Dagur - 06.04.1982, Blaðsíða 16

Dagur - 06.04.1982, Blaðsíða 16
RÁFGEYMAR í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA VEUIÐ RÉTT MERKI Annar auka- vinningurinn fór í Aðaldal I gær var dregið um önnur aukaverðlaunin í ferðagetraun Dags og Samvinnuferða - Landsýnar. Að þessu sinni fóru verðlaunin í Aðaldal. Það var Kristjana Helgadóttir Hraun- gerði, sem fékk 400 krónur til ráðstöfunar í Vöruhúsi KEA. I blaðinu í dag er fjórði hluti feröagctraunarinnar. Þaö er ckki of seint aö vera meö - en þcss ber þö aö geta aö þeir sem byrja t.d. frá og með blaöinu í dag, hafa aö sjálfsögöu minni möguleika á aö fá stóra vinninginn. Þessi gctraun er eingöngu fyrir áskrifendur. Þeir sem vilja gertist áskrifendur geta hringt í Jóhannes Mikaels- son, útbrciöslustjóra Dags í síma 24222. Alls munu birtast sex spurning- ar. Þegar hálfur mánuöur er liö- inn frá því aö sú síöasta birtist í Degi veröur dregiö um aöalvinn- inginn, sem er ein ferö með Sam- vinnuferöum - Ltindsýn aö verö- mæti allt aö kr. 10 þúsund. Tískusýning í Allanum LJm síúustu helgi var tískusýning í Al- |>ýöuhii.sinu, scm opnaöi meö pomp og pragt sl. fiistudagskvöld. liúid er aö cnduriiæta húsakynnin mikiö og aö sögn húsráöcnda verður dansaö þama næstu vikur og mánuöi - eöa |iar til Sjáll'stæöishúsiö opnar á nýjan leik. I»aö var akureyriskt tískusýning- arfölk, sem sýndi fatnaöinn í Alþýöu- húsinu, og kom fatnaöurinn úr versl- uninni Cesar. Mynd: áþ. Töldu hreindýr og sauðnaut á Grænlandi Pegar farið var að halla í mið- nætti sl. föstudagskvöld, renndi Highlander flugvél Flugfélagsins Ernir á Isafiröi upp að flugstöðvarbyggingunni á Akureyri. Ekki voru Ernirað fljúga til Akureyrar í áætlunar- llugi á þessum tíma sólarhrings- ins, vélin var að koma frá Grænlandi, þar sem hún hafði veriö sl. 16 daga. Flugfélag Noröurlands tók vél- ina á leigu, og þann 17. mars flaug Finnbjörn Finnbjörnsson flug- maöur vélinni til Syöri-Sttaum- fjaröar. Síöan var tekið til viö verkefniö sem vélin var leiö til, en þaö var aö fljúga með Dani og Grænlendina sem voru við taln- ingu hreindýra og sauönauta. „Pað voru þrír Danir sem önn- uöust þetta verk og auk þeirra flugu ávallt meö einn eða tveir Grænlendingar sem voru kunnug- ir staðháttum þar sem verið var aö fljúga hverju sinni." sagöi Finn- björn er viö ræddum viö hann. „Jú, það verður að segja aö þetta hafi veriö erfitt flug, og ég flaug t.d. í eina 50 tíma undir 300 feta hæð, en flugið allt tók um 75 klukkustundir. Það bjargaði þó miklu að ég var .mjög heppinn með veöur, og það var t.d. aðeins í tvo daga sem ekki var hægt að fljúga vegna þess að veðrið var ekki nógu gott." Finnbjörn sagði að aðalbæki- stöðin hafi vcrið í Syðri-Straum- firði, cn einnig var flogið út frá Nuuk og Meistaravík, og Kulusuk var notuð sem eldsneytisstöð. „Fetta þótti nokkur viðburður og t.d. var mér boðið í mikla veislu hjá borgarstjóranum í Nuuk og það var talsverð viðhöfn f kring um þetta. Annars var tím- inn vel notaður, alltaf verið að fljúga þegar hægt var. Verkinu lauk reyndar mun fyrr en áætlað hafði verið. Það voru talin á milli 3500 og 4000 hreindýr á vestur- ströndinni og um 3000 sauðnaut," sagði Finnbjörn að lokum. Finnbjörn við komuna til Akureyrar á föstudagskvöldiö. Iðnaðardeild Sambandsins: Aukning á sölu ullartil Sovétríkjanna Iðnaðardeild Sambandsins hef- ur nýlega undirritað sölusamn- inga við Sojuzkoopneshtorg, sem er samvinnufyrirtæki í Sovétríkjunum, um sölu á ullarvöru og lakki fyrir samtals 3,5 milljónir bandaríkjadala eða um 35,8 milljónir króna. Þetta fyrirtæki kaupir nú veru- lega meira af ullarvörum en áður, eða fyrir 29,6 milljónir króna og nemur aukningin um 11 milljónum króna, eða því sem næst einni milljón dollara. Hins vegar kaupir fyrirtækið nú minna af lakki, eða 400 tonn en það keypti 1000 tonn í fyrra. Þá kaupir ríkisfyrirtækið Razno- export einnig málningarvörur og ullarvörur af iðnaðardeild- inni. Hjörtur Eiríksson fram- kvæmdastjóri iðnaðardeildar, sagði í viðtali við Dag, að þetta væru viðunandi samningar, mið- að við að gengisþróun yrði ekki allt of óhagstæð. í fyrra var þró- unin mjög óhagstæð, en þá hækk- aði dollarinn um 31% ásama tíma og kostnaðarhækanir við fram- leiðsluna námu 41%. Hjörtur sagði að menn vissu ekki hver þróunin yrði, en menn ætluðu að hún yrði ekki eins óhagstæð í ár. Samningarnir við sovéska sam- vinnusambandið byggjast á vöru- skiptum, þannig að af kaupunum verður ekki nema íslendingar kaupi vörur í staðinn fyrir sömu upphæð. Það sem Sovétmenn selja okkur einkum er matvara ýmiskonar, s.s. sultur, hunang, rúsínur, grænar baunir, kartöflu- mjöl og lítilsháttar af niðursoðn- úm ávöxtum. Þessi vöruskipti eru raunar ekki ný af nálinni í við- skiptum við austantjaldsríkin. Hjörtur sagði að vegna þessa væri fólk á vissan hátt að styðja við ís- Ienskan iðnað með því að kaupa þessar vörur, sem hann sagði raunar vera einstaka gæðavöru á mjög hagstæðu verði. Nú stendur fyrir dyrum kynning á þesum matvælum. Hjörtur sagði að lok.um, að staðan í rekstri iðnaðardeildar hefði batnað frá því á síðasta ári. Hins vegar væri erfitt að vinna upp það mikla tap, sem þá varð á rekstrinum. # Hluturkvenna Á undanförnum árum hefur mikið verið rætt um hiut kvenna í stjórn bæjarfélaga, og niðurstaðan hefur ætíð verið sú, að hann þyrfti að auka til muna. S&S tók sig til á dögunum og taldi nákvæm- lega hve margar konur sætu í nefndum á vegum Akureyrar- bæjar og kom í Ijós að þær eru 35 að tölu, en ekki 26 eins og nýjasta framboðið heldur fram. Það er öruggt mál að hlutur kvenna batnar stórlega eftir næstu bæjarstjórnar- kosningar, enda eru konur mun fleiri á listum stjórnmála- flokkanna en áður. En hvað varðar umrædda talningu þá er best að talan sé rétt - hvorki hærri né lægri. # Hundurbeit barn Fyrir nokkru bar það til tíð- inda á brekkunni að hundur beit barn svo sá á því. Sam- kvæmt heimildum S&S var skjótt brugðið við og hundur- inn sendur inn í eilífðina. Sem betur fer eru atburðir af þessu tagi sjaldgæfir, en hundaeig- endur verða að gæta þess að fara að öllu eftir ríkjandi regl- um varðandi hundahald. Einnig ber að brýna það fyrir börnum að láta hunda í friði, því að sjálfsögðu bregðast þeir illa við sé þeim strítt. # Ævarhættur að aka Ævar Klemensson, sem lengi hefur ekið á milli Akureyrar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar, hef- ur nú hætt þeim akstri, að öðru leyti en því að hann flytur ein- hvern póst á milli. Dalvíking- ur, sem S&S ræddi við í gær, sagði að „málið væri ekki í neinni stöðu,“ eins og hann komst að orði. Á þessari stundu er ekki Ijóst hvort Ævar eða einhver annar mun aka á þessari leið, en a.m.k. Ólafsfirðingar hafa tekið þá ákvörðun að hætta fjár- hagsiegum stuðningi við Ævar. # Sótti ekki um Sérleyfið sem Ævar hafði, rann út þann 1. mars sl. og hvorki hann né aðrir sýndu áhuga á því. E.t.v. sannar það best að sérleyfið Akureyri - Ólafsfjörður er ekki sérstak- lega feitur biti - nema að með fylgi umtalsverðir styrkir þeirra sveitarfélaga sem njóta akstursins. Það er ekki von á fé frá Ólafsfirðingum og sam- kvæmt upplýsingum S&S, vildi Ævar að nú yrði samið til lengri tíma en eins árs, en full- trúar sumra sveitarfélaganna a.m.k. voru á öðru máli. Að sögn heimamanna mun það koma illa við marga ef ekki verða teknar upp fastar ferðir á nýjan leik og var skólafólk nefnt í því sam- bandi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.