Dagur - 14.05.1982, Qupperneq 2
Lesendahomið
Götunni okkar veröi
sinnt á sama hátt
og öðrum götum
Það var á fimmtudaginn - dag-
inn þegar aftur fór að hlýna og
vonir manna að snúast um það
að kannski væri nú sumarið
komið, amk. í bráð, að Dagur
sagði frá því hversu mikið á að
malbika í sumar. Það er ánægju-
efni að lesa um allt þetta malbik,
sem á að leggja á götur bæjarins
í sumar , 6.615 metra + 8000
fermetra á gangstéttar o.s.frv.
o.s.frv.
Ekki er það ætlan mín að am-
ast við þessu malbiki eða þeim
sem vilja minna á útbreiðslu
þess miðað við lengd + breidd,
þykkt eða þess háttar. Hins veg-
ar stjakar þetta tal örlítið við
mér sjálfum, þó einkum og sér í
lagi fótum mínum og þess fólks,
sem býr við götu sem nefnd er
Klettaborg, og ku VERA í
bæjarfélagi því, hverju við til-
heyrum.
Flestir íbúar nefndrar götu
eru þó fyrir löngu farnir að efast
um að bæjarfélagið kæri sig
nokkuð um að kannast við þá,
sem sína þegna nema á skatt-
skýrslunni. Það hagar nefnilega
þannig til hérna í Klettaborg, að
við sem þarna búum og aðrir
þeir sem þarna hafa búið svo
lengi sem byggð hefur haldist á
þessum slóðum, þurfum að vaða
aur og drullu uppfyrir ökla svo
lengi, sem vorum æðstu mátt-
arvöldum, sem engin bæjar-
stjórn hefur mér vitanlega, hing-
að til tekist að drottna yfir,
þóknast ekki að gefa okkur
þurrk.
Það er því svo sannarlega á
hennar valdi hvort lðan okkar er
góð eða vond í þessum efnum,
því ekkert vald í þjónustu bæjar-
ins hefur talið sér skylt að gera
neitt með okkar umkvartanir í
þessum efnum. Þó verður að
nefna það hér, að þau tíðindi
gerðust á liðnu vori, þegar
vatnselgurinn var orðinn svo
mikill að illmögulegt var fyrir
fótgangandi að komast ferða
sinna, nema eftir ýmsum króka-
leiðum, að komið var á vettvang
og grafinn skurður yfir götuna
þvera til að veita vatninu í burtu.
Síðan var gatan hefluð með
sama gamla sniðinu, þannig að
aftur fór að myndast stöðuvatn,
því það er nú ekki éinu sinni svo
vel að það sé holræsi í götunni,
frekar en annað, sem nauðsyn-
legt má teljast, en ekki verður
nefnt í þetta sinn. Geta má þess
að það er ekki framkvæmdar-
aðilum að þakka að ekki hlutust
slys af nefndum skurði.
En af hverju að vera að nöldra
um þetta núna? Það er vegna
þess að fyrir kosningar er mönn-
um svo mikið niðri fyrir að þeir
ná varla andanum af umhyggju
fyrir þegnum bæjarins,og því
sem þeir hafa afrekað í fortíð og
nútíð, að mér datt í hug að ein-
hversstaðar í þessum hópi væri
sá maður, sem vildi leggja því lið
að úrbætur yrðu gerðar í um-
ræddri götu, þó ekki nema ó-
merkilegt holræsi.
Það mætti hugsanlega nota í
það ódýrt plaströr eða eitthvert
gamalt dót, ef að ástæðan er sú
að ekki má leggja í þetta of
mikla peninga. Okkur líkar þó
ekki mjög vel ef á að gleyma til-
veru okkar og þörfum hér í
Klettaborg, við gerum kröfu til
að gatnamálum okkar verði
sinnt á sama hátt og annarsstað-
ar í bænum.
Július Thorarensen
Burt með
drulluna!
Hafnarverkamaður hafði sam-
band við Dag og vildi kvarta
undan því að bryggjurnar á Ak-
ureyri væru ekki þrifnar.
„Mér blöskrar hvernig á-
standið er. Það má segja að það
sé óvinnandi á bryggjunum fyrir
skít og drullu, og við erum að
ganga um og vinna í sama skítn-
um mánuðum saman.
Hvernig væri nú að bæjaryf-
irvöld tækju sig saman í andlit-
inu og reyndu að koma þessum
málum í lag. Þegar skipstjóri á
einum af Fossum Eimskipafél-
agsins er farinn að hafa orð á
þessu við okkur sem störfum á
bryggjunni eins og kom fyrir á
dögunum er eitthvað að. Burt
með drulluna af bryggjun-
um“...
Ósóttír vinnlngar
Forráðamenn Handknattleiks- Þeir skora á vinningshafa að
deildar íþróttafélagsins Þórs hafa gera vart við sig og vitja vinninga
haft samband við blaðið og beðið sinna, en hafi vinningsnúmerin
um að komið yrði á framfæri farið framhjá einhverjum koma
að enn eru fimm vinningar ósóttir þau hér aftur. Þau voru þessi: 844,
í happdrætti því sem deildin 2249, 2230, 362,1874 og 1488.
gekkst fyrir á dögunum.
Tómas Steingrimsson og Co
er dreifingaradili fyrir Möinlycke-Tork
vörumará Akureyri og Nordurlandi vesba
TORK
fjölskyldan og
f Ijótandi handsápur
frá Mölnlycke
Tork er sænsk gæðavara
Asiaco hefur um Neggja ára skeið selt hér
á landi pappírs- og hreinlætisvörur frá
Mölnlycke verksmiðjunum í Svíþjóð. Þar á
meðal eru Tork klútarnir sem hafa fengið
frábærar viðtökur enda fer saman af-
bragðs vara og traust og örugg þjónusta.
Tork-fjölskyldan er stór fjölskylda og hér
getur að líta nokkra meðlimi hennar.
Tómas Steingrímsson & Co.
heildverslun, Fururvöllum 3
Akureyri, sími: 96-23280
M- og Mini-Tork fyrir vinnustaði og
heimili
M-Tork er handþurrkupappír, sem er
upplagður til notkunar á vinnustöðum og
annars staðar þar sem margir ganga um.
M-Tork leysir handklæðin af hólmi og
nýtist auk þess sem borðtuska, af-
þurrkunarklútur, gólfklútur og þess háttar
þegar þörf krefur. M-boxið, sem fáanlegt
er í mörgum fallegum litum, tryggir
hámarksnýtingu á pappírnum.
Mini-Tork er smækkuð útgáfa af M-Tork
og er tilvalið í eldhús og á baðherbergi
heimilisins og ennfremur á minni vinnu-
staði.
T-Toric á salemið
T-Tork er dúnmjúkur og þægilegur
salernispappír í 430 og 525 metra löngum
rúllum, tilvalinn fyrir alls konar fyrirtæki
og stofnanir. T-Torkinu er komið fyrir í
níðsterku og smekklegu T-boxi, sem þolir
ágætlega bæði mikla og ómjúka meðhöndl-
un. T-boxið er fáanlegt í öllum regn-
bogans litum og er einfalt í uppsetningu.
T-boxunum er læst með sérstöku áhaldi
en þó er mjög fljótlegt að skipta um rúllu.
E og A-Tork fyrir vélar og iðnað
E-Tork er rayonklútur til hreinsunar í
iðnaði og á vélum þar sem krafist er full-
komins árangurs. E-Tork skilur alls ekki
eftir sig ló eða trefjar.
A-Tork er pappírsklútur til ýmiss konar
þurrkunar á verkstæðum og í iðnaði. Hann
drekkur mjög vel í sig alls kyns vökva og
þolir flest uppleysiefni.
Bæði E-og A-Tork klútarnir eru afgreiddir
í rúllum, allt að 1600 metra löngum, sem
komið er fyrir á færanlegum gólfstæðum.
Savon no5 og Tvaal nol fljótandi
handsápur
Savon no5 er ný tegund fljótandi
hand- og baðsápu. Savon no5 er mild
sápa, en samt sem áður bakteríueyðandi
og fullnægir ýtrustu kröfum um hreinlæti,
hvort sem er við matvæli eða iðnað; á
læknastofum, skrifstofum eða í skólum.
Tvaal nol er sterkari handsápa sem ætluð
er til að þrífa af sér meiriháttar
óhreinindi svo sem í prentiðnaði, á
bifreiðaverkstæðum og víðar.
Sérstakir sápuskammtarar, Savon-box
og Tvaal-box tryggja hámarksnýtingu
sápanna.
Vesturgötu 2, Sími 26733, P.0. Box826,101 Reykjavík
Hafðu samband við okkur eða söluaðila okkar, við sendum
upplýsingarit og gefum góð ráð
2 - DAGUR- 14. maí 1982