Dagur - 06.04.1982, Blaðsíða 3

Dagur - 06.04.1982, Blaðsíða 3
Samdráttur í útflutningi á dilkakjöti Árlegur fundur Samstarfs- nefndar Búvörudeildar SÍS með afurðasölufélögum innan vébanda Sambandsins var haldinn hinn 5. mars. í skýrsl- um frá síðasta ári kom fram að heildarsala Búvörudeildar á því nam 412,9 millj. króna, sem er aukning um 21.6 %. Söluaukning er undir meðal- lagi og stafar það aðallega af minnkuðum útflutningi á osti og kjöti. Verulegur samdráttur mun vera á útfluttningi á dilkakjöti. Kaupa Norðmenn einungis 600 lestir í ár en það er u.þ.b. helm- ingi minna en í fyrra og fimm sinnum minna en það hefur oft verið. Andrésar- leikarnir Andrésarleikarnir í ár fara fram dagana 21. - 24 april. Keppnis- greinar eru: Svig og stórsvig 7-12 ára drengir og stúlkur, ganga 12 ára 2.5 km. 11 ára2km., lOára 1.5 km., 9 ára l.Okm., drengirogstúlkur. Stökk 9-10-11-12 ára drengir. Öll keppni fer fram í Hliðar- fj alli, en keppendur búa í Lundar- skóla. Á undanförnum árum hafa ver- ið gerðar tilraunir með að flytja út kælt dilkakjöt í sláturtíðinni, en því miður er verð ófullnægjandi vegna aukins vinnslukostnaðar og flutningskostnaðar. Þetta kemur sér mjög illa vegna þess, að vitað er að neytendur bæði austan hafs og vestan, vilja heldur kaupa kælt kjöt en frosið, þó þeir þurfi að greiða aðeins hærra verð fyrir það. Af öðrum útflutningi er helst að nefna að á síðustu árum hefur sala á hrossakjöti aukist hjá deildinni. Mjög hagstætt verð hefur náðst fyrir fryst kjöt í Noregi og nýtt kjöt í Frakklandi. Síðustu tvö ár nam þessi útflutningur 255 lestum, en nú er búið að semja um sölu á 100-150 lestum. Nokkurrar sölutregðu gætti varðandi æðadún á árinu. Talið er að það stafi að nokkru leyti af aukinni samkeppni frá öðrum dúntegundum. Á síðasta ári voru seld helmingi færri selskinn en árið áður, en vegna áróðurs gegn kópadrápi hefur dregið mjög úr sölu þeirra undanfarið. Útflutningur á hrossum „á fæti“ var svipaður og áður og búist er við að hann verði svipaður áfram. Vörusala kjötiðnaðarstöðvar í heild jókst að magni til um rúm 10% frá árinu áður og var afkoma stöðvarinnar hagstæð á árinu. Mynd: K.G.A Armbandsúrin vinsælu QTTTTfO uIjJAU PULSAR TIMEX og RICOH Gífurleg fjölbreytni. Hljómdeild Til fermingargjafa: Fisher skíði. Allar skíðavörur. Ath. verð og gæði. F ermingarfötin ’82 Jakkar, buxur, vesti, skyrtur og bindi ásamt Schauff reiðhjólin komin aftur. Herradeild - Skódeild. Sportvörudeild Bamaburðarpokar semhægt baminu. Sportvörudeild. Combiflex raðhúsgögnin með óendanlega möguleika í Vöruhúsi KEA Hrísaiundi 5. 6. apríl i 982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.