Dagur - 06.04.1982, Blaðsíða 1

Dagur - 06.04.1982, Blaðsíða 1
MIKIÐ ÚRVAL FERMINGAR GJAFA GULLSMIDIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 65. árgangur Akureyri, þriðjudagur 6. aprfl 1982 39. tölublað Kemst togarinn ekki á veióar? — Samningar hafa ekki náðst um laun sjómanna a frystitogaranum Örvari sem afhentur verður eigendum á Skagaströnd á morgun „Ég get ósköp lítið sagt um þessi mál á þessu stigi. Það voru samningafundir á mánu- dag og þriðjudag í síðustu viku, og það er ekki búið að ganga frá samningi enuþá,“ sagði Guð- jón Jónsson hjá Sjómannafé- lagi Eyjafjarðar er Dagur ræddi við hann. Tilefnið var að samningar við þá sjómenn, sem koma til með að starfa á hinum nýja frystitogara Skagstrend- inga, Örvari HU 21, hafa ekki tekist, en Örvar verður afhent- ur eigendum á morgun. „Menn renna nokkuð blint í sjóinn með samningagerð á svona skip, þetta er alveg nýtt hérlend- is,“ sagði Guðjón Jónssbn. „Við lifum hinsvegar í voninni um að samningar takist mjög bráðlega. Sá samningur sem kemur til með að verða gerður, verður einungis skammtímasamningur á meðan menn eru að þreifa sig áfram og sjá hvernig þetta kemur út. Á þessu skipi verða 24 menn í stað 15-16 á togurum af sömu stærð, en á þessu nýja skipi er aflinn fullunninn til útflutnings. Ég tel að það sé óhætt að segja að það beri talsvert á milli aðila í þessum samningaviðræðum.“ - Gæti sú staða komið upp að þegar skipið verður tilbúið til veiða komist það ekki út vegna þess að samningar við áhöfnina hafi ekki tekist? „Ég held að það sé óhætt að segja að það hafi allir aðilar áhuga á því að ekki muni stranda á því atriði, en því er ekki að leyna að sú staða gæti hugsanlega komið upp.“ - í býtið í fyrramálið mun Örvari verða siglt frá Akureyri til Skagastrandar, þar sem skipið verður formlega afhent eigendum sínum. Að sögn Gunnars Ragnars forstjóra Slippstöðvarinnar á Ak- ureyri, sem hefur smíðað skipið hefur smíði þess gengið mjög vel. Og nú er bara að sjá hvort skipið kemst til veiða, eða hvort samn- ingamálin verða til þess að tefja það að skipið geti farið að mala eigendum sínum gull. Hann var engin smásmíði þorskurinn sem Stefán Baldvinsson á Dröfn fékk á dögunum, enda 25 kg og 145 cm á lengd. Hér sjást þeir Baldvin Ólafsson og Sigfús Helgason með hann á milli sín. Með þeim á myndinni er Jón V. Ólason verkstjóri og Hermann Eyfjörð sem sýnir einn „venjulegan“ þorsk til viðmið- unar. Ljósm. gk-. Aflahrota hja trillu- körlum á Akureyri Heldur betur hefur lifnað yfir afla þeirra „trillukarla“ sem fást við útgerð frá Akureyri. Eftir steindautt tímabil frá ára- mótum, virðist nú Eyjafjörður innanverður vera orðinn fullur af þorski, og má segja að afla- hrota sú sem nú stendur yfir hafi hafist 1. apríl. í janúar fengu þær 6 trillur sem leggja upp hjá Fiskihúsi KEA ekki nema 5 tonn samtals. Ekki tók betra við í febrúar og mars því þá nam aflinn ekki nema um einu tonni hvorn mánuð. En sl'. fimmtudag kom heldur betur kippur í veiðarnar, og lönduðu bátarnir þá 1700 kg. Aðalvandamál trillukarlanna er skortur á beitu, loðnu eða kræðu. Jón V. Ólafsson verkstjóri hjá Fiskhúsi KEA, sagði að þorskurinn gengi nú inn á Eyja- fjörðinn bæði vegna sjávarkulda útifyrir, og eins vegna ætisleysis. „Loðnan virðist algjörlega vera horfin úr sjónum,“ sagði hann. Trillukarlarnir þurfa ekki að fara langt eftir aflanum. Þeir leggja línuna rétt utan við land, út af Eyrinni, og Stefán Baldvinsson á Dröfn fékk á dögunum mjög vænan þorsk rétt utan við Fisk- móttöku KEA. Sá vigtaði hvorki meira né minna en 25 kg - þar af hausinn einn 5 kg - og var 145 cm á lengd. Eru slíkar skepnur orðn- ar sjaldgæfar nú á dögum. Mikil bjartsýni er nú ríkjandi um áframhald þessara veiða, en menn eru óhressir með að veiði- bann skuli hafa verið sett á trill- urnar 5.-13. apríl og eiga erfitt með að skilja hvaða tilgangi það þjónar. Gull- eyjan bls. 10

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.