Dagur - 02.03.1982, Side 6
FASTEIGN MEI
Fyrir röskum þremur mánuö-
um var ákveöiö að breyta göml-
um gærugeymslum á Verk-
smiðjum SIS svo Skinnasauma-
stofan gæti fengið þar inni. Iðn-
aðarmenn hófust handa og
smám saman tóku salirnir á sig
nýja mynd og fyrir nokkrum
dögum flutti Skinnasaumastof-
an í nýja húsnæðið. - Það tókst
að flytja alla starfsemina um
eina helgi. Ég held að það hafi
verið kraftaverk,en við máttum
ekki missa úr neinn vinnudag
því eftirspurnin er svo mikil,
sagði Einar Bridde, feldskeri
og yfirmaður Skinnasauma-
stofunnar þegar við gengum
um sali stofunnar. - Mesta
vandamálið þessa stundina er
skortur á starfsfólki. Það er
svo undarlegt að á sömu stundu
og talað er um atvinnuleysi á
Akureyri fáum við ekkert
starfsfólk, en tilfellið er að
launagreiðslur hjá Skinna-
saumastofunni eru síst lægri en
annarsstaðar. Því má og bæta
við að ætlunin er að taka upp
bónuskerfi hjá starfs-
fólkinu sem er tæplega 30.
Kom til viðgerðar -
eftir 10 ára notkun!
Skinnasaumastofa Sambands-
ins mun vera eina stofan sinnar
tegundar hér á landi og hún er
þekkt fyrir vandaða vöru. Sigurð-
ur Arnórsson, einn af aðstoðar-
framkvæmdastjórum Iðnaðar-
deildar, sagði að iíkja mætti vand-
aðri mokkaskinnskápu við fast-
eign með tölum og hann bætti því
við að fyrir skömmu hefði deildin
fengið 10 ára gamla flík inn, en
ástæðan var sú að eigandinn vildi
láta gera ögn við hana.
Stofan var upprunalega í Borg-
arnesi og hét þá Verksmiðjan Vör
h.f. Starfsemin var flutt til Akur-
eyrar í upphafi árs 1968 og var
komið fyrir hjá vinnufatadeild
Heklu. Smám saman varð stofan
að sérstakri deild í Heklu, en var
síðan flutt í leiguhúsnæði á Ós-
eyri. Einar sagði að aðstaðan
hefði ekki boðið upp á möguleika
á nægilegri hagræðingu né hefði
verið hægt að búa nógu vel að
starfsfólkinu. Vel hefur verið
hugsað um síðarnefnda þáttinn í
nýja húsnæðiniu því þar er að
finna fullkomið lofthreinsikerfi,
sem sér um að lofthiti og rakastig
sé rétt. Einar tók það fram að
innan fárra daga væru væntanlegir
blómakassar, en ekki hafði tekist
að flytja þá úr gamla húsnæðinu.
Þar höfðu blómin dafnað mæta
Ingólfur Ólafsson verkstjóri, hefur starfað hjá saumastofunni frá upphafi. Unnið við pelssaumavél.
vel og gerðu þeir félagar ekki ráð
fyrir að myndi væsa um þau á nýja
staðnum.
30% aukning - með
sama mannskap.
- Við erum búnir að ráðstafa
okkar tíma út þetta ár og gætum
selt meira ef framleiðslan væri
meiri. Ætlunin er að með aukinni
hagræðingu á þessum stað verði
hægt að auka framleiðsluna um
30% með sama mannskap, en hér
er einungis unnið á dagvakt og við
gætum hæglega bætt við okkur 8
til 12 starfsmönnum við sauma-
skap. Enn sem komið er framleið-
ir stofan eingöngu mokkakápur af
ýmsum stærðum og gerðum, en
við gerum okkur vonir um að
hefja aftur á árinu framleiðslu á
húfum og lúffum. Ef t.d. áætlanir
um pelsaframleiðslu sem er ný
framleiðsla hjá okkur standast má
gera ráð fyrir að stofuna vanti
fjóra til fimm starfsmenn í heils-
dagsvinnu til viðbótar því sem ég
nefndi áðan, sagði Einar um leið
og hann strauk yfir fallega kápu er
hékk á slá. - Það fara um sjö
skinn í eina svona kápu og það
skiptir mjög miklu máli að flokk-
unin takist vel. Sú hefur orðið á
raunin hjá okkur og því má bæta
við að gæði skinnanna frá sútun-
ardeildinni hafa aukist til muna á
undanförnum árum. Það hefur
hjálpað okkur mjög mikið í sölu-
málunum, enda skiptir það miklu
að hráefnið sé gott.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að
saumastofan framleiði sjö þúsund
kápur. Af þeim munu um 1600
fara á innanlandsmarkað, en
meirihluti framleiðslunnar fer í
verslanir í Svíþjóð. Umboðs-
Áður en flíkin er saumuð þarf að raka h:
6-DAGUR-2. mars 1982