Dagur - 25.05.1982, Qupperneq 12
LiMUM BORÐA
RENNUM SKÁLAR
Skóli fyrir atferlistrufluð börn:
Búið að kaupa
einbýlishús
í Glerárhverfi
Olafur Vagnsson:
Lítið kal
Mok-
afli
við
Grímsey
„Aflabrögð hafa venjulega ver-
ið léleg í maímánuði, en nú brá
svo við að það hefur verið mok-
afli,“ sagði Steinunn Sigur-
björnsdóttir, fréttaritari Dags í
Grímsey. „Landbátar hafa
komið hingað í stórum hópum,
enda er lítið sem ekkert að hafa
nær landi.“
Steinunn sagði að aflinn væri
nær eingöngu þorskur. Aflinn er
saltaður. Nú er gerður út einn
tæplega 30 tonna bátur frá Gríms-
ey og þrír ellefu tonna bátar.
Trillukarlarnir eru sem áður að
búa sína báta á veiðar. Ekki er
hægt að vera með mikið stærri
báta en 30 tonn í Grímsey þarsem
höfnin er ekki nógu góð.
Handleggs-
brotnaði
í átökum
Aðfaranótt laugardags kom til
átaka fyrir austan Hótel Akur-
eyri. Karlmaður um þrítugt var
handleggsbro t inn.
Að sögn lögreglunnar átti þessi
atburöur sér stað við nætursöluna
um kl. 04. Nokkrir menn stóðu í
biðröð við lúguna og kom til rif-
rildis milli tveggja manna, sem
síðar leiddi til átaka. Sá sem
handleggsbrotnaði féll í jörðina
með fyrrgreindum afleiðingum,
en hinn hraðaði sér á brott.
Klukkustundu áður þessa sömu
nótt fannst maður liggjandi hjá
næstursölunni við Geislagötu. Aö
sögn lögreglunnar var sá sami
með slæmt fótbrot. Lögreglan
biður alla þá sem geta veitt ein-
hverjar upplýsingar um þessa tvo
atburði að hafa samband við sig
sem allra fyrst.
Þakkir til
stuðnings-
manna
Að loknum bæjarstjórnarkosn-
ingunum á Akureyri viljum við
þakka öllum þeim sem studdu og
kusu lista framsóknarmanna.
Við þökkum því fjölmarga
áhugafólki, sem síðustu vikurnar
fyrir kjördag vann ótaldar vinnu-
stundir við undirbúning kosning-
anna.
Sérstakar þakkir færum við
þeim sem unnu á kosningaskrif-
stofum okkar á kjördag og þeim
sem stóðu fyrir glæsilegum kaffi-
veitingum á Hótel KEA.
Án ykkar stuðnings hefði ár-
angur ekki náðst.
Frambjóðendur framsóknar-
manna á Akureyri.
í síöustu viku festi ríkissjóður
kaup á húsi við Bröttusíðu í
Glerárhverfi. í því verður skóli
fyrir atferlistrufluð (tauga-
veikluð) börn á grunnskóla-
aldri. Gert er ráð fyrir að skól-
inn taki til starfa næsta haust,
en nú er búið að auglýsa eftir
skólastjóra og kennara. Alls
verða um fjögur stöðugildi við
skólann, sem er dagskóli fyrir
flmm til tíu börn.
Kaupverð hússins, sem er ein-
býlishús, 260 fm á tveimur
hæðum, var 1.3 millj. króna.
Skólinn á að þjóna öllu kjördæm-
inu. Börnin munu fá að borða á
staðnum, en skólastarf verður að
jafnaði frá kl. 09 til 17.
„Ég tel að þetta sé heppilegt
hús, það er t.d. skammt frá Gler-
árskóla og börnin geta sótt þang-
að tíma í leikfimi og handmennt
svo eitthvað sé nefnt. Þarna
skammt frá er opið leiksvæði,"
sagði Ingólfur Ármannsson
fræðslustjóri. „Við teljum að
þetta sé merkur áfangi. Þarna
verða börn á grunnskólaaldri,
sem hefur ekki verið hægt að
sinna fram til þessa og stundum
flosnað upp í skólastarfinu, eða
hefur orðið að senda til Reykja-
víkur.“
Þes skal getið að fræðsluyfir-
völd voru búin að fá samþykki
byggingarnefndar Akureyrarbæj-
ar og bæjarstjórnar, áður en húsið
var keypt.
„Vorið hefur verið bændum
sæmilegt. Það kom mjög góður
kafli, sem endaði að vísu með
hreti, en menn gera alltaf ráð
fyrir kaupfélagsfundar- eða
páskahreti. Horfur eru að mínu
mati mjög góðar við innanverð-
an fjöröinn, tún virðast koma
falleg undan vetri og eru orðin
græn. Framhaldið ræðst að
sjálfsögðu af tíðarfari næstu
daga og vikur,“ sagði Ólafur
Vagnsson, ráðunautur.
Kal er lítið í túnum og lítið frost
í jörð. Ólafur sagði að sauðburð-
ur hefði gengið vel. „Lambadauði
er með minna móti og frjósemi er
í góðu meðallagi. Á einstaka stað
Hafnarstjórn hefur samþykkt
framkvæmdaáætlun fyrir árið
1982. Ýmislegt er á dagskrá hjá
hafnarstjórn, en á vegum henn-
ar er nú t.d. unnið að teikning-
um af höfn í Sandgerðisbót,
sem á að geta tekið um 250
báta. Einnig er unnið í teikn-
ingum af vöruhöfn og höfn á
miðbæjarsvæðinu.
Samkvæmt framkvæmdaráætl-
uninni á að ljúka framkvæmdum
við stálþil fyrir framan ÚA, þ.e.
er frjósemin lítil, en það getur
verið vegna tíðarfars í fyrrahaust.
Víða er sauðburður langt
kominn.
Kartöflubændur eru sumir
byrjaðir að setja niður kartöflur,
einstaka gerði það fyrir nokkrum
vikum. Garðar komu vel undan
vetri til vinnslu, frost var óvenju
lítið í þeim því snjór lagðist yfir þá
snemma sl. haust og skýldi þeim í
vetur og það er gott að vinna garð-
ana.
Það eru ekki margir búnir að
láta kýr út, en ég geri ráð fyrir að
menn munu almennt hleypa þeim
út ef hlýnar næstu daga,“ sagði
Ólafur að lokum.
steyptan kant á stálþil og þekju
ásamt tilheyrandi búnaði. Ætlun-
in er að ljúka þeim hluta Slipp-
kants sem enn er eftir, þ.e. þekju
austast ásamt tilheyrandi búnaði,
að ljúka framkvæmdum við vog
og vogarhús, að reisa löndunar-
krana í Sandgerðisbót, að halda
áfram skipulagningu hafnarsvæð-
isins, en eftirstöðvum fram-
kvæmdafjárs á að verja til dýpk-
unar og til byrjunarframkvæmda
við hafnargerð í Sandgerðisbót.
ikiuu
# Spilaá
Akureyri
Um hvítasunnuna veröur
Norðurlandamót f bridge á
Akureyri. Alls munu 10 sveitir
spila á mótinu, sem hefst á
föstudaginn. Spilamennirnir
verða í Galtalæk og hætta
ekki fyrr en á sunnudag. Eftir
því sem við komumst næst
eru svona mót haldin 5. til 6.
hvert ár á Akureyri. Núverandi
Norðurlandameistarar er
sveit Stefáns Ragnarssonar,
en í henni eru, auk Stefáns,
Pétur Guðjónsson, Þórarinn
B. Jónsson, Páll Jónsson og
Þormóður Einarsson.
# Grímseyinga
vantar
kennara
í vetur hafa ung hjón annast
kennslu barna i Grímsey. Að
sögn fréttaritara blaðsíns í
eynni hefur eyjaskeggjum lik-
að mjög vel við þau hjón og
þykir illt að missa þau. I
Grímsey er nýtt hús fyrir
kennara og sagði fréttaritar-
inn að það væri upplagt fyrir
hjón að koma og kenna í ey-
junni.
# Fuglinn verpir
við heimahús
Nú er svo komið að fugli hefur
fjölgað mjög mikið í Grímsey,
enda er hann lítið sem ekkert
nýttur. Fuglinn er farinn að
verpa á nýjum stöðum því
ekki er pláss fyrir öilu fleiri
hreiður í björgunum. Sagði
fréttaritarinn að það mætti sjá
hreiður fugla við heimahús.
# Sinubrunar
Að undanförnu hafa margir
sinueldar logað á Akureyri. í
sumum tilfellum hefur hætta
stafað af þessum eldum. Það
er því full ástæða til að minna
bæjarbúa á að það er bannað
að kveikja í sinu í bæjarland-
inu allt árið, nema með sér-
stöku leyfi yfirvalda. Fyrir
utan bæjarmörk er hins vegar
leyft að kveikja í sinu til fyrsta
maí ár hvert.
# Öryggisbeltin
Á síðata ári kannaði Dagur
notkun öryggisbelta á Akur-
eyri. í Ijós kom að hún var
hverfandi. Eftir því sem S&S
kemst næst hefur notkunin
minnkað og nú er svo komið
að það teelst til tíðinda ef sést
til ökumanns í bænum með
öryggísbelti eða bílbelti eins
og menn vilja víst kalla þau.
Unnið að
teikningum