Dagur - 11.05.1982, Side 16

Dagur - 11.05.1982, Side 16
VIFTUREIMAR I FLESTA BILA Véla- deildin flytur í nýtt húsnæði Véladeild KEA sem verið hefíi til húsa að Glerárgötu 36 síðani 1963, flytur nú í Óseyri 2, eni þar hefír hún til umráða alla götuhæð hússins fyrir verslun, sýningarsal fyrir bíla, auk vara- hluta- og hjólbarðalagers. Opnað hefír verið inn ■ verk- stæðishúsið, þar sem varahlutir verða afgreiddir til viðgerðar- manna. Ætlunin er að flytja hjólbarðaviðgerðina í hluta verkstæðishússins, en aðstaða þeirrar starfsemi er orðin mjög slæm á gamla staðnum í Strand- götu llb, þar sem hún hefír verið frá upphafí, eða frá 1945. Nokkrar breytingar þarf að gera á eldra húsinu innanhúss, vegna rekstrar gúmmíviðgerð- ar ásamt vélaviðgerðum. Árið 1979 var gert samkomulag á milli Búnaðarsambands Eyja- fjarðar og Kaupfélags Eyfirðinga um byggingu húss á lóðinni Ós- eyri 2. Húsið er byggt upp að verk- stæðishúsi, þar sem viðhald á landbúnaðarvélum o.fl. hefir far- ið fram. Lóðin, Óseyri 2, er 8094 fm og liggur hún að Krossanes- braut og Öseyri. Lóðin sem þarna fékkst verður góð til verslunar og þjónustu, eftir að brúin á Glerá kemur, en hún tengir saman Hjalteyrargötu og Krossanes- braut. Nýja húsið er á tveimur hæðum, 691,5 fm hvor hæð. Á lóðinni er gert ráð fyrir auknum byggingamöguleikum. Starfsemi Búnaðarsambandsins ásamt ann- arri þjónustu við landbúnaðinn er á efri hæð. Starfsmenn Véladeildar eru fjórir auk starfsmanna verkstæðis og gúmmíviðgerðar, en þar munu starfa um átta manns. Deildar- stjóri Véladeildar er Gylfi Guð- marsson. Hann hefur ennfremur umsjón með verkstæði og gúmmíviðgerð. Gísli Konráðsson: Við viljum vera með í þessum „flugfiski“ „Við ætluðum að senda sex tonn af ferskum físki suður til Reykjavíkur með bfl, en þaðan átti hann að fara til Bandaríkj- anna með flugvél. Vegna ó- færðar var hætt við þetta, en verður eflaust reynt síðar“, sagði Gísli Konráðsson, fram- kvæmdastjóri Ú.A. í samtali við Dag. „Við viljum vera með í þessum „flugfíski“ og sjá hvernig dæmið kemur út, þó svo að við verðum að láta aka með fískinn suður“. En af hverju er ekki hægt að senda farm af ferskum fiski með flugvél beint frá Akureyri? Gísli sagði að flugv.öllurinn á Akureyri væri ekki nógu langur fyrir flutn- ingavélarnar, sem flytja fiskinn til Bandaríkjanna, en þessar vélar flytja 40-50 tonn í hverri ferð. Fram til þessa hafa Bandaríkja- menn einkum keypt karfaflök, en Gísli sagði að samkvæmt beiðni þeirra hefði átt að selja þeim grá- lúðu frá Ú.A. Að undanförnu hefur grálúðan verið mögur og því hæpið að hún félli bandarísk- um neytendum í geð. Það er Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna sem stendur fyrir sölu á ferskum fiski til Bandaríkjannna. Fram til þessa hefur fiskurinn ein- göngu komið frá fyrirtækjum á SV-horni landsins. „Ef nýjasti hluti flugbrautarinnar væri mal- bikaður, gætu vélarnar lent og þá væri mögulegt fyrir okkur að koma einum og einum flugvélar- farmi af ferskum fiski á erlendan markað“, sagði Gísli. Ungir Akureyríngar. Mynd: K.G.A. Grálúða frá ÚA kom í veg fyrir uppsagnir — Mun minni afli á Grenivík en á sama tíma sl. ár Grenivík 10. maí. Afli hefur verið tregur frá því um áramót, en það varð m.a. til þess að bátar héðan fóru suður á vertíð. Súlan hefur landað hér undanfarnar vikur og fékk tvo sæmilega túra í upphafí. Um mánaðamótin kom hún inn eftir átta daga útivist með fímm tonn. Þar sem aflinn var svo lítill, töldu forráðamenn frysti- hússins sér ekki annað fært en segja upp fólki, og áttu upp- sagnirnar að taka gildi um helg- ina. Þær urðu þó ekki að veru- leika þegar á átti að herða, því að frystihúsið fékk grálúðu til vinnslu frá Ú.A. á Akureyri. Frá áramótum er búið að taka á móti 755 tonnum af fiski hjá frystihúsinu, en á sama tíma í fyrra var búið að taka á móti 900 tonnum. Afli var sérstaklega góð- ur eftir áramót 1979. Pá var tekið á móti 1460 tonnum frá áramótum og fram í maí. Síðan 1979 er búið að endur- bæta frystihús Kaldbaks mjög mikið, enda er afkastageta þess mun meiri en sem nemur aflanum sem lagður er á land á Grenivík. Grenivíkurbátarnir Frosti og Sjöfn eru nú komnir að sunnan og fara á línu einhvern næstu daga. Gert er ráð fyrir að Súlan leggi upp afla sínum á Grenivík í sumar. Ef fiskast ætti atvinna að vera næg á Grenivík í sumar. P.A. Grenivík: Vinna við höfn- ina að hefjast „Vinna við höfnina er að hefjast. í sumar á að steypa þekju á uppfyllinguna innan við stálþilið, sem rekið var niður í fyrra og árið þar á undan“, sagði Pétur Axelsson, fréttaritari Dags á Grenivík. „Ég geri ráð fyrir að þetta verði vinna fyrir fjóra til sex menn i tvo til þrjá mánuði“. Pétur sagði að minkagot á minkabúum í Grýtubakkahreppi hefði gengið vel og væri langt komið. „Frjósemi er í góðu lagi“, sagði Pétur. „Mér er sagt að nú sé mikil eftirspurn eftir minkum, af þeim sem hyggjast hefja ræktun á þessum dýrum“. I L' 1 J m \h aÉií • Ljós vitnisburður um góða stjórnun Ljósari vitnisburð um góða stjórnun Akureyrarbæjar er vart hægt að hugsa sér, held- ur en þann sem fram kemur í skýrslu Framkvæmdastofn- unar ríkisins og sagt er frá í frétt á forsíðu blaðsins í dag og fjallað er um í leiðara. I skýrslunni er einnig fjallað um „viðreisnarár" íhalds og krata og talað um „hið langa tímabil stöðnunar, sem landsbyggðin bjó við“. Sein- heppnir eru sjálfstæðismenn í bæjarstjórn að þessi skýrsla skuli endilega hafa þurft að koma út þessa dagana. # Sjálfstæður haus á allaballa Seinheppnari voru þeir þó þegar allt liðið mætti til myndatöku í Lystigarðinum - eða öllu heldur svo gott sem allt liðið, því að það vantaði fjóra. Góð ráð voru dýr og því var gripið til þess að fá „stat- ista“ til að sitja fyrir á mynd- inni (sem birtist í síðasta ís- lendingi). Einhver hagur maður var svo fenginn til að skipta um hausa og klippa höfuð þeirra frambjóðenda sem ekki mættu inn á mynd- ina. Snyrtilega unnið, en þeim í Kreml hefði líklega tekist betur upp, enda vanari svona myndafölsunum. Því fór það svo að þegar þetta kvisaðist gat hver sem vildi séð hand- bragðið. Ef málflutningur sjálfstæðismanna fyrir kosn- ingar er almennt ekki vand- aðri en þetta, virðast þeir ekki hafa mikið álit á kjósendum. Það skemmtilegasta við þetta er nú samt það, að einn þeirra sem kallaður var til að standa á myndinni, þar sem hann var nærstaddur, er yfirlýstur al- þýðubandalagsmaður! # Getraunin í dag á að draga í ferðaget- raun Dags og Samvinnuferða Landsýnar. Dagur mun því segja frá því nk. fimmtudag, hver hlýtur vinninginn, sem er ferð að verðmæti allt að 10 þúsund krónur. Einnig verður dregið um aukavinning. # Fundurannað kvöld Annað kvöld, miðvikudags- kvöld, verður almennur fund- ur í Glerárskóla. Þar munu frambjóðendur Framsóknar- flokksins kynna stefnu flokksins í bæjarmálum og eru íbúar Glerárhverfis sér- staklega hvattir til að koma á fundinn.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.