Dagur - 09.02.1982, Page 12
RAFGEYMAR
í bIunn, bátinn, vinnuvélina
VEUIÐ RÉTT
MERKI
GRIMSEY:
Miklar
ógæftir
„Það hafa verið afskaplega
miklar ógæftir að undanförnu,
ekki verið hægt að róa nema
tvisvar í viku, en það hefur
aflast ágætlega þegar gefið
hefur,“ sagði Steinunn Sigur-
björnsdóttir í Grímsey, er við
ræddum við hana fyrir helgina.
Nóg hefur þó verió að starfa í
eyjunni að sögn Steinunnar, því
mikil vinna hcfur vcrið fyrir
hencli, bæði við saltfisk ogskrcið-
arvcrkun, og útskipun á þessari
vöru.
Samgöngur við Grímsey hafa
vcrið með erfiðara móti að
undanförnu, lítið hægt að fljúga,
og er við ræddum við Steinunni sl.
limmtudag var hláka í Grímsey og
flugvöllurinn þareitt forasvað.
Halda átti Þorrablót á vegun.
Kvenfclagsins sl. laugardag, og þá
eru haldin spilakvöld og bingó-
kvöld í eynni, og karlmennirnir
hyggjast að vcnju halda myndar-
legt konukvöld þegar líður að
páskum.
í Lóni í Kelduhveifi er stunduð
laxarækt, og á dögunum var
slátrað þar laxi í annað skipti á
stuttum tima. I desemher voru
tekin þar um 5 tonn og núna á
dögunum var slátrað um 2
tonnum.
Að sögn Björns Guðmunds-
sonar í Lóni er of snemmt að vera
með nokkrar bollalenginar um út-
litið í þessum rekstri. I.íta veröur
svo á aö hér sé enn um tilrauna-
starfsemi að ræða og að svo verði
næstu tvö.árin. „Það verður fyrst
að þeim tíma liðnum sem hægt
verður að segja eitthvað ákveðiö
um það hvernig þessi rekstur
muni ganga. En ég held þó að það
verði að segjast að manni finnist
að það sem af er lofi góðu um
framhaldið," sagði Björn.
Fyrirtækið íslensk matvæli í
I lafnarl'irði hefur keypt laxinn, og
hefur heyrst um áhuga eigenda
þess á að kaupa ákveðið magn af
Uixi á ári. Laxinn úr Lóni þykir
mjög góð vara. og nýting lians í
vinnslu er nær 100%.
Blárefur skotinn í Kelduhverfi:
Ekki vitað úr hvaða
búi dýrið hefur sloppið
- hugsanlegt að haegt sé að komast að því með rannsóknum
„Þaö veit enginn hvaðan þess
refur er kominn. Hann va
ómerktur," sagöi Björn Guð
mundsson oddviti og hrepp
stjóri að Lóni í Kelduhverfi
viðtali vrð Dag, en sl. miðviku
dag skutu þeir Jóhann Gunn
arsson á Víkingavatni og Þor
kell Þórarinsson á Grásíðu
bláref norður af Arnarnesi.
Björn tjáðj okkur að Kristján
Jósefsson, sem rekur Dýrasafnið í
Reykjavík, hefði óskað eftir því
að fá dýrið til þess að stoppa það
upp, en menn frá veiðistjóra
hefðu einnig óskað eftir því að fá
dýrið til rannsóknar og teldu
möguleika á því að með rann-
sóknum væri hægt að komast að
því hvaðan dýrið væri komið.
„Það er ekki um neitt refabú að
ræða sem þetta getur verið frá,
nær en búið á Grenivík. Að vísu
er að fara í gang bú að Kast-
hvammi í Laxárdalnum en refirnir
eru bara rétt komnir þangað,“
sagði Björn, en að sjálfsögðu vildi
hann ekkert geta sér til um hvað-
an refurinn væri kominn.
Björn sagðist ekki vita betur en
það væri skylda að merkja öll líf-
dýr í búrunum og hann sagðist
ætla að eigendur þeirra færu að
Soffía Guðmundsóttir:
Ákvað sjálf
að hætta
„Það hefur hvergi komið fram
að ég ákvað að hætta í bæjar-
stjórn og tilkynnti það reyndar
á fundi sl. haust,” sagði Soffía
Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins, en það
vakti athygli að nafn hennar var
ekki á lista eftir fyrri umferð
forvals Alþýðubandalagsins.
„Það er ekki þar með sagt,“
sagði Soffía þegar hún var spurð
hvort hún væri nú að kveðja
bæjarpólitíkina á Akureyri. „Eg
stend í slagnum í vor rétt eins og
ég væri sjálf í framboði." Soffía
hefur setið í bæjarstjórn Akureyr-
ar í þrjú kjörtímabil.
Ræða um atvinnu-
uppbyggingu
— eftir að Blanda hefur verið virkjuð
Á dögunum var fundur á
Blönduósi, þar sem rætt var um
hugsanlega atvinnuuppbygg-
ingu þegar Blönduvirkjun lyki.
Fulltrúar sýslunefndar, sam-
vinnufélaga og einkafyrirtækja
mættu á fundinn. Engar álykt-
anir voru gerðar, en ákveðið að
koma saman síðar í mánuðin-
um.
Samningaviðræður vegna
Blönduvirkjunar eru enn í gangi,
en samkvæmt þeim upplýsingum
sem Dagur aflaði sér á Blönduósi
og víðar er talið líklegt að sam-
komulag náist. Hins vegar var
bent á að fulltrúar Svínavatns-
hrepps væru tregir til að halda
fund um málið og afgreiða það
endanlega.
Framleiðslan
gengur mjög vel
Túnshergi, Sviilhurúsströnd, 4. fehr.
Framleiðsla kartöiluverk-
smiðjunnar á Svalbaröseyri
sem framleiðir franskar kart-
öflur fyrir innanlandsmarkað
hefur gengið injög vel, en hrá-
efnið sem unnið hefur verið úr
að undanförnu hefur að mestu
veriö innflutt.
Afköstin hat’a vcrið um tvö
tonn á dag af unnjnni vöru, en
hægur vandi væri aö tvöfalda þá
tölu ef unnið væri á vöktum í verk-
smiðjunni í stað 8 tíma eins og nú
er gert.
Framlciðsla verksmiðjunnar
hefur líkað afskaplega vel og
markaðurinn virðist fara sívax-
andi. Að sjalfsögðu er verksmiðj-
an í samkeppni við innflutning og
hefur heyrst að innflytjendur hafi
lagt hart aö kaupmönnum í höf-
uðborginni að undantornu að
selja frekar inntluttu kartöflurnar
en þær innlendu.
Skiptar skoðanir eru um það
hvort hægt sé að óska eftir að inn-
flutningur á frönskum kartöflum
verði stöðvaður. Að öðru jöfðu
má ekki flytja inn landbúnaðar-
vörur nema þær vanti á markað
hér, og eru skoðanir skiptar um
það hvort flokka á framleiðslu á
frönskum kartöflum sem iðnað
eða sem úrvinnslu úr landbúnað-
arafurðum.
S.L.
lögúm. Væri því ljóst að dýrið
hefði sloppið út sem hvolpur, en
talið er að dýrið
tveggja ára gamalt.
sé tæplega
Blárefur í búri sínu.
# Hefst byltingin
á Akureyri
Um næstu helgi verða stjórn-
arkosningar í verkalýðsfélag-
inu Einingu. Hart er barist
eins og sjá má i opnu blað-
sins í dag. Kunningi Dags leit
inn á dögunum og sagði að ef
GuðmundurSæmundssonfæri
með sigur af hólmi væri
möguleiki á að Akureyri yrði
sögufrægur bær, að hér hæf-
ist loks byltingin sem kreddu-
kommar hafa beðið eftir í ára-
vís. Guðmundur hefur nefni-
lega stutt stefnu svartasta
kommúnisma árum saman,
og sagði kunningi blaðsins
að ef Guðmundur kæmist í
sæti formanns í Einingu, væri
það fyrsta skrefið í sögu bylt-
ingarinnar.
# Byltingabær,
ferðamanna-
bær
Guðmundur Sæmundsson
hefur leitað margra ieiða til að
ná áhrifum og hafa þar með
aukinn möguleika á að út-
breiða rétttrúnaðarstefnu
sína. í því sambandi má minn-
ast þess að hann gerði tilraun
til að verðá forseti ASÍ og
varaforseti sömu samtaka.
Tilraun til að gerast forseti Al-
þýðusambands Norðurlands
mistókst einnig. í þeim kosn-
ingum gaf kona kost á sér og
voru margir jafnréttissinnar
lítt hrifnir af þessu uppátæki
Guðmundar. „Nú er þaö bara
spurningin hvort í framtíðinni
verði hægt að auglýsa vöggu
®mm
byltingarinnar á Akureyri,“
sagði þessi kunningi Dags.
# Sterkur listi?
Heyrst hefur að veruleg ólga
sé nú innan raða sjálfstæðis-
manna á Akureyri, vegna
forvalsins sem þeir héldu.
Hafa einstakiingar í forystu-
sveit íhaldsins látið að því
liggja í samtölum við menn,
að hart verði barist í væntan-
legu prófkjöri, til að rétta hlut
þeirra sem þeir telja að ómak
lega hafi orðið fyrir barðinu á
samblæstri og smölun hags-
munahópa. Einkum þykir
mönnum súrt í brotið sú út-
reið sem Gunnar Ragnars
fékk i forvalinu, en hann er af
mörgum flokksbræðrum og
andstæðingum í pólitík tal-
inn lang frambærilegasti full-
trúinn sem Sjálfstæðisflokk-
urinn gæti boðið fram á lista
sínum. Gunnar var í fjórða
sæti við síðustu kosningar,
en féll niður í níunda sæti i
forvalinu. „Flokkshagsmun-
um hefur algjörlega verið
kastað fyrir róða með þess-
um vinnubrögðum“, sagði
einn sjálfstæðismaðurinn í
samtali við S&S. Þá er einnig
óánægja með það, hvernig
Sigurður Hannesson og
Tryggvi Pálsson urðu úti í
forvalinu. Þeir sem bestu
niðurstöðuna fengu láta að
því liggja að þetta sé alls ekki
endanleg röðun, svona til að
róa hina, en hins vegar er at-
hyglisverður leiðarinn i síð-
asta tbl. íslendings, þar sem
nánast er sagt berum orðum,
að nú sé búið að velja sterk-
an listafyrirflokkinn.