Dagur - 06.04.1982, Síða 13
Haraldur Ólafsson
íþróttamaður Akureyrar
í kaffíhléi á ÍBA þingi á laug-
ardaginn var lýst kjöri á
íþróttamanni Akureyrar fyrir
árið 1981. Er þetta í þriðja
sinn sem slík útnefning fer
fram, og fær handhafí titilsins
veglegan farandbikar til varð-
veislu.
Samkvæmt reglum um út-
nefningu á íþróttamanninum
skulu íþróttarfréttaritarar frá
Akureyri, ásamt fulltrúum frá
ÍBA kjósa íþróttamanninn, eftir
sérstökum reglum þar að lút-
andi. Að þessu sinni voru í þess-
ari nefnd frá ÍBA, Gunnar
Kárason, Þröstur Guðjónsson,
Pétur Pálmason og Skapti Hall-
grímsson íþróttafréttaritari
Morgunblaðsins hér á Akureyri,
og Olafur Ásgeirsson frá Degi.
Að þessu sinni fengu alls ellefu
íþróttamenn stig í atkvæða-
greiðslunni. Haraldur Ólafsson
lyftingarmaður úr Þór, fékk flest
stig eða 95 af 100 mögulegum og
var því kjörinn íþróttamaður
Akureyrar fyrir árið 1981. Er
þetta í annað sinn í röð sem Har-
aldur hlýtur þennan heiður.
Haraldur er tæplega tvítugur
Akureyringur og hefur stundað
lyftingar sl. sex ár. Aðeins 14 ára
var hann valinn í landslið full-
orðinna í lyftingum og hefur ver-
ið fastamaður í liðinu síðan.
Haraldur keppir í tvíþraut sem
talin er mjög erfið, og af mörg-
um talin ein sú tekniskasta
íþróttagrein sem keppt er í á
Olympíuleikjum.
Haraldur varð Norðurlanda-
meistari unglinga í 75 kg. flokki
árið 1980 og 1981 en áður hafði
hann hlotið bæði silfur og brons-
verðlaun. Þeir sem hlutu 2-6
sæti í stigatöflunni um kjör á
íþróttamanninum fengu áritað-
ar bækur sem gefnar voru út af
Bókabúð Jónasar, en þeir voru
þessir:
No. 2 Jóhannes Hjálmarsson,
Þór, kraftlyftingarmaður, 80
stig.
No. 3 Nanna Leifsdóttir, KA,
skíðakona, 52 stig.
No. 4 Jón Þór Gunnarsson,
GA, golfmaður, 44 stig.
No. 5-6 Gylfi Gíslason, Þór,
lyftingamaður, 36 stig.
No. 5-6 Halldór Áskelsson,
Þór, knattspyrnumaður, 36 stig.
Aðrir sem stig hlutu taldir í staf-
rófsröð. Kári Elíasson, lyftinga-
maður, Kristján Falsson, lyft-
ingamaður, Snæbjörn Þórðar-
son, íþr.fél. fatlaðra, Tryggvi
Haraldsson, skíðamaður.
Margir í landsliðið
Blaksambandið hefur nú valið
landslið kvenna og unglinga
til að leika nú um páskana
þrjá unglinga og þrjá kvenna-
landsleiki í blaki.
í kvennalandsliðinu eru tvær
stúlkur úr KA en þær eru Gyða
Steinsdóttir og Hrefna Brynj-
ólfsdóttir. Gyða hefur áður
leikið í landsliðinu, en þetta
verða fyrstu leikir Hrefnu.
í unglingalandsliðinu eru fjór-
ir piltar úr fyrstu deildar liði
UMSE. Það eru þeir Hjalti Hall-
dórsson, Karl Valtýrsson, Stef-
án Jóhannesson og Þórir
Schiöth.
Allir þessir leikir verða við
frændu vora Færeyinga, en
kvennaliðin hafa áður leikið
saman og ávallt hafa íslensku
stúlkurnar sigrað, en einu sinni
hafa unglingarnir leitt saman
hesta sína og þá sigruðu Færey-
ingar.
JUDO
Júdóráð Akureyrar gekkst ný-
lega fyrir innanfélagsmóti, svo-
kölluðu gráðumóti, þar sem ein-
ungis þeir máttu keppa er höfðu
gráðuna 5. kyu, þ.e. gult belti,
eða lægri gráðu, þ.e. 6. kyu, eða
hvítt belti. Á mótinu var keppt í
drengjaflokki og tveimur þyngd-
arflokkum karla.
Úrslit í drengjaflokknum
urðu þessi:
1. Jósef Friðriksson Þór
2. Jóhannes Guðnason Þór
3. Benedikt Ingólfsson KA
Úrslit í karlaflokkunum urðu
þessi:
Þyngri flokkur:
1. Kristján Þorkelsson Þór
2. Þorsteinn Pétursson Þór
í flokknum voru bara tveir
keppendur og þvf einungis ein
glíma. Glíman byrjaði með
miklum sviptingum sem enduðu
Hafþór
aftur
í Þór
Hafþór Helgason sem hér áður
fyrr lék knattspyrnu með Þór,
hefur nú aftur gengið til leiks við
Þórsara. í fyrra lék hann með
fyrstu deildar liði Víkings. Það
verður mikill styrkur fyrir Þórsara
að fá Hafþór aftur í sínar raðir.
á því að Kristján kom bragði á
Þorstein og felldi hann. Kristján
náði síðan fastataki á Þorsteini í
gólfinu og hélt honum í 30 sek-
úndur, sem er sá tími er þarf að
halda manni í fastataki til þess
að sigra.
Léttari flokkur:
1. Árni Ingólfsson KA
2. Birgir Arnarsson KA
3. Tómas Halldórsson KA
Flestar glímurnar voru mjög
tvísýnar en þó stóð nýbakaði ís-
landsmeistarinn okkar, Árni
Ingólfsson, nokkuð upp úr, en
hann náði nokkrum mjög falleg-
um brögðum.
Mótið gekk snurðulaust fyrir
sig og fór vel fram í alla staði.
Mótstjóri var Jón Hjaltason en
dómarar voru þeir Cees van de
Ven, Kristján Friðriksson og
Þorsteinn Hjaltason.
Eftir mótið gekkst Júdóráð
Akureyrar fyrir gráðuprófi og
tóku flestir keppendurnir þátt í
því og stóðust þeir það allir,
enda búnir að æfa bæði vel og
lengi undir það. Þetta var mikill
og merkilegur viðburður í sögu
JRA því þetta var fyrsta gráðun-
in er JRA sé að öllu leyti um
sjálft. Samkvæmt nýjum-gráðu-
reglum Júdósambands Islands
hafa sérsamböndin innan þess
nú rétt til þess að gráða félags-
menn sína upp í 4. kyu eða app-
elsínugult belti. Júdóráð Akur-
eyrar fyrirhugar að halda a.m.k.
tvö gráðupróf á vetri í framtíð-
inni
Þ.H.
Jón Lárusson
Haraldur Ólafsson - íþróttamaður Akureyrar 1982.
Akureyrarmót
í badminton
Jón
þjálfar
Magna
Jón Lárusson sem um árabil hefur
leikið knattspyrnu með Þór, hefur
nú tekið að sér þjálfun hjá Magna
frá Grenivík. Grenvíkingarnir
hafa átt ágætis knattspyrnulið
undanfarin ár, en hafa oftast leik-
ið í þriðjudeild, en þó einnig í
annarri og staðið sig þar með
ágætum. I sumar leikur liðið í
þriðju deild.
Um síðustu helgi var haldið Ak-
ureyrarmót í badminton, og
urðu úrslit þessi:
Meyjar (12-14 ára)
Einliðaleikur:
Jónína Jóhannsdóttir.
Tvíliðaleikur:
Jónína Jóhannsdóttir
Járnþrúður Þórarinnsdóttir.
Sveinar (12-14 ára)
Einliðaleikur:
Einar Karlsson.
Tvíliðaleikur:
Einar Karlsson.
Sigurður Sveinmarsson.
Telpur (14-16)
Einliðaleikur:
Heiðdís Sigursteinsdóttir.
Tvíliðaleikur:
Hulda Gílsadóttir
Berghildur Þóroddsdóttir.
Drengir (14-16)
Einliðaleikur:
Árni Gíslason.
Tvíliðaleikur:
Hafþór Heimisson.
Sigurður Valgarðsson.
Firmakeppni
í knattspyrnu
Um helgina voru leikir í riðla-
keppni í Firmakeppni KRA. Alls
tóku 15 lið þátt í mótinu og var
þeim skipt í þrjá riðla. Sigurverar-
ar í þessum riðlum urðu Útgerð-
arfélag Akureyrar, A lið SÍS og A
lið KEA. SÍS og KEA unnu alla
leiki í sínum riðlum, en ÚA tap-
aði einu stigi er þeir gerðu jafn-
tefli við lið lögreglunnar. Á
þriðjudagskvöldið verða úrslita-
leikirnir spilaðir í íþrótta-
skemmunni kl. 20.30.
é:^i#1i982 - ÖÁGÚR -13