Dagur - 02.03.1982, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyrí, þríðjudagur 2. mars 1982
24. tölublað
Falsaði 17
ávísanir
— að fjárhæð tæpar níu þúsund krónur
Á fímmtudag barst rannsókn-
arlögreglunni á Akureyri kæra
vegna ávísanamisferlis. Við
rannsókn kom í Ijós að hér var
Akureyringur að verki og hafði
hann gefíð út 17 falsaðar
ávísanir samtasls að upphæð
kr .8.300
Samkvæmt upplýsingum
rannsóknarlögreglunnar var
maðurinn gestur í húsi hér i bæ og
var ölvaður. Þegar hann yfirgaf
húsið hafði hann ávísanahefti á
brott með sér og gaf flestar ávís-
anirnar út á veitingastað í bænum.
Að sögn lögreglunnar hefur um-
ræddur Akureyringur ekki verið
staðinn að ávísanamisferli áður.
Fyrstu skipstjór-
arnir útskrifaðir
— frá framhaldsdeild Dalvíkurskóla í vór
Undanfarin ár hefur verið
starfrækt framhaldsdeild við
Dalvíkurskóla. í vetur hefur
verið rekin skipstjórnarbraut I
tengslum við hana. í vor út-
skrifast í fyrsta skipti nemendur
af þeirri braut með skipstjórn-
arréttindi á 120 tonna fískibáta.
Dalvíkingar eru áhugasamir
um þetta nám og stefna að því
að bjóða upp nám á fyrsta og
öðru stigi næsta skólaár.
í viðtali við blaðið sögðu
Trausti Þorsteinsson skólastjóri
og Hilmar Daníelsson formaður
skólanefndar, að undanfarin ár
hefðu nemendur framhaldsdeild-
ar aðeins getað lokið eins árs námi
á Dalvík, en síðan þurft að ljúka
námi sínu á Akureyri eða annars-
staðar. Sl. vor hefði fæðst sú hug-
mynd hvort ekki mætti koma á fót
skipstjórnarnámi á Dalvík.
Bæjaryfirvöld á Dalvík hefðu sýnt
þessu mikinn áhuga. Auk þess
hefði fræðsluráð Norðurl. kjörd.
eystra mælt einróma með þessu,
talið slíkt nám vel komið á Dal-
vík vegna góðra tengsla við allar
tegundir útgerðar.
Skóla og bæjaryfirvöld á Dalv-
ík hafa þegar markað þá stefnu að
komið verði upp námi 1. og 2.
stigs Stýrimannaskóla á Dalvík.
Hafi því þegar verið komið áleiðis
til viðkomandi yfirvalda. í vetur
stunda 9 nemendur nám á skip-
stjórnarbraut. Nú í vor ljúka þeir
1 stigi, sem gefur réttindi til að
stjórn 120tonnafiskibátum. Höfð
hefur verið samvinna við Stýrim-
annaskólann í Reykjavík og
kennt eftir sömu námsskrá.
Aðspurðir um aðstöðu fyrir
slíkt nám á Dalvík sögðu Trausti
og Hilmar að hún væri góð. Fyrir
aðkomna nemendur væri heima-
vist á staðnum. Auk þess væri ver-
ið að byggja við skólann og væri
nú lokið fyrri hluta fyrsta áfanga,
með 5 kennslustofum og góðri
vinnuaðstöðu fyrir nemendur og
kennara. Voru þeir félagar bjart-
sýnir og töldu í sjónmáli góða
kennsluaðstöðu.
Margir notfærðu sér góða veðrið á dögunum og þvoðu bfla sína hátt og lagt,
Akureyringar með full-
trúa í Vasa-göngunni
Akureyringar munu um næstu
helgi eiga fulltrúa í hinni stór-
frægu Vasa-skíðagöngu, því
Sigurður Aðalsteinsson, fram-
kvæmdarstjóri Flugfélags
Norðurlands og stórtrimmari,
brá sér til Svíþjóðar á dögum til
þess að taka þátt í þessari fjöl-
mennu skíðagöngu. Hann læt-
ur ekki þar við sitja, heldur
mun hann einnig taka þátt í
Holmenkollen-göngunni, sem
fram fer í Noregi 14.mars.
Þrír aðrir íslendingar a.m.k.,
munu taka þátt í Vasa-göngunni
og eru læknarnir Friðrik Páll
Jónsson og Kristinn Eyjólfsson
þar á meðal, en þeir eru við fram-
haldsnám í Svíþjóð.
Vasa-gangan er kennd við at-
burð þann, er Gústav Vasa, Svía-
kóngur, flúði þessa leið á skíðum
undan Dönum. Leiðin er 85 km.
löng, milli Sjálen og Mora. Um 10
þúsund manns taka þátt í göng-
unni, víðs vegar að úr heiminum.
Hermann Sigtryggsson, íþrótta-
og æskulýðsfulltrúi á Akureyri,
hafði milíigöngu um að skrá ís-
lendingana í keppnina, sem er
orðin liður í heimskeppni trimm-
ara. Að sögn Hermanns er nú
fyrirhugað að halda hér á landi al-
þjóðlega keppni í skíðatrimmi á
næsta ári.
FRAMBOÐSLISTI FRAMSOKNARMANNA
TIL BÆJARSTJORNARKOSNMGA A AKUREYRI
Á fundi Fulltrúaráðs Fram-
sóknarfélags Akureyrar á
sunnudag var listi fram-
sóknarmanna til bæjar-
stjórnarkosninga 22. maí í
vor ákveðinn, að undan-
gengnu forvali félaga í
Framsóknarfélagi Akureyr-
ar, sem uppstillingarnefnd
hafði síðan hliðsjón af við
val á listann. Algjör einhug-
ur var um tillögu uppstill-
ingarnefndarinnar, sem
hlaut atkvæði allra fundar-
manna.
Listann skipa: 1. Sigurður
Óli Brynjólfsson kennari, 2.
Sigurður Jóhannesson full-
trúi, 3. Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir ritari, 4. Sigfríður Ang-
antýsdóttir kennari, 5. Jón
Sigurðarson framkvæmda-
stjóri, 6. Þóra Hjaltadóttir
hagræðingur, 7. Valur Arn-
þórsson kaupfélagsstjóri, 8.
Sólveig Gunnarsdóttir ritari,
9. Pétur Pálmason verkfræð-
ingur, 10. Auður Þórhalls-
dóttir húsmóðir, 11. Tryggvi
Gíslason skólameistari, 12.
Sigrún Höskuldsdóttir
kennari, 13. Ingimar Eydal
kennari, 14. Eva Pétursdóttir
nemi, 15. Ingimar Friðfinns-
son húsgagnasmiður, 16.
Margrét Emilsdóttir iðn-
verkakona, 17. Pálmi Sigurðs-
son verkamaður, 18. Snjólaug
Aðalsteinsdóttir afgreiðslu-
stúlka, 19. Jónas Karlesson
verkfræðingur, 20. Gísli Kon-
ráðsson forstjóri, 21. Stefán
Reykjalín byggingameistari,
22. Jakob Frímannsson fyrr-
verandi kaupfélagsstjóri. Sjá
viðtal við Hákon Hákonar-
son, formann fulltrúaráðsins á
bls. 3.
Sigurður Óli Brynjólfsson. Sigurdur Jóhannesson.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir. Sigfríður Angantýsdóttir.
Jón Sigurðarson.
Þóra Hjaltadóttir.