Dagur


Dagur - 11.05.1982, Qupperneq 12

Dagur - 11.05.1982, Qupperneq 12
Dömur - Herrar - Dömur Mikið permanent - Lítið permanent. Einnig klippingar, litanir og djúpnæring. Allt fyrir hárið. LAUGARDAGA KL. 9-5. Verið velkomin. OPIÐ ALLA VIRKADAGA FRÁKL. 1-6 OG L OftUNDARGEROI Hárgreiðslustofan ADDA, Hólsgerði 4, sími 22069. Akureyringar Sameiginlegur framboðsfundur: Frambjóðendur við komandi bæjarstjórnarkosn- ingar boða til almenns borgarafundar að Hótel KEA fimmtudaginn 13. maí kl. 20.30. Fundarstjórar: Helgi M. Bergs Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir Fundartíma verður skipt í 3 umræður og skriflegar fyrirspurnir leyfðar. Frambjóðendur. Frá Hússtjórnarskóla Akureyrar Sýning á verkum nemenda og kaffisala til ágóða fyrir listaverkasjóð, verður sunnudaginn 16. maí frá kl. 14-18. Brauð- og kökubasar verður í kjallaranum á sama tíma. Nemendureru beðniraðskilamunumsínum á fimmtudag og föstudag. Skólastjóri. Til leigu í Gránufélagsgötu 4, (JMJ-húsinu) Akureyri, 100 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð (1 salur): Möguleiki að leigja það út í tvennu lagi, þá 50 fm í hvoru. Hugsanlegt er að tengja þetta við 100 fm verslun- arhúsnæði á jarðhæð sem verður leigt út seint í sumar eða í haust. Upplýsingar gefur Ragnar Sverrisson í síma 23599 á daginn og 21366 eftir kl. 18. Til sölu Vartburg station árg. 1981. Ekinn 3000 km. Lán getur fylgt. Upplýsingar á Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdi- marssonar, Óseyri 6c, sími 22520 eða á kvöldin í síma 21765. Til leigu í Gránufélagsgötu 4, (JMJ-húsinu) Akureyri, 100 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð (1 salur). Möguleiki að leigja það út í tvennu lagi, þá 50 fm í hvoru. Hugsanlegt er að tengja þetta við 100 fm verslun- arhúsnæði á jarðhæð sem verður leigt út seint í sumar eða í haust. Upplýsingar gefur Ragnar Sverrisson í síma 23599 á daginn og 21366 eftir kl. 18. Opið bréf til frambjóðenda til bæjarstjórnar Akureyrar Nú þegar líður að bæjarstjórn- arkosningum meta einstaklingar og hagsmunasamtök störf frá- farandi bæjarstjórnarmanna svo og útgefnar stefnuyfirlýsingar frambjóðenda um hin ýmsu mál- efni. Þetta er gert til þess að unnt sé að gera upp við sig, hvaða frambjóðendahópi sé rétt að veita atkvæði sitt í kosningun- um. Foreldrasamtökin á Akureyri hafa það að meginmarkmiði að gæta velferðar barna og ungl- inga almennt og þó auðvitað sér- staklega hér á Akureyri. Margar ákvarðanir bæjarstjórnarinnar hafa bein áhrif á velferð barn- anna og unglinganna. Fram á síðustu ár hefur verið mikill mis- brestur á að sanngjarnt tillit hafi verið tekið til þessa hluta bæjar- búa. Vonandi er það þó óðum að breytast. Foreldrasamtökin leggja einmitt mikla áherslu á að þarna verði breyting á og gera þá kröfu til ráðamanna að jafnan sé tekið fullt tillit til barna og ungl- inga við alla ákvarðanatekt. Samtökin eru reiðubúin til mark- vissrara baráttu til þess að svo verði, gerist þess þörf. Hlutur hins opinbera í uppeldi Nú munu Akureyringar innan 18 ára aldurs vera 4700-4800. Það er um 35% af öllum bæjar- búum. Það ætti því að vera út af fyrir sig eftir nokkru að slægjast fyrir frambjóðendur að geta komið nokkuð til móts við þenn- an stóra hóp, sem á svo margt sameiginlegt. Ef börnum og unglingum líður almennt vel í umhverfi sínu, er það meiri hátt- ar ávinningur fyrir ráðamenn og hefur góð áhrif á allt bæjarlífið. Það er einmitt að talsverðu leyti á valdi bæjaryfirvalda, hvernig yngstu kynslóðunum í bænum líður. Þær eru nefnilega undir forsjá þeirra stóran hluta af tíma sínum þangað til gengið er að fullu út i atvinnulífið. Flestir nýir borgarar bæjarins sjá fyrst dagsins ljós á sjúkrahús- inu og njóta síðan heilsuverndar fyrstu mánuðina á Heilsuvernd- arstöðinni, hvort tveggja undir stjórn bæjarstjórnar. Þá tekur Félagsmálastofnun við, en af- skipti af henni hafa allir sem dvelja á dagvist í bænum um ein- hvern tíma og svo flestir sem njóta umönnunar „dag- mömmu“. Loks taka skóíarnir við undir stjórn skólanefndar og svo Æskulýðsráð, sem hefur með unglinga að gera upp að 18 ára aldri. Eins og sést af þessu, er þáttur hins opinbera í uppeldi og um- sjón barna og unglinga mjög mikill. Heyrst hafa þær raddir að foreldrar velti ábyrgð uppeldis- ins yfir á opinberar stofnanir. Foreldrasamtökin telja hins veg- ar að hlutur foreldra ætti að vera sem mestur, sérstaklega fyrstu ár barnsins, enda er það almenn skoðun fólks og er stutt áliti sál- fræðinga. En vandamálið er að bágborin launakjör þorra fólks reka báða foreldra út á vinnu- markaðinn. Einstæðir foreldrar eiga engra kosta völ. Þeir verða að vinna allan daginn til að sjá sér og sínum farborða. Það er því af illri nauðsyn sem flestir foreldrar leggja á sig langan vinnudag. Til að foreldrar þurfi ekki að treysta svo mikið á uppeldis- stofnanir og raun ber vitni, verð- ur að gera þeim kleift að sinna sínu eðlilega uppeldishlutverki. Þá verður dagvistin ekki ein- hliða uppeldis- og geymslustofn- un, heldur kemur sem viðbót og aðstoð við foreldra. Hver er stefnan? Af því sem undan er sagt má ljóst vera, að það skiptir mjög miklu máli fyrir börn og ungl- inga, og þá um leið fyrir alla bæjarbúa, hvaða stefna eða stefnur eru uppi um framkvæmd þessara málaflokka. Á hinum stutta tíma, sem Foreldrasam- tökin á Akureyri hafa starfað, hefur þeim orðið æ ljósara að mörgu er ábótavant í stefnu- mörkun bæjarstjórnarmanna á Akureyri í málefnum barna og unglinga, enda er framkvæmdin eftir því. Segja má, að víðast sé um alls enga stefnú að ræða. Með bréfi dags. 15. okt. 1981 til Félagsmálaráðs Akureyrar spurðust Foreldrasamtökin fyrir um framtíðarstefnu ráðsins í uppbyggingu dagvista. Sú fyrir- spurn var fyrst og fremst borin fram vegna hins alvarlega ástands, sem varað hefur í mörg ár í dagvistarmálum, þ.e. að fjöldi barna á biðlista eftir dag- vistarplássi á Akureyri hefur jafnan skipt hundruðum. Við þessu bréfi hefur ekkert svar borist enn, þrátt fyrir eftir- grennslanir. Stefnuleysið hefur því miður birst víðar. Um stefnu í rekstri og innra starfi dagvista hefur afar fátt sést frá Félagsmálaráði eða stjórnmálaflokkunum. í því sambandi vakti athygli eftirfar- andi klausa í nýrri stefnuskrá eins stærsta stjórnmálaflokks- ins, þar sem rætt er um dagvist- armál: „Beita verður aðhaldi í rekstri og ætlast til þess að notendur þessarar þjónustu taki aukinn þátt í kostnaði við rekstur dagvistunarstofnana. “ „Aðhald í rekstri“ er víða lausnarorðið í yfirstandandi efnahagskreppu, svo að ætla mætti að því skyldi beita sem víðast í rekstri bæjarins að þessu sinni. En svo merkilega vill til að í þessari stefnuskrá er aðeins í einu öðru tilviki rætt um rekstur og þá alls ekki í neinum aðhalds- tón. Á e.t.v. að fjármagna þær framkvæmdir, sem talað er um í stefnuskránni, með því að beita aðhaldi í rekstri dagvista? Heildarskipulag í dagvistar- málum, þar sem t.d. vistun hjá dagmæðrum er tekin með í reikninginn, virðist ekki vera til. Enn viðgengst akstur skóla- barna milli bæjarhluta, sér- kennslumál eru í miklum ólestri. Hafi Æskulýðsráð einhverja stefnu í æskulýðsmálum, þá er hún mjög ómarkviss. Hvað varð t.d. um þann vísi að útideild sem kominn var um árið? Þetta eru dæmi um stefnuleysið í málefn- um barna og unglinga hér í bæ. Tilgangurinn með þessu opna bréfi er að vekja athygli á því, hver staðan er í málefnum barna og unglinga á Akureyri að mati stjórnar Foreldrasamtakanna á Akureyri. Fram hefur komið að lítið fer fyrir stefnumótun í þess- um málum. Sé hún einhver, virðist hún í besta falli felast í því að bjarga tilfallandi neyðar- ástandi fyrir horn hverju sinni. Við viljum því skora á alla frambjóðendur til bæjarstjórnar Akureyrar 1982 að beita sér fyrir markvissri stefnumótun sem taki til allra þátta uppeldis- og fjölskyldumála í bænum. For- eldrasamtökin eru reiðubúin til samstarfs við bæjaryfirvöld um þessi mál hvar og hvenær sem er. Stjórn foreldrasamtakanna á Akureyri. GALANT 2000 GLX árgerð 1979til sölu. Bíllinn er grænn að lit og kom á götuna í maí 1980. Ekinn 23.500 km. og í fyrsta flokks ástandi Uppl. gefur Jón Sigfússon í síma 96-23435 á kvöldln. Minningarsjóður Þorgerðar Eiríksdóttur Minningarsjóðurinn um Þor- gerði S. Eiríksdóttur var stofn- aður fyrir 10 árum og hefur að meginmarkmiði að styrkja efnilega tónlistarnemendur, er stundað hafa nám við Tónlist- arskólann á Akureyri, til fram- haldsnáms. Orlofshejmili Vélstjórafélags íslands Félagsmenn athugið að ennþá eru nokkur orlofs- hús laus í sumará: 1. Laugarvatni. 2. Illugastöðum, Fnjóskadal. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins. Orlofsheimilanefnd Vélstjórafélags íslands. Tekjur sjóðsins byggjast á sölu minningarkorta, frjálsum fram- lögum og ekki síst tónleikahaldi tónlistarfólks í sjálfboðavinnu. Ákveðið er að veita einum til tveimur nemendum styrk úr sjóðnum, sem afhentur verður við skólaslit Tónlistarskólans þann 20. maí nk. Umsóknir um styrkinn þurfa að hafa borist til Tónlistarskólans á Akureyri, pósthólf 593, 602 Ak- ureyri, í síðasta lagi 15. maí næst- komandi. Umsóknum þarf að fylgja upplýsingar um nám og námsáform. 12 -ÖAGUR -11. máí 1982

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.