Dagur - 02.03.1982, Blaðsíða 12
VIFTUREIMAR
í FLESTA BÍLA
Verðbólgan veldur sívaxandi
erfiðleikum í rekstrinum
— sagði Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri, á félagsráðsfundi KEA
„Rekstur félagsins á árinu 1981
einkenndist eins og undanfarin
ár af miklum umsvifum í verk-
legum framkvæmdum og fjár-
festingum, en auk þess varð
veruleg veltuaukning hjá félag-
inu á ýmsum þýðingarmiklum
sviðum, þótt samdráttur yrði á
einstaka sviði vegna sérstakra
ytri aðstæðna“, sagði Valur
Arnþórsson, kaupfélagsstjóri,
á félagsráðsfundi KEA,sem
haldinn var fyrir skömmu.
Samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri varð heildarvelta félagsins á
árinu 770,8 Mkr. og hefur aukist
að meðaltali um 51,5% frá fyrra
ári. Veltuaukning í vinnslu og
sölu landbúnaðarafurða (34,2%)
dregur niður heildar meðaltalið
og er það eðlilegt miðað við ríkj-
andi aðstæður, þar eð búvöru-
framleiðsla hefur farið minnkandi
í kjölfar kvótakerfis og kjarnfóð-
ursskatts. Veltauaukning í versl-
un (56,8%) iðnaði (57,4%), þjón-
ustu (66,4%) og sjávarútvegi
(60,9%) er hins vegar verulega
mikil og má telja mjög vel viðun-
andi miðað við verðþróun í land-
inu.
Laun og launatengd gjöld hjá
félaginu á árinu 1981 námu kr.
101.886,168,91, án þess að laun
sláturhússreiknings séu meðtalin.
Samsvarandi upphæð á árinu 1980
var kr. 67.854,789,75 og hefur
launakostnaður þá hækkað um
50,1%. Má það teljast hagstæð
þróun miðað við veltuaukningu.
Valur sagði að verðbólgan setti
mikið svipmót á allar veltutölur
og ylli sívaxandi erfiðleikum í
fjármögnun rekstursins og fjár-
mögnun framkvæmda. “Fram-
kvæmdir hljóta að stöðvast að
miklu leyti eftir að lokið er yfir-
standandi verkefnum, verði verð-
bólga og vaxtakjör svo óhagstæð
sem nú. Jafnframt kalla vaxta-
kjörin á sérstakar hagræðingarað-
gerðir í rekstri félagsins, þarf þar
ekki síst að líta til smásöluversl-
unar félagsins, þrátt fyrir talsvert
aukna veltu hennar á síðasta ári.
Sérstaklega er þörf skipulags-
breytinga í þýðingar-
miklum þáttum varðandi mat-
vörudreifinguna á Akureyri.
Jafnframt gerir vaxandi sam-
keppni á Akureyri útilokað að fé-
lagið geti þolað hallarekstur á
verslunarútibúum í Eyjafirði".
Rekstur sumra útibúanna getur
því orðið að breytast í ýmsum at-
riðum, en skipulagsmál verslun-
arinnar eru nú í sérstakri athugun
með aðstoð erlends sérfræðings
og lýkur henni væntanlega með
vorinu. Sagði Valur að þá væri
hægt að móta nánar, til hvaða ráð-
stafana yrði gripið til þess að gera
vörudreifingu félagsins sem sam-
keppnishæfasta, jafnframt því
sem hún geti veitt félagsfólkinu
sem hagstæðast vöruverð miðað
við veitta þjónustu.
Tæknin lætur ekki að sér hæða. Á dögunum var til sýnis í
versluninni Akurvík 60 tommu sjónvarpsskermur, en
venjulegt sjónvarpstæki er með rösklega 20 tommu
skerm. Róbert Árnason, verslunarstjóri, sagði að þetta
tæki nýttist fyrst og fremst fyrirýmiskonar félagasamtök,
en þess væri tæplega langt að bíða að svona skermar yrðu
almenningseign.
- Möguleikarnir eru óþrjótandi og þessum tækjum
fleygir stöðugt fram, sagði Róbert og hann sýndi okkur
einnig lítið sjónvarpstæki sem 2ja tommu skerm. í því er
einnig útvarp og vckjaraklukka....
Róbert sagði að í landinu væru til tveir 60 tommu
skermar og sá í Akurvík til sölu ef einhver vill kaupa.
Hinn mun vera kominn í reykvískan skemmtistað. Lit-
blöndun fer fram á skerminum, en litunum er varpað á
hann úr kassa sem í eru þrír myndlampar. Hljóðinu er
varpað á skerminn úr kassanum og þaðau berst hljóðið til
áhorfendans sem verður að vera í minnst 3ja m. fjarlægð.
Skákmót
á Raufarhöfn
Mikill skákáhugi er nú á Rauf-
arhöfn og um áramótin var þar
stofnaö skákfélag. Upphafs-
maðurinn er kennari, sem kom
til Raufarhafnar sl. haust, Þór
Örn Jónsson. Hann kennir 20 -
30 börnum skák í skólanum og
að sögn Gunnars Hilmars-
sonar, sveitarstjóra, eru þau
flest ef ekki öll í félaginu. Auk
þess er þar röskur tugur full-
orðinna. Um hverja helgi eru
haldin skákmót.
„Við teflum núna í þremur
flokkum“, sagði Gunnar, „og
þátttakendurnir hafa verið þetta á
milli 30 og 40 um hverja helgi. Nú
vinnum við að þvf að fá hingað al-
þjóðlegan meistara til að tefla við
okkur fjöltefli og halda fyrirlestur
um skák“.
Prentskilasafn Amtsbókasafnsins:
Ríkið taki þátt
í kostnaóinum
„Prentskilasafnið kostar
bæjarfélagið ansi mikið fé, því
það þarf húsnæði undir þessa
prentgripi, það þarf að binda
þá inn og skrá þá. Mér fyndist
ekki óeðlilegt að Amtsbóka-
safnið fengi frá ríkinu sem svar-
aði einum bókavarðarlaunum
upp í þennan kostnað“, sagði
Lárus Zóphóníasson, amts-
bókavörður, í viðtali við Dag.
Eins og kunnugt er á að varð-
veita alla prentgripi, sem gefnir
eru út á íslandi og nú er það gert í
þremurbókasöfnum. Landsbóka-
safnið fær 2 eintök frá hverjum út-
gefanda, Háskólabókasafnið eitt
og Amtsbókasafnið á Akureyri
eitt eintak. Eins og fram kom hjá
Lárusi er töluverður kostnaður að
varðveita bækur og blöð. Akur-
eyrarbær rekur Amsbókasafnið,
en bæði Landsbókasafnið og
Háskólabókasafnið eru rekin á
kostnað ríkisins. Finnst mörgum
það nokkurt óréttlæti að ríkið
skuli ekki taka þátt í kostnaði við
prentskilasafnið á Akureyri, eins
og gert er í Reykjavík.
„Eg hef nokkuð lengi verið að
ympra á þessu máli við ráðamenn,
en ekki fengið úrlausn ennþá. Það
er mikill fengur í því fyrir okkur
hér á Ákureyri að hafa þetta
prentskilasafn og ég vil alls ekki
missa það, en auk þess er talið ör-
yggisatriði að hafa slíkt safn víðar
en á einum stað á landinu. Því hef
ég lagt þetta til, að ríkið greiði
laun eins bókavarðar upp í þenn-
an kostnað,“ sagði Lárus Zóp-
hóníasson að lokum.
Óvænt úrslit
Um helgina var prófkjör hjá
Sjálfstæöisflokknum á Akur-
eyri og einnig var prófkjör hjá
Alþýðuflokknum. Úrslit voru
bindandi fyrir fjóra efstu menn
á lista Sjálfstæðisflokksins, en
aðeins fyrir þann sem hlaut
sjötta sætið á lista Alþýðu-
flokksins. Gert er ráð fyrir að
báðir þessir flokkar gangi frá
listum sínum fyrir eða um miðj-
an mars.
Freyr Ófeigsson varð í fyrsta
sæti í prófkjöri Alþýðuflokksins, í
öðru sæti varð Tryggvi Gunnars-
son, Jórunn Sæmundsdóttir f
# Órólegir gestir
Um síðustu helgi kom til Ak-
ureyrar hópur skólanemenda
úr Reykjavík. Á honum sann-
aðist hið fornkveðna að það
þarf ekki nema einn gikk í
hverja veiðistöð, en örfáir
nemendanna höguðu sér á
þann veg að það var skól-
anum ekki til sóma. M.a.
höfðu tveir þeirra björgunar-
vesti úr flugvélinni á brott
með sér þegar til Akureyrar
kom og þeir hnupluðu leið-
beiningaspjaldi úr gufubaði
sundlaugarinnar. Auk þess
fóru þeir i sund um nóttina og
notuðu brunastiga hótels
þess er þeir gistu á, í stað
þess að fara hefðbundna leið.
• Nýttblað
á Akureyri
Fyrir nokkrum dögum komu
tveir ungir sveinar með blað á
ritstjórn Dags. Þeir höfðu gef-
ið það út sjálfir og voru nú að
selja blaðið, sem þeir nefna
„Spaðinn". Alls eru níu síður
með lesmáli af ýmsu tagi, en
mest ber þó á skrýtlum og
gátum. Strákarnir, sem heíta
Jón Stefán Einarsson og
Hjalti Finnsson hafa með
þessu blaði stigið sín fyrstu
spor á sviði blaðamennsku
og óskar S&S þeim til ham-
ingju með blaðið.
þriðja, Snælaugur Stefánsson í
fjórða, Birgir Marinósson í
fimmta og Alfreð Ó Alfreðsson í
sjötta sæti. 390 kusu, sem er rúm-
lega þriðjungur þeirra sem kusu
flokkinn í síðustu bæjarstjórnar-
kosningum. 63 atkvæði voru
ógild.
Alls tóku 1134 þátt í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins, þar af voru
gild atkvæði 1117. Gísli Jónsson
varð í fyrsta sæti, Gunnar Ragn-
ars í öðru, Jón G. Sólnes í þriðja,
Sigurður J. Sigurðsson í fjórða,
Margrét Kristinsdóttir í fimmta
og Bergljót Rafnar í sjötta.
• Góa
Góa hófst í síðustu viku, en
góa er f immti mánuður vetrar.
Daginn er tekið að lengja og
vorið er ekki svo langt undan
samkvæmt dagatalinu. Margt
hefur verið ort um þetta tíma-
bil og í kviðlingi segir:
Velkomin sértu góa mín
og gakktu I bæinn.
Vertu ekki úti í vindinum
vorlangan daginn.
í bók Árna Björnssonar, Saga
daganna, segir að stundum
sé eins og verið að hnýta í
þorra um leið og góu er gefið
undir fótinn:
Góa kemur með gæðin sln
gefst þá nógur hitinn.
Fáir sakna þorri þín
þú hefur verið skitinn.
# Bíll kennir bíl
Börn geta oft verið skemmti-
leg í tilsvörum og margar af
hugmyndum þeirra um tilver-
una eru skringilegar. S&S
frétti t.d. af barni sem fór með
foreldrum sínum í bíltúrog sá
þá í fyrsa sinn hvar bíll var
dreginn eftir götunni af öðr-
um bíl. Barnið lagði nefið að
rúðunni og sagði eftir andar-
tak: - Sjáiði, þarna er bfll að
kenna öðrum bíl hvernig á að
keyra.