Dagur - 11.05.1982, Blaðsíða 6
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga
Miklar fjár-
fest i ngar
I upphafi ársins 1981 ræddi stjórnin ítarlega
fjárfestingaáætlun fyrir árið og fjárfestingar og
verklegar framkvæmdir voru síðan ítrekað til
umræðu á stjórnarfundum. Heildarfjárfestingar
félagsins á árinu 1981 uröu kr. 24.543.557,19.
Seldar voru eignir á árinu að fjárhæð kr.
1.417.710,00, þannig að nettófjárfesting varð
kr. 23.125.847,19. Sundurliðun fjárfestinganna
eftir megin þáttum:
Kr
Lóðir 278.594,00
Huseignir 13.417.271,17
Vélar og tæki 3.662.632,58
Versl.- og skrifst.áh. og innrétt. . 4.031.142,00
Bifreiðar 3.153.917,44
Samtals kr. 24.543.557,19
Eftir byggðalögum sundurliðast fjárfesting-
arnar þannig:
Akureyri Kr. 19.760.205,11
Grenivík 1.307.937,86
Grímsey 75.448,00
Hauganes 43.306,67
Hrisey 2.400.468,82
Dalvik 956.190,73
Fjárfestingar á Akureyri voru að sjálfsögðu
eins og áður að miklu leyti í viðfangsefnum, sem
þjóna félagssvæðinu öllu. Af einstökum stærstu
fjárfestingum má nefna, að varið var kr.
5.476.638,05 til endurbóta á gömlu mjólkur-
stöðinni í Grófargili og til frágangs á nýrri
brauðgerð þar í húsinu, með tilheyrandi vélum
og tækjum. Til kaupa á vöruskemmu á Togara-
bryggju var varið kr. 3.500.000,00. Til viðbygg-
ingar við Frystihúsið í Hrísey, svo og til kaupa á
vélum og tækjum fyrir frystihúsið, var varið kr.
2.400.468,82. Á árinu var lokió vió fjárfestingu í
nýju kornhlöðunni á Oddeyrartanga, en til
þeirrarframkvæmdarvar varið kr. 1.656.137,34.
Til kaupa á bifreiöum og tengivögnum fyrir Bif-
reiðadeild var varið kr. 1.574.016,54. I nýrri
þjónustumiðstöð á Grenivík voru fjárfestar kr.
1.307.937,86. Til viðbyggingar við Sláturhúsið á
Akureyri var varið kr. 1.079.958,99. Til fjárfest-
ingar í Mjólkursamlaginu var varið kr.
908.636,20 vegna kaupa á vélum, tækjum, raf-
magnslyftara og bifreið fyrir fjósaeftirlit. Til
kaupa á verslunaráhöldum og innréttingum í
kjörbúðinni í Kaupangi var varið kr. 900.000,00.
Fjárfesting í nýju húsnæði fyrir Véladeild fé-
lagsins að Öseyri 2 nam kr. 881.472,85 og í nýrri
kjörbúð íverslunarmiðstöðinni að Sunnuhlíð 12
á Akureyri kr. 778.544,70. Keypt voru tæki og
lyftarar fyrir Frystihúsið á Dalvík fyrir samtals kr.
772.727,72 og hafa þá verið nefndir einstakir
fjárfestingarliðir, sem námu yfir hálfri milljón kr.
Til þessara miklu fjárfestinga fengust ný lang-
tímalán að fjárhæð kr. 13.690 þús., en afborg-
anir af eldri langtímalánum námu kr. 8.876 þús.
Innlánsdeild félagsins jókst um kr. 11.561 þús.
Veruleg
verðtrygg-
ing
stofnsjóðs
Vextir af stofnsjóði og hugsanleg verðtrygg-
ing stofnsjóðs var til meðferðar hjá stjórninni á
árinu. Samkvæmt lögfræðilegri athugun á veg-
um Sambandsstjórnar er ekki grundvöllur sam-
kvæmt núgildandi lögum fyrir verðtryggingu
stofnsjóða, en hinsvegar talið eðlilegt að verð-
tryggja stofnsjóði eftir föngum með vaxta-
greiðslum. Stjórnin ákvað í ársbyrjun 1981 að
reikna 28% vexti af almennum stofnsjóði á árinu
1980, en lagði síðan til við aðalfund vorið 1981
viðbótarvexti, þannig að heildarvextir fyrir árið
1980 yrðu 34%. Var sú tillaga samþykkt af
aöalfundi. í árslok 1981 samþykkti stjórnin svo
að reikna 34% vexti af almennum stofnsjóði fyrir
1981 og leggur nú til við aðalfund, að reiknaðir
verði viðbótarvextir, þannig að heildarvextlr
fyrir árið 1981 verði 40%. Með þessu móti er
leitast við að ná fram verulegri verðtryggingu
hins almenna stofnsjóðs.
og stofnsjóðir hækkuðu um kr. 3.442 þús.,
þannig að þessir liðir skiluðu fjármagni til ráð-
stöfunar samtals að fjárhæð kr. 19.817 þús.
Heildarbirgðir íefnahagsreikningi hækkuðu um
kr. 61.988 þús. frá árinu á undan, en til þeirra
fengust að sjálfsögðu ýmiskonar reksturslán.
Fjármagnsmyndun í rekstri var umtalsveð á ár-
inu, svo sem síðar verður að vikið, þannig að
þrátt fyrir miklar fjárfestingar og mikla birgða-
aukningu jókst hreint veltufé félagsins um kr.
4.519 þús. Greiðslustaðan má þó ekki þrengri
vera og þarf að leitast við að bæta hana á kom-
andi árum þótt slíkt verði efalaust vandkvæðum
bundið vegna mikilla fjárfestingaverkefna, sem
enn bíða úrlausnar, og þó sérstaklega ef verð-
bólguþróun heldur áfram með svipuðum hætti
og á undanförnum árum. Það bætti greiðslu-
stöðu félagsins á síðasta ári, að nettóstaða við-
skiptareikninga félagsmanna batnaði um kr.
5.766 þús í árslok miðað við áramótin á undan.
Hinsvegar versnaði nettóstaða viðskiptareikn-
inga utanfélagsmanna og fyrirtækja um kr.
9.009 þús. og eigin fyrirtæki bættu stöðu sína
við félagið um aðeins kr. 227 þús., þannig að í
heild versnaði staða viðskiptareikninga hjá fé-
laginu. Það virðist því þörf fyrir aukið aðhald í
útlánum á árinu 1982.
Frá aðalfundinum.
Reksturinn batnaði
verulega á árinu
Heildarvelta Kaupfélags Eyfirðinga á árinu
1981 í aóalrekstri, að afurðareikningum við-
bættum, var kr. 792.370.946,00 og hafði aukist
um 55,7% frá árinu 1980. Velta samstarfsfyrir-
tækjannavar kr. 217.339.778,00og hafði aukist
um 58,6% frá fyrra ári og var þá heildarvelta
kaupfélagsins og fyrirtækja þess á árinu 1981
kr. 1.009.710.724,00 og hafði aukist um 56,3%
frá fyrra ári. Að launatengdum gjöldum með-
töldum voru heildarlaunagreiðslur félagsins á
árinu kr. 110.125.862,00, án þess að sam-
starfsfyrirtæki séu meðtalin, og höfðu þær
aukist um 51,8% frá árinu á undan. Miðað við
tryggingarskyldar vinnuvikur var meðalfjöldi
starfsmanna hjá fólaginu 944 á árinu 1981, en
941 á árinu 1980.
Opinber gjöld, sem færð eru til gjalda
í rekstursreikningi, fyrir utan launatengd gjöld
og fasteignagjöld, voru kr. 5.809 þús og fast-
eignagjöld voru kr. 2.440 þús. Ofrádráttarbær
opinber gjöld, þ.e. tekjuskattur, eignaskattur og
kirkjugarðsgjald var kr, 1.417 þús. og vörugjald
var kr. 586 þús. Söluskattur, sem félagið inn-
heimtir fyrir hið opinbera, var kr. 25.141 þús.
Rekstursreikningur ársins sýnir hagnað að
fjárhæð kr. 800.118,44. Hafa þá verið reiknaðar
allar venjulegar fyrningar fasteigna, véla og
tækja, svo og aukafyrningar aö fjárhæð kr.
4.500.000,00 og fyrning viðskiptakrafna að
fjárhæð kr. 2.000.000,00. Fjármunamyndun í
rekstri var kr. 23.483 þús. auk hluta KEA í fjár-
munamyndun sameignarfyrirtækja, kr. 1.806
þús., eða samtals kr. 25.289 þús. Fjármuna-
myndun á árinu 1980 var hinsvegar kr. 10.878
þús., þannig að reksturinn þatnaði verulega á
árinu. Efnahagsstaða félagsins styrktist enn.
Eigið fé og stofnsjóðir í árslok 1981 voru kr.
240.588 þús., en voru kr. 149.963 þús. í árslok
1980. Eigið fé og stofnsjóðir voru 43,7% af
niðurstöðu efnahagsreiknings í árslok, en voru
41,4% í lok ársins 1980. Efnahagsstaðan hefur
því batnað um 2,3% sem hlutfall af niðurstöðu
efnahagsreiknings, sem ber alveg sérstaklega
að fagna. Það skal sérstaklega fram tekið, að í
framangreindri fjármunamyndun er ekki með-
talin tekjufærsla vegna verðbreytinga samkv.
skattalögum að fjárhæð kr. 27.412 þús.
Tæplega 3 milljónir
veittar í afslátt
Stjórn félagsins
gerir að venju tillögur til aðalfundar um
ráóstöfun eftirstöðva rekstursársins. -Gert er
ráð fyrir endurgreiðslu tekjuafgangs aó fjárhæð
kr. 150.000,00 af viðskiptum við Stjörnu-apótek,
gert er ráð fyrir 6% viðbótarvöxtum af almenn-
um stofnsjóði og gerðar eru myndarlegar til-
lögur um framlög til ýmissa menningar- og
framfaramála á félagssvæðinu. Grundvöllur
fyrir endurgreiðslu tekjuafgangs af almennri
verslun félagsins er hinsvegar ekki fyrir hendi,
þar eð heildarverslunin er rekin með nokkrum
halla. Hinsvegar skal það-upplýst, áð afslættir til
félagsmanna samkvæmt afsláttarkortum í
nóvember á árinu 1981 námu kr. 317 þús.
Verölækkun í markaðsversluninni í Hrísalundi
frá leyfilegum verðum á hverjum tíma nam kr.
1.487 þús. Auk þess tók svo félagið á
sameiginlegan reksturskostnað flutningskostn-
að til útibúanna í firðinum, sem leyfilegt hefði
verið að bæta við vöruverð, en sá kostnaður
nam kr. 1.153 þús. Samtals hefur því félagið
lækkað vöruverð á þennan þrennan hátt frá
leyfilegum verðum um kr. 2.957 þús. og má það
kallast myndarlegur fyrirfram endurgreiddur
tekjuafgangur.
Styrkir sem stjóm
félagsins úthlutaði
Félaginu bárust allmargar styrkbeiðnir á ár-
inu 1981 og afgreiddi stjórn félagsins þær með
ýmsu móti eftir aðstæðum. Þannig var sumum
þeirra vísað til stjórnar Menningarsjóðs fé-
lagsins.
Þrjár styrkbeiðnir afgreiðir fé-
lagsstjórnin með tillögugeró til aðalfundar nú í
vor, en það eru styrkbeiðnir frá Grundarkirkju,
frá U.M.S.E. og frá Systraselssöfnun. Af öðrum
styrkbeiðnum, sem afgreiðslu hlutu á árinu, má
nefna, að kr. 5.000,00 voru veittar til Nökkva,
félags siglingamanna á Akureyri. Til prestafé-
lags Hólastiftis voru veittar kr. 5.000,00 vegna
minnisvarða um Þorvald víðförla og Friðrik
biskup af Saxlandi. Til Slysavarnafélagsins
Varnar á Siglufirði var veittur styrkur að fjárhæð
kr. 20.000,00 til kaupa á húsnæöi fyrir starfsemi
félagsins og þess má svo geta að á stjórnar-
fundi í mars 1982 var samþykkt styrkveitmg að
fjárhæð kr. 15.000,00 til byggingar sundlaugar
yið Hólaskóla, en styrkveiting þessi var ákveðin
í tilefni af 100 ára afmæli Hólaskóla. Auk
framangreinds má svo geta þess, að framlag
kaupfélagsins til Minjasafnsins á Akureyri var
ákveöið á árinu 1981 kr. 42.200,00 vegna
reksturs og kr. 20.400,00 vegna framkvæmda,
eða samtals kr. 62.600,00.
Hugsanleg þátttaka félagsins í Grasköggla-
verksmiðju í Reykjahverfi í Þingeyjarsýslu vartil
umræðu í stjórn félagsins á árinu. Beiðni um
þátttöku hafði borist frá undirbúningsstjórn
Graskögglaverksmiðjunnar. Stjórnin samþykkti
að félagið skyldi gerast aðili að Grasköggla-
verksmiðjunni, en upphæð hlutafjárframlags
hefur ekki enn verið ákveðin.
6 - DAGUR4-'11', maí 1:982 !