Dagur - 06.04.1982, Blaðsíða 6

Dagur - 06.04.1982, Blaðsíða 6
„Eins og að kiifra í sand- kassa þarna efst uppi“ — segja tveir ungir Akureyringar sem klifu Hraundranga í Öxnadal á dögunum — fyrstir manna að vetrarlagi „Erfiðleikarnir eru til þess að sigrast á þeim“ hefur oft verið sagt, og ef að líkum lætur hugsa þeir þannig þeir Broddi Magnússon og Páll Sveinsson, tveir ungir Akureyringar sem starfa í hjálparsveit skáta á Akureyri. Þeir hafa báðir mjög mikinn áhuga á fjall- göngum, og á dögunum unnu þeir afrek sem ekki hefur ver- ið leikið áður. Þeir félagar gerðu sér lítið fyrir og klifu Hraundranga í Oxnadal, en það hefur ekki áður verið gert að vetrarlagi þótt nokkrum sinnum hafi menn komist þar upp að sumri til. „Það er svo spennandi að sjá hvort það tekst sem maður er að glíma við hverju sinni, ogánægj- an yfir því þegar það tekst er mikil,“ sögðu þeir félagar þegar við spurðum þá hvað það væri sem gerði fjallgöngur svona spennandi í þeirra augum. „Það að sigrast á fjallinu eða klettin- um sem glímt er við í það og það skiptið gefur manni alveg sér- staka tilfinningu." Þeir sögðu að þessi, ferð á Hraundranga að vetrarlagi hafi verið búin að vera ofarlega í hugum þeirra í langan tíma, og undir lokin biðu þeir ekki eftir öðru en göðu veðri og góðu færi. Við báðum þá því næst að lýsa fyrir okkur í stórum dráttum leiðinni upp. „Eftir að við höfðum þegið góð- ar veitingar að Staðarbakka í Hörgárdal lögðum við upp. Við fórum á göngubrú yfir Hörgá og beina leið upp á hrygg sem er fyrir neðan dranginn sjálfan. Þar gerðum við stanz, enda tekur það um klukkustund að útbúa sig fyrir sjálft klifið upp dranginn. Frá þessum hrygg og upp á topp eru um 120 metrar.“ „Næstu 40 metrarnir eru ekki svo mjög erfiðir ef maður er vel útbúinn, en það eru síðustu 80 metrarnir hinsvegar. Þá þurfum við að negla fleyga í klettinn og setja þar í línu svo fallið yrði ekki eins langt og annars ef maður hrasaði. Við höfum sennilega verið 3 klukkustundir að klífa þessa 80 metra á toppinn." - Hvernig var svo tilfinningin að standa þarna á toppnum, fyrstir manna að vetrarlagi? “Hún var rosalega ánægjuleg. Það má segja að viss sigurtilfinn- ing hafi gert vart við sig, enda vitum við að fleiri hafa leitt að því hugann að klifra þarna upp að vetri til og það hefur einu sinni verið reynt. Við höfum báðir farið þarna upp að sumri til, en þetta er miklu erfiðara þótt færið hafi verið gott núna. Það var mikill lausasnjór svo við interRent interRent á íslandi / Bílaleiga Akureyrar Reykjavík - Skeifan 9 - Símar: 86915, 31615 Akureyri - Tryggvabr. 14 - Símar: 21715, 23515 Telex: 2 3 3 7 IR ICE IS Hyggið þér á ferðalag erlendis interRent bílaleigan býður yður fulltryggðan bíl á næstum hvaða flugvelli erlendis sem er - nýja bíla af þeirri stærð, sem hentar yður og fjölskyldu yðar. Vér útvegum yður afslátt - og jafnvel er leiguupp- hæðin lægri (ekkert kílómetragjald) en þér þurfið að greiða fyrir flutning á yðar bíl með skipi - auk þess hafið þér yðar bíl að brottfarardegi hér heima. Veröi óhapp, tryggir interRent yður strax annan bíl, í hvaða landi sem þér kunnið að vera staddur í. interRent er stærsta bílaleiga Evrópu, vér veitum yður fúslega allar upplýsingar. Broddi Magnússon og Páll Sveinsson gátum grafið okkur í gegn un hann niður í mosann." - Voruð þið ekkert hræddir á leiðinni upp? „Auðvitað er maður dálítið hræddur, en ætli við hefðum. nokkuð komist upp ef svo hefði ekki verið. Sú tilfinning sem maður veit að er í vændum, að standa á toppnum er rosaleg og spilar sjálfsagt þarna inn í.“ Við gátum veitt það upp úr þeim félögum að síðustu metr- arnir hafi verið mjög erfiðir. „Bergið var afar laust í sér og það var alveg eins og að klifra á sandkassa þarna efst uppi,“ sögðu þeir. - En hvernig var að fara niður? „Það er ekkert mál að fara niður, ætli við höfum verið nema svona 15 mínútur niður á hrygg- inn aftur. En þrátt fyrir það að miklu auðveldara sé að fara niður þá er slysatíðni í fjallgöng- um meiri á niðurleið heldur en þegar menn eru á uppleið. Ætli það sé ekki vegna þess að menn eru þá kærulausir." - Hvar hafið þið aðallega klifið áður, þið hafið klifið Páskaskákmótið byrjar í Skákheimilinu miðvikudagskvöld kl. 20.00 og lýkur á laugardag. Umhugsunartími er hálftími á keppanda. Tefldar verða 11 umferðir eftir Monrad-kerfi. Öllum heimil þátttaka meðan húsrúm leyfir. Páskaegg í verð- laun fyrir 5 efstu menn og einnig hjá unglingum. Skákfélag Akureyrar. Knattspyrnudeildir Knattspyrnuráð Akureyrar gengst fyrir dómara- námskeíði 16., 17. og 18. apríl nk. í Félagsmið- stöðinni Lundarskóla og verður leiðbeinandi Grét- ar Norðfjörð. KRA hvetur alla þá er áhuga hafa á að öðlast dóm- araréttindi, að grípa nú tækifærið. Þátttaka tilkynnist Marinó Viborg Marinóssyni er veitir nánari upplýsingar. Sími 22498 og vinnusími 21655. KRA Hraundrangana að sumarlagi en á hvaða stöðum öðrum hafið þið spreytt ykkur? „Við höfum aðallega æft okk- ur í klettunum í Kjarnaskógi. Klif á svokölluð Tröll í Glerár- dal er sennilega það merkileg- asta sem við höfum sigrast á fyrir utan Hraundranga." - Og hvað er næst á dag- skránni? “Stóri draumurinn er auðvit- að að komast til útlanda að klifra, og þá helst að komast í Alpana eða Klettafjöllin í Bandaríkjunum." MmtW — ---------- Guðsþjónustur í Hálsprestakalli um hátíðirnar: Illugastaðakirkja: Guðsþjónusta föstudaginn langa kl.14.00. Hálskirkja: Hátíðarguðsþjón- usta á páskadag kl. 14.00. Draflastaðakirkja: Hátíðar- guðsþjónusta annan dag páska kl. 14.00. Sóknarprestur. Messur í Möðruvallaklausturs- prestakalli um bænadaga og páska: Skírdagur: Messa í Glæsi- bæjarkirkju kl. 2 e.h. Messa á Dvalarheimilinu í Skjaldarvík kl. 4 e.h. Páskadagur: Messa í Möðruvallarkirkju kl. 1.30 e.h. Messa í Bægisárkirkju kl. 3.30 e.h. Annar Páskadagur: Messa í Bakkakirkju kl. 2 e.h. Sóknar- prestur. Munið minningaspjöld kvenfé- lagsins Hlífar. Ágóðinn rennur til barnadeildar FSA. Spjöldin fást í bókabúðinni Huld, hjá Laufeyju Sigurðardóttur, Hlíðargötu 3 og símaafgreiðslu sjúkrahússins. 6- DAGUR-6. apríl 1982 T - piJOAO - S8C' i r.'ia'ó .3 ... ^asssasssi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.