Dagur - 06.04.1982, Side 12
STIL sniðin margeftir-
spurðu komin aftur
Apríl og maí bókin í McCall komin
Hvítt (^irzbet^) postulín
Bollapör, vasar og kertastjakar
Verðum með þetta vinsæla postulín
í miklu úrvali
Sodal eldhúsvara
Bollapor, tekatlar, sykursett, smjörkrúsir,
kertastjakar, könnur, bakkar og baukar.
Metravara, dúkar, svuntur, pottalappar og
grillhanskar.
Sumarefni í allan fatnað í úrvali
jj • j Opið á laugardögum.
alltmsauma
emman
SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI
Öll þjónusta
Meö endurnýjuðum kröftum veitum viö alla þjón-
ustu varöandi uppsetningu og viðhald á kæli- og
frystikerfum, viögeröir á kæliskápum og frystikist-
um.
Hönnun og ráögjöf.
Ávallt fyrirliggjandi helstu varahlutir.
Vélsmiðjan Oddi hf., sími 21244.
Utan vinnutíma: sími 22853, Elías Þorsteinsson.
Ávinnsluherfi
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Venjuleg ávinnsluherfi, 10X7,5 feta
KAUPFE LÖGIN Véladeild
t Sambandsins
Ármúla 3 Reyk/avik Simi 38900
UM AUTLAND
Fóstrur - Fóstrur
Á Akureyri vantarfóstrurtil starfa. Einnig forstööu-
menn fyrir leikskólana Lundarsel frá 1. maí og Iða-
velli frá 1. ágúst.
Upplýsingar um störfin gefnar á Félagsmálastofn-
un Akureyrar, sími 25880, þriöjud., miðvikud. frá
kl. 10-12 og fimmtud. kl. 1-2.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 1982.
Dagvistarfulltrúi.
f
Minning:
Karl Vernharð Þorleifsson
Fæddur 5. janúar 1926 - Dáinn 1. mars 1982
Allir hafa átt sér einhvern tíma vor.
Allir íþessum heimi mismörg ganga spor.
og einn er endir á öllum lífsins leidum.
Karl Vernharð Þorleifsson, bóndi
Hóli Dalvík, hefur nú gengið þá
götu til enda þar sem jarðvist okk-
ar allra lýkur eftir mislanga
göngu. Örlögin eru úndarleg og
erfitt reynist mannskepnunni að
ráða gátu þessa lífs.
Karl Vernharð Þorleifsson var
fæddur 5. janúar 1926 á Hóli
Dalvík. Dáinn 1. mars 1982 s.st.
Karl var sonur Þorleifs Kristins
Þorleifssonar fyrrum bónda á
Hóli og konu hans Svanhildar
Björnsdóttur. Hann var einn af
átta börnum þeirra hjóna. Hann
ólst upp hjá foreldrum sínum á
Hóli og vann við bústörfin með
þeim alla tíð þar til hann tók við
búinu af þeim árið 1958 og eign-
aðist jörðina um líkt leyti og bjó
þar alla tíð síðan, með börnum
þeirra.
Karl var góður og farsæll bóndi.
Hann var næmur á eðliskosti og
afurðasemi síns búfénaðar og
hafði alla tíð af honum góðar
nytjar og varð aldrei fyrir búsifj-
um. Meðal annarra búgreina rak
Karl hænsnabú sem gerði honum
m.a. kleift að fullnægja einum
þætti í sínu eðli, gjafmildinni, og
munu mörg eggjakílóin í hans
búskapartíð hafa farið frá Hóls-
heimilinu í ýmsar áttir án endur-
gjalds, og var mitt heimili meðal
annars æði oft aðnjótandi þessara
eðlislægu kosta Karls.
Það var oft gestkvæmt á Hóli.
Þar komu margir og þáðu góð-
gerðir. Karl var veitull og við-
ræðugóður. Kona hans einnig
með sinn sérstæða myndarskap í
framreiðslu. Þar voru veitingar
ekki skornar við nögl. Karl var
hlédrægur maður og tranaði sér
ekki fram né tróð á tám síns sam-
ferðafólks. Hann var ekki einn af
þeirn sem auðgaði sig eða umbylti
búrekstri sínum með sparifé ann-
arra eins og algengt hefur verið á.
undanförnum árum, af allra stétta
auðshyggjufólki. Nei, hann bætti
og rak sitt bú og heimili af eigin
afrakstri, hyggjuviti og dugnaði.
Karl fór með hreint borð úr þess-
um heimi, skuldaði aldrei neinum
neitt, og var alla tíð heldur veit-
andi en þiggjandi. Þjóðfélagið
væri betur statt í dag ef megin-
þorri þegna þess væri þannig
þenkjandi. Karl hafði fínbyggða
en létta lund og var næmur á hið
afbrigðilega í samfélaginu. Hann
hafði mikla líkamsburði sem kom
oft berlega í ljós í hans daglegu
störfum. Hann var ákaflega af-
kastamikill 'og hirðusamur verka-
maður svo eftirtekt og undrun
vakti hjá þeim sem best til þekktu
og mun hann ekki hafa ætlað sér
oft á tíðum af í þeim efnum þar
sem hann gekk ekki heill til
skógar nú í seinni tíð og lést hann
á heimili sínu við störf síðla
kvölds. Hann var fljótvirkur og
stórvirkur í heimabúnaði eins og
honum var eðlislægt og hóf þegar
göngu með rísandi sól á vit hins
ökunna Og horfinna áa og ástvina.
Við hin daglegu störf á heim-
ilinu naut Karl aðstoðar og dugn-
aðar konu sinnar og barna, sem
lágu ekki á liði sínu að halda uppi
reisn og myndarskap þessa gamla
ættarseturs. Karl var góður heim-
ilisfaðir og voru þau hjónin sam-
hent að veita börnum sínum gott
og heilbrigt uppeldi og hvöttu þau
til dáða með ýmsu móti. Því hefur
sú hvatning nú þegar borið góðan
árangur enda eðli og efniviður
góður í þeim systkinum öllum.
Stundum er sagt að maður
komi í manns stað. Það mun rétt
vera að heimurinn ferst ekki þó
ein góð sál hverfi af sjónarsvið-
inu. Hins vegar hefur hver maður
sinn lit ef svo má segja og Karl bar
lit af sinni skapgerð, lífsreynslu og
umhverfi sem sést ekki meir.
Margur mun sakna vinar, rabb-
stunda, veitinga og viðskipta við
fráfall hans. Þessar fátæklegu lín-
ur eiga að færa eiginkonu hans,
Önnu Jóhannesdóttur, og nán-
ustu ættingjum hins látna innileg-
ar samúðarkveðjur.
Kristinn Guðlaugsson.
Leyfi til pylsu-
sölu úr vagni
Bæjarstjórn Akureyrar hefir samþykkt aö auglýsa
eftir umsóknum um leyfi til pylsusölu úr vagni á
miðbæjarsvæðinu.
Leyfiö miöast við aö salan fari fram á venjulegum
afgreiðslutíma verslana og ber aö greiða sérstakt
leyfisgjald í Bæjarsjóö.
Umsóknir sendist undirrituöum fyrir 20. apríl næst-
komandi.
Akureyri, 2. apríl 1982.
Bæjarstjóri.
Eitt það giæsttegasta í optik-heiminum
Við bjóðum eitt vandaðasta
og besta úrval umgjarða og
sjóngierja hérlendis frá
framleiðendum eins og
Rodenstock, Hampel og
Nigura.
Sérstakiega gott úrval barna
og unglinga umgjarða.
Þjónusta
Afgreiðum gleraugna-
reseptin samdægurs.
Lögum að kostnaðarlausu
gleraugu meðan beðið er.
Tilboð
Við viljum að gefnu tilefni
vekja athygli á því að hjá
okkur er tii takmarkaó
eldri umgjarða sem
við bjóðum nú fyrir kr. 400
með hvaða ólituðum sjón-
glerjum sem til eru á lager.
Til Dalvíkinga:
Verðum á Dalvík alla þriðjud.
i Heilsugæslustöðinni
milli kl. 2-4. Öll almenn
gleraugnaþjón usta.
magn
Glæsilegt úrval - góð þjónusta.
Karl Daviðsson.
Gleraugnaþjónu/tcm
SKIPAGATA 7 - PÓSTHÓLF11 - 602AKUREYRI - SÍMI24646.
12-PÁ6yR-6;’apriMSt82
l U li 5