Dagur - 06.05.1982, Blaðsíða 1
MtKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA-
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 6. maí 1982
48. tölublað
Fæðast allir
í Reykjavík í
„Þessi drög aö reglugerö um
flokkun sjúkrahúsa eru svo
fjarstæðukennd, ef við höfum
skilið þau rétt, að þau eru með
ólíkindum,“ sagði Ásgeir
Höskuldsson framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, í viðtali við Dag, en
Heilbrigðisráðuneytið hefur nú
sent drög að slíkri reglugerð til
umsagnar sjúkrahúsa út um
land. Meginlínan í þessum
drögum er sú, að fjölmörg
verkefni eru tekin frá lands-
byggðasjúkrahúsunum og færð
alfarið í hendur sjúkrahúsun-
um í Reykjavík. Sem dæmi má
íslendingar
framtíðinni?
sparnaðarsjónarmið. Ég get ekki
séð að það sé peningalegur sparn-
aður í því að senda allar verðandi
mæður til Reykjavíkur. Með
þessu er verið að snúa við þeirri
þróun sem verið hefur, að færa
sérfræðiþjónustuna út til fólksins.
Stjórn Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri hefur mótmælt þessu og
farið fram á að tekið verði mið af
því skipulagi sem nú er við lýði og
þeirri þróun sem verið hefur í
þessum rnálurn," sagði Ásgeir
Höskuldsson að lokum. Á bls. 3 í
blaðinu í dag, er sgat frá mótmæl-
um stjórnar Sjúkrahússins á
Siglufirði vegna þessa sama máls.
nefna, að ekki er einu sinni gert
ráð fyrir að konur geti fætt börn
í sinni heimabyggð, þó sjúkra-
hús séu þar fyrir hendi, heldur
eiga öll börn að fæðast á Land-
spítalanum í Reykjavík eftir því
sem skilið verður af þessum
drögum. Svo gæti farið að
smátt og smátt verði allir lands-
menn Reykvíkingar, þ.e. ef
miðað er við fæðingarstað.
„Þessi drög snerta okkur að því
leyti, að hlutverk okkar sem vara-
sjúkrahús fyrir sjúkrahúsin í
Reykjavík fellur út. Þá virðist
hlutverk okkar sem svæðissjúkra-
hús fyrir Norðurland vestra og
hluti af Austurlandi einnig falla
niður, en við höfum sinnt þessu
hlutverki að nokkru leyti með
m.a. sérfræðiþjónustu á sviði
háls-, nef- og eyrnalækninga,
augnlækninga, sérhæfðra skurð-
lækninga og sérhæfðrar fæðingar-
hjálpar, auk barnalækninga.
Álvarlegasta málið er hins vegar
það, að varðandi sjúkrahúsin í
Reykjavík er upptalning á því
hvaða þáttum þau eiga að sinna. í
almennri upptalningu á hlutverki
sjúkrahúsanna á Akranesi, ísa-
firði, Akureyri og Neskaupstað er
ekki minnst á suma þá sérfræði-
þjónustu sem þar hefur verið
veitt,þ.á m.erekki minnstáfæð-
ingardeildir og barnadeilir, þann-
ig að þetta gæti þýtt að allar fæð-
ingar eigi að fara fram á Landspít-
alanum og auk þess að við ættum
að leggja niður okkar sérfræði-
þjónustu, sem ég gat um áðan og
þá einnig bæklunarlækningar sem
unnið hefur verið að því að koma
á fót.“
- Hverjir semja þessa reglu-
gerð og hver er tilgangurinn?
„Mér sýnist þetta fara vel
saman við hugmyndir borgar-
læknis, sem hann viðraði á heil-
brigðisþingi 1980. Tilgangurinn
gæti verið eitthvað misskilið
Aðalfundur
KEA
hefstá
morgun
Aðalfundur Kaupfélags Ey-
firðinga verður haldinn í Sam-
komuhúsi bæjarins á morgun
og laugardag. Fundurinn hefst
kl. 10 í fyrramálið.
Fyrst á dagskrá fundarins er
rannsókn kjörbréfa og kosning
starfsmanna fundarins, síðan er
skýrsla stjórnar og kaupfélags-
stjóra. Reikningar félagsins verða
lagðir fram og umsögn endur-
skoðenda. Þá verða reikningar af-
greiddir og sömuleiðis tillögur fé-
lagsstjórnar um ráðstöfun eftir-
stöðva o.fl. Stjórn Menningar-
sjóðs mun leggja fram skýrslu
sína og endanlegt frumvarp að
stefnuskrá samvinnuhreyfingar-
innar verður kynnt. Framsögu-
maður í því máli er Hjörtur Hjart-
ar fyrrverandi framkvæmdastjóri.
Þá verða tekin fyrir erindi deilda,
önnur mál og kosningar.
Gunnar Gunnarsson heitir þessi vígreiG piltur, starfsmaður Rafveitu Akureyrar. Minkinn elti hann uppi og vó með
skóflunni skammt frá húsum Rafveitunnar við Glerá.
Verður vatn
flutt
útfrá
Akureyri?
Á fundi í vatnsveitustjórn fyrir
skömmu lagði Sigurður B.
Svanbergsson vatnsveitu-
stjóri, fram greinargerð um
frumkönnun, sem hann hefur
framkvæmt á hagkvæmni þess
að selja vatn til útlanda. Þessi
frumathugun bendir til að hag-
kvæmt kunni að vera að selja
vatn til útlanda.
Stjórn vatnsveitunnar fól Sig-
urði að láta kanna til hlítar gæði
og geymsluþol vatnsins. Enn-
fremur fól stjórnin Sigurði að
kanna frekar markaðsmöguleika
fyrir vatn erlendis og framleiðslu-
hætti. Að þessari könnun lokinni
er gert ráð fyrir að Sigurður leggi
niðurstöðurnar fyrir stjórn vatns-
veitunnar til frekari ákvarðana-
töku.
44% hærri laun
- til þeirra Iðjufélaga sem starfa á Norðurlandi eystra en f Reykjavík
Framkvæmdastofnun ríkisins
hefur gefið út bók um vinnu-
markaðinn árið 1980. í þessari
bók er skýrsla um Iaunagreiðsl-
ur í öllum landsfjórðungum og
eru þær flokkaðar eftir at-
vinnugreinum. Þegar launa-
greiðslur frá ullar- og skinna-
verksmiðjum á Norðurlandi
eystra eru bornar saman við
sambærilegar atvinnugreinar
annarsstaðar á landinu kemur í
ljós að laun til Iðjuféiaga á Nl.
eystra eru mun hærri en gerist
°g gengur. g.ns Qg er
starfa flestir umræddra Iðjufé-
laga á Akureyri, hjá Verk-
smiðjum Sambandsins á Gler-
áreyrum. Sé miðað við Reykja-
vík er munurinn 43.8%, en sé
miðað við landið allt er munur-
inn 29%.
Sá flokkur sem Verksmiðjur
Sambandsins eru í nefnist „Vefj-
ariðnaður, skó- og fatagerð,
ásamt sútun og verkun skinna".
Árslaun í þessum flokki árið 1980
voru 5.405.000gkr. að meðaltali á
landinu öllu og er þá einungis átt
við félaga í Iðju. í Reykjavík voru
árslaunin 4.848.000 gkr., Reykja-
nes 5.422.000 gkr., Vesturland
4.310.000 gkr., Vestfirðir
5.787.000 gkr., Norðurland
vestra 5.255.000 gkr., Norður-
land eystra 6.973.000 gkr., Aust-
urland 5.342.000 og Suðurland
4.655.000 gkr.
Munurinn á árslaunum Iðjufé-
laga á Nl. eystra og í Reykjavík er
43.8%, sem þau eru hærri á Nl.
eystra. Sé tekið meðaltal landsins
alls er munurinn 29% - Iðjufélög-
um á Nl. eystra í hag eins og áður
sagði.
„Að sjálfsögðu erum við
ánægðir með þessa niðurstöðu,“
sagði Hjörtur Eiríksson fram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
SÍS, þegar Dagur bar þessar tölur
undir hann. „Við vissum það hins
vegar að við greiddum bestu Iðju-
launin á landinu, en að launa-
mismunurinn væri svona mikill
vissum við ekki. Það er bónusinn
sem á mestan þátt í að hækka okk-
ar fólk, en það hefur einnig áhrif
að hjá Verksmiðjum Sambands-
ins á Akureyri er mikið af fólki,
sem er komið í hæstu launaflokk-
ana hjá Iðju. í dag eru mörg fyrir-
tæki í þessum iðnaði komin með
bónus, fyrirtæki sem höfðu hann
ekki hér áður. Ég á von á að önn-
ur landssvæði hafi hækkað og að
munurinn hafi minnkað. En það
breytir því hins vegar ekki að Iðn-
aðardeild Sambandsins greiðir í
dag hæstu meðaltalslaunin í land-
inu til starfsfólks Iðju.
©
Hríngið í fram-
bjóðenduma!
Á morgun, föstudag, milli
klukkan 17 og 20, gefst kjós-
endum á Akureyri tækifæri til
að leggja spurningar fyrir fram-
bjóðendur Framsóknarflokks-
ins með því að hringja í síma
24222 á umræddum tíma.
Snorri Finnlaugsson kosn-
ingastjóri Framsóknarflokks-
ins á Akureyri, sagðist vilja
hvetja fólk til að hringja í fram-
bjóðendurna og ræða við þá.
Dagur mun birta úrdrátt úr
spurningum og svörum í næstu
viku.