Dagur - 26.02.1982, Síða 6

Dagur - 26.02.1982, Síða 6
Það er löng leið frá Rauða torginu, en svo nefndust síldarmið norður af íslandi, og allt suður í Panama. Hvað varð til þess að skipstjóri, sem hafði veitt á þeim mið- um og öðrum hér við land, tók pjönkur sínar og hélt suður á bóginn? - Þetta var allt heilmikil tilviljun, sögðu þau hjón, er Dagur hélt á fund þeirra í Langholtinu fyrir skömmu. Þar hafa þau haldið sitt annað heimili í öll þessi ár og líkar vel að geta komið heim á milli þess sem dvalið er í hinum ýmsu löndum. En aðalástæðan fyrir því að þau fóru af stað, var einfaldlega sú, að eftir að síldin hvarf minnkuðu tekjur sjó- manna. Hilmar Kristjánsson, sem þá starfaði hjá FAO, kom heim til íslands og kynnti löndum í skipstjóra- og vél- stjórastétt þá möguleika sem biðu þeirra ytra. Röskur tugur hélt utan, en nú eru aðeins tveir eftir af þeim hóp, Trausti og Björn Bjarnason frá Neskaupstað, sem nú starfar í Pakistan. I upphafi bað Dagur Trausta að rifja það upp er hann hélt til Panama, en þar hafði hann og fjölskyldan bækistöðvar í byrjun. - Ég fór af stað eftir jól 1969 og kom í kæfandi hita í Panama. Viðbrigðin voru ólýsanleg. Þegar ég fór að heiman, var ég í sæmilegum holdum, en eftir þrjá mán- uði hafði ég misst 15 kíló. Fjölskyldan kom seint í janúar. Hún fór úr miklum kulda á Akureyri og hafði viðdvöl í New York, en þar var -22°. Ég man eftir því að þegar þau komu til Panama voru þau öll kædd í svellþykkar ullar- og skinnflík- ur. Þau grétu úr hita og mitt fyrsta verk var að klæða mannskapinn úr, svo líðanin \;rA' Knorilpn J t\J I UCV-I Sanníeikurinn var sá, áu þcííá fýTstá SI var mjög erfitt. Ég var mikið að heiman og ég geri ráð fyrir að við hefðum hætt hjá FAO ef við hefðum ekki verið svo heppin að lenda til Filipseyja. En að sjálfsögðu voru Ijósar hliðar á starfinu í Panama. Það lá Ijóst fyrir, hvað ég átti að gera. Ég var í fiskileit undir stjórn Jakobs Magnússonar fiskifræðings, og fékk tækifæri til að aðlaga mig að breytt- um aðstæðum í rólegheitum. A þessum tíma munaði minnstu að ég yrði látinn fara frá Panama. Þannig var, að innfæddir voru óánægðir með að ég kom heim kvöld eftir kvöld, með tóman bát á meðan þarlendir sjómenn voru alltaf með fisk. Ef Jakobs hefði ekki notið við, hefði ég eflaust fengið reisupassann. Heimamenn skildu ekki að ég var að leita að fiski á dýpra vatni en þeir veiddu á. Nú mætti ætla að starfsmenn Sameinuðu þjóðanna fái sérstaklega góða fyrirgreiðslu þegar þeir koma til framandi landa, að þeim sé séð fyrir húsnæði og börnunum fyrir plássi í góðum skólum. Trausti og Asdís voru spurð um þetta atriði. - Nei, þú færð enga aðstoð. Við komum til Panama og urðum að útvega okkur sjálf húsnæði og skóla fyrir börnin. Hið síðarncfnda gekk illa, en að lokum tókst þó að fá pláss í ágætum enskum skóla. Það varekki mikilli enskukunnáttu fyrir að fara í upphafi, en þetta hafðist allt einhvern veginn. Þetta gengur einfaldlega þannig fyrir sig að þú færð þitt kaup og síðan er það þitt að bjarga þér áfram. Trausti brosir þegar hann er spurður um hvort ekki hefðu verið íslendingar í nágrenninu og svarar neitandi. Og þó - víða leynist landinn. - Við fórum eitt sinn í kirkju, sagði Asdís, - og nokkru seinna kom presturinn í heimsókn til okkar. Hann sagði mér að hann héldi að það byggju íslendingar á yfirráðasvæði Bandaríkjamanna við Panamaskurð. Hann bætti því við, að hann héldi að eftirnafnið væri Norðmann og símanúmerið fékk ég líka í hendur. Það liðu nokkrar vikur og ég hugsaði sem svo að það gætu varla verið 6 - DAGUR - 26. febrúar 1982 íslendingar með þetta ættarnafn. Um þetta leyti var brotist inn hjá okkur og mér leið illásvo ég ákvað að hringja í númerið. Þetta voru íslensk hjón. Hann var reyndar fæddur í Bandaríkjunum og átti ísienska foreldra, en eiginkonan hafði farið frá Islandi þegar hún var 18 ára gömul. Hann hét Baldur en hún Olga. Baldur, sem var stúpsonur Ástu málara, er nú látinn, en Olga býr í Seattle. Baldur var yfirmaður þeirra sem sáu um lokurnar í Panamaskurðinum og þau hjón voru á sextugsaldri er við kynntumst þeim. Baldur hafði aldrei komið til fslands, en hann talaði þó ákaflega fallega íslensku. Hins vegar skildi hann ekki nýyrði og ég man að hann vissi ekki hvað orðið „sturta" merkti. - Þegar þið yfirgáfuð Panama lá ieiðin til Filipseyja. Hvað var þitt verkefni þar? - Já, þangað lá leiðin og þar sá maður í stofunni heima í Langholtinu. þið komuð til Ghana, hvaða ljón voru í veginum, Trausti? - Ghanamenn áttu að vera búnir að smíða tvo 50 tonna báta áður en ég kom, en þegar ég mætti á staðinn, var búið að leggja kjölinn að öðrum og búið að bandreisa hinn. Það vantaði vélarnar, það vantaði þetta og hitt. Ég fór í að setja niður vélar, þegar þær komu, en það var síður en svo það sem mér var í upphafi ætlað. I tvö ár var ég leiðbeinandi í bátasmíði. En þessir ágætu menn hafa allt annað tímaskyn en við, menn deyja ekki úr stressi í þessu landi, síður en svo. Ghanabúa vantar líka meir af vel menntuðu fólki til að halda landinu gangandi. Sem dæmi get ég nefnt að Norðmenn smíðuðu og ráku nokkra togara með Ghanamönnum. Þar kom að hinir síðarnefndu töldu að Norðmennirnir, sem voru ráðnir upp á prósentur og gegndu stöðum yfirmanna Frá Rauða torginu tíl Panarna Panama, Filipseyjar, Ghana, Kenýa og Barein. Þetta eru fjarlæg iönd og tiltöluiega fáir íslendingar hafa dvalið langdvölum íþeim. Yfirleitt frétta íslendingar á Fróni ekki annað um þau en það sem miður fer og stundum mætti halda að þar stæði ekki steinn yfir steini, þegar verstu hrinurnar eru afstaðnar. En mitt í þessum sjóðandi mannlífspotti gengur lífið sinn vanagang og menn strita við að hafa ísig og á. Aðstæður eru frumstæðar víða, efborið er saman við það sem tslendingar þekkja að heiman, og margt á þann veg að enginn trúir fyrr en á reynir. Frá því um vorið 1969, hefur Trausti Gestsson, skipstjóri frá Akureyri, búið í löndunum sem nefnd voru í upphafi, ásamt konu sinni, Ásdísi Ólafsdóttur og börnum þeirra hjóna. Traustihefur vériðþarna á vegum FAO (Matvæla- og þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna), og kennt innfæddum að veiða fisk, en einnig hefur hann starfað við fiskileit og fiskirannsóknir. Síðast áttu þau heima í Kenya og ætluðu að halda heim til íslands um mitt síðasta ár, en fyrir beiðni yfirmanna FAO fór Trausti tilBruma og koma heim íLangholtið ílok janúar. Nú hafa mál æxlast þannig að þau hjón munu fara til Sri Lanka innan skamms og verða þar a.m.k. í eitt ár. A Sri Lanka mun Trausti starfa sem ráðgjafi í fiskveiðimálum. Eintrjáningur á nótaveiðum í Ghana. Trausti sagði að þessir bátar væru allt að 40 feta langir með um 10 manna áhöfn. e.t.v. best árangurstafs síns. í Panama og á þeim stöðum sem ég átti eftir að starfa, var yfirleitt unnið að rannsóknum sem eru nauðsynlegar áður en veiðar eru hafnar, en á Filipseyjum var slíku lokið og ég fór beint að fiska. Þarna var Jakob Magnússon t.d. búinn að vera áður en við komum. Nú, þarna Einar Kvaran, sonarsonur Einars skálds, hann var potturinn og pannan í einu stærsta útgerðarfyrirtækinu á eyjunum. Hann er nú búsettur í Bandaríkjunum. Starfsmenn FAO aðstoðuðu bæði sjómenn sem fiskuðu með nót og dragnót, og það verður að segjast'eins og er að þetta gekk vel. Ég get nefnt sem dæmi að sum stóru skipin veiddu aðeins á nóttinni við ljós, en lágu við akker á daginn. Þau komu ekki til hafnar nema einu sinni á ári, en aflinn var fluttur á land með sérstökum flutningaskipum. Þetta var mjög rólegt fiskirí og skipin sigldu inn á milli eyjanna. En það var betra að fara varlega á sumum stöðum, því sjóræningjar eru enn til og á suðurhluta eyjanna búa múhameðstrúarmenn sem eru til alls líklegir. Þegar við og aðrir vorum á þeim slóðum var venjan að þrír væru á vakt á daginn og vélbyssa í skut og stafni og uppi á stýrishúsi. Olíukostnaður er ekki mikill Þegar dimma tekur er dólað á miðin, ljós tendruð og beðið eftir að fiskurinn syndi í nótina. Þarna líkaði okkur hvað best á okkar þvælingi. Kaupið lækkaði að vísu vegna þess hve ódýrt var að búa á Filipseyjum. - Ég hafði kokkk, garðyrkjumann og einn dag í viku kom saumakona, sagði Ásdís. - Þessu fólki greiddum við 90 dollara á mán., sem var mun hærra en tíðkaðist, og auk þess fékk vinnukonan og garðyrkjumaðurinn brauð, kaffi, hrísgrjón og húsnæði. Á þessum tíma hafði Trausti tæpa 1000 dollara á mánuði Við bjuggum í góðu einbýlishúsi, börnin gengu í ágætan skóla og okkur leið vel í það eina og hálfa ár sem við bjuggum þarna. Það kann að koma fólki spánskt fyrir sjóni að hafa þjónustufólk á hverjum Áhöfnin af hafrannsóknarbát FAO sem Trausti stýrði í Kenya. Skipshöfnin var öll innfædd fyrir utan Trausta og Eirík Þóroddsson, sem var vélstjóri um borð. fingri, en við verðum að hafa það í huga að lífið á þessum slóðum er gjörólíkt því sem við þekkjum hér á landi. Það er erfitt fyrir fólk sem kemur frá landi eins og íslandi, að fara að vinna erfið heimilisstörf í 35° hita, allt verður að þvo í höndunum og fólk verður að skipta a.m.k. þrisvar um föt á hverjum degí. Einnig verður að skipta um rúmföt annan eða þriðja hvern dag. Matargerð er líka mun erfiðari og ekki hægt að hlaupa út í búð eins og við gerum hér heima. - Það er margt sem menn þurfa að læra ef þeir ætla í starf eins og ég hef verið í, segir Trausti. - Þeir verða m.a. að læra að það þýðir ekki að ýta þeim innfæddu á undan sér, þú verður að ganga á undan með góðu fordæmi, sýna að þú kunnir allt það sem þú ert að tala um. Það er líka gaman þegar vel tekst til. Ég fékk löngu síðar bréf frá fyrrverandi timburkaupmanni, sem gerðist útgerðarmaður, hann var þá kominn með flota af bátum, sem hann eins og flestir aðrir keyptu frá Japan. Þessi Filipseyingur vissi hvað hann söng. Hann fylgdi ráðleggingum starfsmanna FAO, var ákveðinn við sína menn og sá víst aldrei eftir að hafa hætt í kaupmennskunni, enda gekk honum illa gegn Kínverjunum sem eru í þessum bransa og halda saman í gegnum þykkt og þunnt. - Hefur það ekki reynst best að hjálpa þessu fólki að hjálpa sér sjálft? - Jú, það er rétt, en það skiptir ákaflega miklu máli að rannsóknarstörf séu innt af hendi af fólki sem kann þau. Og ef við ræðum þá aðstoð sem íslendingar hafa og geta veitt, þá veit ég til þess, að sumar þessara þjóða hafa sent hingað menn og þeir hafa t.d. beðið um mannskap og skip. Áður en slík aðstoð er veitt, verður að senda menn á viðkomandi stað og þar eiga þeir að vera í þrjá til sex mánuði og safna upplýsingum frá stjórnvöldum og útgerðaraðilum. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem íslendingar afla sjálfir, á að taka ákvörðun um hvernig á að standa að aðstoðinni. - Nú er farið til Ghana eftir dvölina á Snurpubátur eins og þessi kom á eftir eintrjáningnum og þótti mikil bylting. Báturinn er um 50 fet á lengd. Filipseyjum. Voru það ekki mikil viðbrigði? - Jú, og eftir tvö fyrstu árin þar, vorum við að hugsa um að hætta. Og Ásdís bætir við: - Það var ekki vegna erfiðleika í sambandi við skóla eða þ.h. Málið var einfaldega að það voru ýmis ljón á veginum þegar við komum til landsins og það rættist ekki strax úr þeim málum. Og Ásdís heldur áfram: - Það var skortur á matvælum og svarti markaðurinn blómstraði. Ég varð að koma mér upp „kontöntum“ til að fá allt sem heimilið þarfnaðist og var orðin vel að mér i svartamarkaðsbraski áður en yfir um lauk. Síðustu tvö árin gat ég hvergi keypt þvottaduft nema á svarta markaðnum, tannkrem fékkst ekki og því síður klósettpappír. Sumir útlendinganna fóru til Togo, en það er land sem liggur að Ghana. Já, við höfðum þjón í Ghana sem var fjarska viljugur, en svo hægfara að ég þoldi ekki að horfa á hann ganga. Hitt er svo aftur annað mál, að ef fólk gekk eins og við vorum vön að heiman, þá svitnaði það alveg óskaplega. - En hvernig voru viðtökurnar þegar um borð, hefðu of mikið upp og því voru þeir látnir fara en Ghanamenn tóku við. Innan sex mánaða höfðu allir togararnir stöðvast - það vantaði kunnáttuna, togurunum var ekki haldið við. Norðmenn voru beðnir um að koma á ný, sem þeir og gerðu. Það tók þá nokkra mánuði að koma togurunum öllum af stað. Sama sagan endurtók sig, Norðmennirnir voru látnir fara, heimamenn tóku við og togararnir stöðvuðust og Norðmennirnir komu aftur. Síðast er ég frétti, voru síðustu togararnir að fara út á ný. Svipað dæmi átti sér stað í álverksmiðju sem Bandaríkjamenn reka. Stjórnin lagði skatt á útlendinga og því var útlendingum innan fyrirtækisins fækkað til muna. Hins vegar kom í ljós að framleiðslan minnkaði og því var skatturinn felldur niður og útlendingum fjölgaði. En Ghanabúar eru indælt fólk og ég kunni vel við þá menn Sem ég umgekkst. Þú finnur t.d. ekki betri sjómenn,þeir eru harðskeyttir og gaman að umgangast þá. Ef við vorum t.d. búnir að kasta nótinni og fiskurinn var að ganga út úr henni, áttu þeir það til að kasta sér til sunds og reyna að fæla fiskinn inn aftur. Mér fannst dvölin á margan hátt tilgangslítil í upphafi og sagði upp. En féllst síðar á að halda áfram og tvö seinni árin voru ágæt á margan hátt. Barein var næsti viðkomustaður og þar var ég á vegum FAO við rannsóknarstörf. - Hvernig tók Barein á móti ykkur? Ásdís verður fyrir svörum: - Barein á dásamlegt land, þetta er eyja og þú getur skoðað hana á einum degL Mér leið vel þarna. Við komum til Barein eftir lætin í Libanon, en þau urðu því valdandi að mikið af bankastarfseminni fluttist til Barein og það varð mjög erfitt að fá húsnæði. Dýrtíðin var ofboðsleg. Ef við hefðum ætlað að taka svipað húsnæði og við höfðum í Ghana, hefðum við orðið að borga um 2 þúsund dollara. Einu sinni skoðuðum við hús sem leit ágætlega út að utan, en þegar við komum inn fékk ég á tilfinninguna að eitthvað væri að. í Ijós kom að gólfið hallaði og á því voru hólar og hæðir. Fasteignasalinn sagði að þetta væri ekkert mál, hann skyldi senda mér smið, sem bætti undir suma stólfæturna en sagaði af öðrum! Fyrir þetta áttum við að greiða 1500 dollara á mánuði. En við vorum svo heppin að fá hús vinar okkar í þrjá mánuði, og þann tíma notuðum við til að finna hús og það tókst að lokum. Á þessum mánuðum varð ég sérfræðingur í leiguhúsum, ef við sáum eitthvað gardínulaust, fórum við að húsinu og Trausti lyfti mér upp og ég gat sagt upp á hár hvað það kostaði á mánuði. Til að gera langa sögu stutta, þá fóru þau hjón ásamt börnum sínum til Kenya og störfuðu þar fram á mitt síðasta ár. Áftur ætlaði Trausti að hætta hjá FAO, en samþykkti þó að fara sem ráðunautur til Burma og nokkru síðar var frá því gengið að þau færu til Sri Lanka og yrðu þar í eitt ár að minnsta kosti. Að þessu sinni fara þau ein því börnin fimm eru flogin úr hreiðrinu. Yngsti sonurinn er í MA, annar í Háskóla íslands og þrjú elstu eru ýmist við nám eða störf. Og nú vildi Dagur fá að vita hvernig það leggðist í þau að fara enn á ný af stað. Trausti varð fyrir svörum. - Við erum að lesa okkur til. Að vísu eigum við kunningja þarna og við erum að því leyti til mjög heppin. Ég mun hafa aðsetur á Sri Lanka og fara í ferðir til Indlands, Bangladesh,Thailands og Malasíu. Ég verð ráðunautur innfæddra í fiskveiðimálum. Það líður varla sá dagur að íslendingar h eyri ekki um morð og ódæðisverk í þeim heimshlutum sem þau hjón hafa dvalið undanfarin ár. Dagur spurði þau að lokum, hvort almenningur yrði var við þessi ódæðisverk, eða hvort þau væru einkanlega í ríkisfjölmiðlunum á íslandi. Trausti sagði að þau hjón hefðu aldrei sakað á sínum ferðum, aðeins einu sinni hefðu þau orðið vör við átök og það var á Filipseyjum. En Trausti benti líka á að mannslíf eru ekki jafn hátt metin meðal þeirra þjóða sem þau hafa gist og á íslandi. - Þegar við vorum í Filipseyjum, fóru fram kosningar. Þær voru taldar þær friðsömustu sem nokkurn tíma höfðu farið fram þar. Það voru ekki drepnir nema um 400 frambjóðendur - fyrir utan alla aðra. Á þessum árum var Manilla talin einhver óöruggasta borg í heimi, menn voru að senda hvorir öðrum pakka með sprengjum, svo dæmi sé tekið, en við fengum alltaf að vera í friði. En Barein var besta landið í þessu tilliti. Þar gátum við gengið út án þess að læsa, það var aldrei neinu stolið og fólkið var mjög elskulegt. Þar mun trúin hafa spilað inn í auk þess sem refsingar voru mjög strangar. Dagur kveður þessu elskulegu hjón, sem eru svo sannarlega góðir fulltrúar íslands á erlendri grund. I ■ 26. febrúar 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.