Dagur - 08.06.1982, Qupperneq 3
Stofnfundur
Menningar-
samtaka
Norðlendinga
Þann 20. júní nk. boðar félags-
og menningarmálanefnd Fjórð-
ungssambans Norðlendinga til
stofnfundar Menningarsam-
taka Norðlendinga í Stóru-
Tjarnaskóla í Ljósavatns-
skarði, S.-Þing. Hefst fundur-
inn kl. 13,15 og lýkur samdæg-
urs.
Á síðastliðnum árum hefur fé-
lags- og menningarmálanefnd
Fjórðungssambandsins unnið að
stofnun heildarsamtaka þeirra
sem vinna að menningarmálum á
Norðurlandi. Á það rætur sínar
að rekja til ályktunar fjórðungs-
þings frá 1979 þar sem nefndinni
er falið „að stuðla að auknum
samskiptum í fjórðungnum milli
áhugamanna um listir í þeim til-
gangi t.d. að auðvelda gagn-
kvæmar heimsóknir og kynna
frekar stöðu þessara mála í fjórð-
ungnum.“ Þá hélt félags- og
menningarmálanefnd ráðstefnu
um samskipti menningaraðila á
Norðurlandi 6. des. 1980. Ráð-
stefnan, sem var fjölmenn og
skipuð fólki víðs vegar úr fjórð-
ungnum, samþykkti einróma að
rétt væri að efna til samtaka um
þessi mál. Á ráðstefnunni var
skipuð undirbúningsnefnd til að
vinna að því í samvinnu við fé-
lags- og menningarmálanefndina.
í undirbúningsnefndinni eiga
sæti: Kristinn G. Jóhannsson,
Akureyri, Einar Niálsson, Húsa-
vík, Jón Hlöðver Áskelsson, Ak-
ureyri, Örn Ingi Gíslason, Akur-
eyri.
Sumarið 1981 var á vegum þess-
arar nefndar gerð könnun á að-
stöðu til listiðkunar og menning-
arstarfsemi vítt og breitt um
Norðurland. Ennfremur var
kannaður vilji manna til stofnun-
ar heildarsamtaka um þessi mál.
Niðurstaða Arnar Inga, sem gerði
þessa könnun, var sú að gífurleg-
ur mismunur væri milli listgreina
og byggðarlaga, hvað varðar að-
stöðu og iðkun. Ljóst er, að fá-
mennar byggðir eiga mest undir
högg að sækja í þessum efnum.
Síðustu mánuði hefur mark-
visst starf farið fram til að undir-
búa stofnun Menningarsamtaka
Norðlendinga, að nokkru í sam-
vinnu við þær samstarfsnefndir,
sem tilnefndar voru sl. sumar víðs
vegar um Norðurland um leið og
fyrrnefnd könnun var gerð. í því
starfi hefur enn frekar staðfestst
að stefna beri að þessari samtaka-
stofnun.
Á stofnfundi, 20. júní nk.,
verður frumvarp til laga fyrir
Menningarsamtök Norðlendinga
tekið til umræðu og afgreiðslu.
Ennfremur verða umræður í
hópnum um hlutverk og starf
væntanlegra menningarsamtaka.
Norðurlandsmótið í Bridge var
spilað á Akureyri um hvíta-
sunnuna. Spilað var að Galta-
læk og spiluðu alls 10 sveitir
víðsvegar að af Norðurlandi.
Norðurlandsmeistari varð sveit
Boga Sigurbjörnssonar frá Siglu-
firði. Auk Boga eru í sveitinni
þrírbræður hans, þeir Anton, Jón
og Ásgrímur. Sveit Boga er vel að
þessum sigri komin. Þeir bræður
hafa oftast verið í öðru eða þriðja
sæti þegar þeir hafa ekki sigrað.
Röð efstu sveita var þessi:
stig
1. Bogi Sigurbjörnsson Siglúf. 119
2. Jón Stefánsson Akureyri 115
3. Stefán Ragnarsson Akureyri 108
4.-5. Þórður Ásgeirsson Húsavík 101
4.-5. Páll Pálsson Akureyri 101
6. Kristján Jónsson Dalvík 95
7. Eyjólfur Magnússon Hvammst. 83
8. Kristján Blöndal Sauðárkr. 80
9. Eðvarð Hallgrímsson Blönduósi 48
10. Reynir Pálsson Skagafirði 29
Keppnin var bæði tvísýn og
hörð eins og sést á úrslitunum.
Mótið var mjög vel heppnað og
lauk með matarboði Bæjarstjórn-
ar Akureyrar á Hótel KEA, þar
sem verðlaun voru afhent.
í síðustu umferð spiluðu saman
sveitir Boga og Jóns og sigraði Jón
14-6. Keppnisstjóri var Albert
Sigurðsson frá Akureyri.
Næsta Norðurlandsmót verður
spilað á Hvammstanga að ári.
Bræðumir sigursælu. Bogi og Anton í aftari röð - Jón og Ásgrímur fyrir
framan.
Norðurlandsmótsð í brsdge:
Bræðurnir sigruðu
Sumarfatnaður á ótrúlega góðu verði
Fagnið sumri
r1 ■ aW r a
í sumarfötunum frá okkur
Tækifæri sem enginn má missa af.
Kápur - Stakkar - Kápur
Höfum fengið gífuregt úrval
af kápum og stökkum.
úrvalið hvergi betra og
verðið eftir því.
BUXUR
STAKKAR
Duffys buxur og stakkar
í sumarlitum.
Lee Cooper buxur í sumarlitum.
Vefnaðarvörudeild.
Sumarstakkar, sumarfrakkar,
léttir frakkar og skyrtur.
Úrval af hinum vinsælu
K-BUXUR frá Kóróna
úr khaki og flannel.
Það er ástæða til að líta á
herrafataúrvalið hjá okkur.
Garðverkfæri
til þess að létta þér vinnuna
í garðinum.
Garðslöngur í metravís.
3 4 5
Fyrir hestamanninn
Reiðstígvél stærðir 38-46.
Ný sending Barnasandalar og barnaskór
Karlmannamokkasíur, 3 litir
8. júní 1982 - DÁGUR - 3