Dagur - 02.03.1982, Qupperneq 3
Mjög sigurstranglegur listi
- segir Hákon Hákonarson, formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélags
Akureyrar um framboðslistann til bæjarstjórnarkosninga í vor
„Ég er þess fullviss, að þessi
listi er mjög sterkur og sig-
urstranglegur. Með honum
eru sameinaðir þeir höfuð-
þættir, sem til þurfa að
koma til að svo verði. Fyrst
vil ég nefna það, að á listan-
um eru menn sem hafa víð-
tæka reynslu og þekkingu á
málefnum bæjarins, í öðru
lagi hafa konur fengið veru-
legt brautargengi, og í
þriðja lagi eru á listanum
einstaklingar með mikil
tengsl við atvinnulífíð í
bænum, en það eru einmitt
atvinnumálin, sem verða
hvað mest í brennidepli á
komandi misserum, því eins
og allir gera sér grein fyrir,
er traust, vaxandi og arð-
samt atvinnulíf algjör for-
senda velfarnaðar á öðrum
sviðum, s.s. í félags- og
menningarmálum“, sagði
Hákon Hákonarson, for-
maður fulltrúaráðs Fram-
sóknarfélags Akureyrar í
viðtali við Dag.
„Fulltrúaráðið hefur um
nokkurt skeið rætt það mjög
ítarlega, hvernig staðið skyldi
að ákvörðun um framboðs-
mál. Fað sem menn vildu
leggja áherslu á var í fyrsta
lagi það, að tryggja áfram ör-
ugga og markvissa forystu
framsóknarmanna í bæjar-
stjórnarmálum, í öðru lagi að
hæfileg endurnýjun ætti sér
stað innan forystusveitar
flokksins og í þriðja lagi að
tryggð yrðu áfram tengsl
flokksins við atvinnulífið,
bæði með þátttöku fulltrúa
launa-
fólks og þeirra sem í forsvari
eru í atvinnul'ífinu.
Framsóknarmenn hafa
ávallt lagt mikla áherslu á
þátttöku kvenna í stjórnmál-
um, en því miður án þess að
konur hafi séð sér fært að taka
þátt í starfinu að marki. Nú
hefur það hins vegar gerst, að
konur eru tilbúnar að taka
þátt í starfsemi flokksins af
fullum krafti. Það má því ljóst
vera, að framsóknarmenn
bjóða nú fram lista sem skip-
aður er hæfu fólki með marg-
víslega reynslu og þekkingu.
Kjarninn í stefnu Fram-
sóknarflokksins er samhjálp
til sjálfsbjargar. Framsókn-
armenn vilja beita samtaka-
mætti til að gera öllum kleift
að lifa sem sjálfstæðir ein-
staklingar í frjálsu landi. Með
þetta að leiðarljósi munum
við framsóknarmenn ganga
bjartsýnir til kosningabaráttu
og skorum á Akureyringa að
veita lista okkar og þeim mál-
efnum sem við berjumst fyrir
atkvæði sín í komandi kosn-
ingum“, sagði Hákon Hákon-
arson að lokum.
leiðsla á frábærlega góðu
verði. Auðveldir í upp-
setningu og miklir mögu-
leikar í samsetningu.
Góðir greiðsluskilmálar.
Vöruhús KEA Hrísalundi 5
neðri hæð.
World Carpets
gólfteppin
fljúga út, enda framúrskarandi
gæðavara. Komdu og kynntu þér
kosti World Carpets gólfteppanna.
Leggjum, sníðum - vanir menn.
Greiðsluskilmálar.
HAFNAHSTR. 91-95 - AKUREYRI - SlMI (96)21400
AEG
borvélar
AEG borvélar, margar
gerðir. Ótrúlega miklir
möguleikar með fylgi-
hlutum. Omissandi á
hverju heimili.
Jám- og Glervörudeild
2. mars 1982 - DAGUR - 3