær
krónur.
- Þeim fjölgar stöðugt sem eru
tilbúnir að greiða fyrir hest, reið-
tygi, hey og hús. Með öðrum
orðum, þá fjölgar hestum í bæjar-
landinu. Er ekki hætta á að það sé
ofbeitt?
- Nei, við teljum að svo sé
ekki. Léttir á góða sumarhaga þar
sem eru Kaupangsbakkar, þá hef-
ur félagið jarðirnar Hrafnsstaði
og Kýfsá á leigu frá Akureyrarbæ.
Tilfellið er að við gæturii tekið við
mun fleiri hrossum í þessa haga.
En málið er það að Akureyrarbær
hefur úthlutað einstaklingum
landspildum til beitar og ræktun-
ar. Það eru sumar af þessum spild-
um sem eru ofbeittar. Félags-
menn í Létti eru stimplaðir eftir
þessum skikum.
Því má bæta við að berum
reglulega á okkar haga á vorin og
við höfum mann til að fylgjast
með þeim á sumrin. Hann sér um
að ekki sé ofbeitt og færir á milli
hólfa. Samkvæmt okkar upplýs-
ingum voru 1156 hross á Akureyri
s.l. vetur. í þeim högum sem við
leigjum og eigum voru aðeins rétt
rúmlega 100 hross s.l. sumar. Af-
gangurinn var í einkahólfum og
síðan er farið með mikið af hross-
um í nágrannabyggðirnar
- Eitthvað að lokum?
- Já, þú lofaðir mér í upphafi
að reka áróður fyrir árshátíðinni
og sjálfboðavinnu. Það hefur þeg-
ar komið fram að árshátíðin er 5.
febrúar og ég vildi hvetja félags-
menn í Létti að fjölmenna á hana.
Hvað sjálfboðavinnuna varðar,
þá er ljóst að verkefni eru næg og
ef félagsmenn starfa ekki sjálfir
að hinum ýmsu verkefnum þá
verður að nota aðkeypt vinnuafl.
Bygging húss, gerð skeiðvallar og
endurbætur á Sörlastöðum í
Fnjóskadal tekur allt mikinn
tíma. Verkefnin eru óteljandi og
aðeins með samstöðu tekst að
vinna málum brautargengi, sagði
Björn að lokum og bætti því við
að aðalfundur Léttis yrði 11.
febrúar n.k.
Ærshátíö
Framsóknarfélags
Akureyrar
föstudaginn 22. jan.
aðHótelKEA,
hefst með borðhaídi kl. 20.00.
Á matseðlinum er: Spergilsúpa
Kryddlegið lambalæri
TrífQe
Fjölbreytt skemmtiatríði: Söngur, grín og gleði.
Veislustjórí verður Tryggvi Gíslason skólameistarí.
Heiðursgestur kvöldsins: GuðmundurG. Pórarinsson
alþingismaður.
Síðan verður auðvitað dansað á fullu tilkl. 02.00.
Astró tríó oglnga Eydal sjá um sveifluna.
Miða- og borðapantanir á skrifstofu flokksins,
Hafnarstræti 90, sími 21180.
Miðasala fer fram í opnu húsi að Hafnarstræti 90,
Gmmtudagskvöldið 21. jan. kl. 20.00-23.00.
Framsóknarfólk: Fjölmennum nú og
„höldiun gleði hátt á lofí“. Skemmtinefnd.