Dagur


Dagur - 11.05.1982, Qupperneq 3

Dagur - 11.05.1982, Qupperneq 3
Sumaráætlun Flugleiða: Nú er boðið i upp á „tæki- færisverð“ Flugleiðir hafa nú ákveðið að taka upp nýjan afslátt fyrir þá farþega utan Reykjavíkur sem ætla að halda áfram úr innan- landsflugi í millilandaferðir, hvort sem er áætlunarflug eða leiguflug. Þessi afsláttur sem nefnist „Tækifærisverð“ er 35% og nær til alls innanlands- flugs Flugleiða. Miðarnir eru bundnir við ákveðin flug og ákveðnar ferðir og hægt er að bóka frjálst í þessar ferðir, allt að tveimur sólarhringum fyrir brottför. Síðustu 48 tímana fyrir brottför þarf þó sérstaka staðfestingu á bókun. Þetta „tækifærisverð" gildir í flug FI-26 til Akureyrar alla daga nema föstudaga og sunnudaga, og í flug FI-21 frá Akureyri alla daga nema föstudaga og sunnudaga. Fyrir Húsvíkinga gildir „tæki- færisverðið“ með flugi FI-54 og FI-55 til og frá Húsavík mánu- daga og miðvikudaga, og í flug FI- 56 og FI-57 til og frá Húsavík á laugardögum. Fyrir Sauðárkróksfarþega er flug FI-132 og FI-133 til og frá Sauðárkróki miðvikudaga og föstudaga. Sumaráætlun Flugleiða gekk í gildi um síðustu mánaðamót, og er áætlunin svipuð og í fyrra- sumar. Frá Reykjavík til Akur- eyrar verða 33 ferðir í viku, fimm ferðir á dag nema þriðjudaga og miðvikudaga en þá eru fjórar ferðir. Frá Reykjavík til Húsavík- ur verða 7 ferðir, þ.e. ein ferð hvern dag vikunnar, og til Sauðár- króks verður flug alla daga vik- unnar nema laugardaga. Flugfélag Norðurlands heldur uppi reglubundnu áætlunarflugi frá Akureyri til tíu staða nórðan- lands og ennfremur til ísafjarðar og Egilsstaða. Áætlanir Flugleiða og Flugfélags Norðurlands eru samræmdar, þannig að farþegar eiga þess kost að fá beint fram- haldsflug með Flugfélagi Norður- lands sem flýgur frá Akureyri til Egilsstaða, Grímseyjar, Húsavík- ur, ísafjarðar, Kópaskers, Rauf- arhafnar, Siglufjarðar, Þórshafn- ar, Vopnafjarðar, Ólafsfjarðar og ennfremur milli Ólafsfjarðar og Reykjavíkur. Þessa dagana er „Eftirlits- maðurinn“ á fjölunum hjá Leikfélagi Akureyrar. Eftir- litsmaðurinn er gamanleikur eftir Nikolaj Gogol í þýðingu Sigurðar Grímssonar. Leik- stjórarnir eru tveir, þær Guð- rún Ásmundsdóttir og Ásdis Skúladóttir og sjá þær ásamt Jóni Hjartarsyni um leikgerð. Leikmynd og búningar eru eftir Ivan Török, lýsing er í umsjá David Walters og leik- hljóð og tónlist á Gunnar Reynir Sveinsson heiðurinn af. Nikolaj Gogol fæddist í Úkra- ínu en flutist tvítugur að aldri til Pétursborgar þar sem hann aflaði sér fljótlega vinsælda með lýsingum sínum á Úkraísku bændalífi sem yfirstéttin rússn- „Eftirlits maðurinn“: eska hreifst mjög af. Frægastur verður þó Gogol fyrir leikrit sín enda tókst honum undravel að flétta saman eitilharða þjóðfél- agsgagnrýni og óborganlegt spott og spé. Eftirlitsmaðurinn vegur harkalega að spillingu rússn- eksra embættismannastéttar á 19. öldinni með hárbeittum eggjum háðsins en eins og öll sígild verk á það alltaf jafn brýnt erindi við áhorfandann hvar og hvenær sem er, hvort heldur það er í Pétursborg 1836 eða á Akur- eyri 1982. í leikskrá segir: „Það gefur þó auga leið að nútímamaðurinn verður að nálgast verkin á annan Marinó Þorsteinsson, Guðlaug Hennannsdóttir og Guðbjörg Thoroddsen í hlutverkum sínum. Skemmtilegt „uppbrot hátt í dag en gert var fyrir 100 til 150 árum. Því hefur sýningu L.A. á „Eftirlitsmanninum" verið valinn nýr farvegur. Skop- ið dregið fram, eins og hug- kvæmi og hæfileikar hrökkva til og síðast en ekki síst hefur form- ið verið brotið upp, til þess að gefa listamönnunum frjálsari hendur og fjölbreyttari túlkun- armöguleika. Hugmyndin er að áhorfendur og leikarar upplifi eitt allsherjarleikhús, þar sem þeir geti skemmt sér saman og hlegið að sjálfum sér eina kvöldstund.“ Þetta „uppbrot" er skemmti- lega gert með líflegum texta Jóns Hjartarsonar á milli atriða. Með helstu hlutverk fara: Gestur E. Jónasson sem leikur manninn sem borgarstjórinn, Þráinn Karlsson, fjölskylda hans, Guðlaug Hermannsdóttir og Guðbjörg Thoroddssen og embættismenn borgarinnar, Heimir Ingimarsson, Þröstur Guðbjartsson og Jónsteinn Aðalsteinsson, halda að sé ettirlitsmaður á vegum rikisins. Aðrir leikarar eru: Marinó Þor- steinsson og Theodór Júlíusson sem leika höfund leikritsins og leikhússtjórann sem setja leik- ritið á svið, Andrés Sigurvins- son, sannfærandi þjónn, drykk- felldur póstmeistari Ingibjörg Björnsdóttir og Sunna Borg. Vinsælar sumarvörur Sumarfatnaðurinn streymir inn á báðar hæðir Vefnaðarvörudeildin minnir á: sendingu af kvenkápum frá Gazella glæsilegar flíkur - nýjir litir, ný snið. Kvenbuxur frá Ðrandtex, Lee Cooper og mikið litaúrval, falleg snið. Jakkar og stakkar frá Brandtex og Duffys. Ath.: Blúndukapparnir voru að koma, 60 og 90 sm., m/og án kögurs. ... hins vegar stækkar „SNUGLI41 barnaburðarpokinn með barninu Barnið vex en brókin ekki. . BOLIR langerma og stutterma PEYSUR kr. 199,- sumarstakkar og frakkar Herradeild SNUGLI-pokinn sá allra sniðugasti. Sportvörudeild. Munið SELKO fataskápana Hrísalundi 5, neðri hæð. HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SlMI (96)91400 11. maí 1982 -OAGUR-3

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.