Dagur - 08.06.1982, Blaðsíða 7

Dagur - 08.06.1982, Blaðsíða 7
ður engin hætta á að rðum atvinnulausir larlögreglumennina g Ófeig Baldursson Iwi best það kann. En þjófurinn er ófundinn enn. Blm: Má kenna það reynsiuleysi ykkar við að fást við svona flókin mál? Ó: Þjófnaðir hafa verið stundað- ir í gegn um aldirnar og alltaf hefur einn og einn þjófur slopp- ið og svoleiðis verður það sjálf- sagt áfram. Yfírheyrsiur Blm: Hvernig fara yfirheyrslur fram? Notið þið lampa og skrúfur? Ó: Nei, við höfum mjög strangar reglur að fara eftir, sem kveðið er á um í lögum um meðferð op- inberra mála. Það er mjög misjafnt, hvað fær menn til að játa á sig afbrot. Sumir eru fegn- ir að geta létt á samvisku sinni, aðrir þráast við. í byrjun yfir- heyrslu gerum við viðkomandi grein fyrir því, að honum beri ekki skylda til að svara spurning- um. Við megum ekki ljúga að manninum og ekki spyrja vill- andi spurninga eða leiða hann í gildrur. En það er ekki þar með sagt, að við gerum honum grein fyrir því, að við vitum ekki neitt. Ef tveir eða fleiri eru í yfir- heyrslu út af sama málinu, þá megum við ekki ljúga að einum, að annar hafi leyst frá skjóð- unni, en hann fær heldur ekki að vita, hvort einhver hafi sagt eitt- skýrslu um fimm falsaðar ávísanir, 36 Mynd KGA. hvað. Ef maður neitar í upphafi að hafa framið afbrot, en málin snúast síðan þannig, að allar lík- ur bendi til, að hann sé sekur, þá getur verið erfitt fyrir hann að éta allt ofan í sig aftur. Þá reyn- um við að gefa honum séns á því að komast þannig frá þessu, að hann brotni ekki alveg niður eða finnist mannorð sitt að engu orðið. Blm: Veitist ykkur ekkert erfitt að koma svona fram sem mann- orðsbrjótar fyrir þá, sem þið yfirheyrið? Ó: Ég vil nú meina, að þeir hafi fyrirgert mannorðinu, áður en við komum til skjalanna. Við rífum ekki bara niður, við verj- um líka rétt þeirra, sem þolað hafa tjón af völdum þessara manna. Einnig sönnum við sak- leysi manna. Blm: Nú gerið þið meira en að fást við þjófa og ræningja D: Já, það má eiginlega segja, að við sjáum um allar rannsókn- ir á vegum lögreglunnar. T.d. í umferðarslysum, þegar meiðsli verða á fólki, þurfum við að fara á staðinn, gera vettvangskönn- un, taka ljósmyndir, taka skýrsl- ur af ökumönnum og farþegum og vitnum sem til næst. Þetta er gríðarlega mikil vinna og óhemju magn af pappír, sem í þetta fer. Ég held við séum sam- mála um, að rannsóknarlög- reglumönnúm hér mætti fjölga, ef vel ætti að vera. Handavinna Blm: Er þettá starf þá ekki fyrst og fremst pappfrsvinna? D: Jú, það má e.t.v. segja það. Að stórum hluta er starfið hrein handavinna og uppfylling form- legheita. 7 Blm: En tefja! ekki reglurnar og formlegheitin1 sem þið þurfið að fara eftir fyrir, að afbrot komist upp? I Ó: Það hringja stundum menn, sem biðja okkur að handtaka einhvern ákveðinn mann, hann hafi gerst brotlegur við lögin o.s.frv. Auðvitað væri lang- fljótlegast að bruna beint af stað og rífa manninn glóðvolgan upp úr rúminu. En þið sjáið, að svo- leiðis vinnubrögð geta ekki gengið. Við verðum að fá ýmis- legt á hreint á^ur. Blm: En ef þið eruð 100% vissir um, að maðúrinn hafi framið afbrot, en eitthvað vantar upp á formlegheitiní horfið þið þá ekki aðeins framhjá reglunum? Ó: Nei. Blm: Er þetta skemmtilegt starf? / Ó: Já, það finnst okkur, annars værum við ekki að fást við það. Málin geta verið býsna snúin og spennandi, þó svo að þau séu sjaldnast eins og í leynilögreglu- sögunum. Það fylgir þessu starfi, að maður er alltaf að hugsa um það, ekki bara meðan maður er að vinna, heldur líka, þegar Mynd: K.G.A. Áhöld og efhi sem hafa þarf við fingrafaratöku, og leit af fingraförum, maður er kominn heim á kvöldin. Blm: Reynið þið að gera eitt- hvað meira fyrir t.d. afbrotaung- linga en það að hafa upp á þeim og refsa þeim? Ó: í sambandi við unglingana, þá reynum við að leiða þá á réttar brautir. Við höfum sam- band við Félagsmálastofnun í sumum málum en við erum bara tveir og höfum engan tíma til að gera mikið fyrir þetta fólk. Blm: Æfið þið skotfimi? D: Já, við æfum skotfimi á vet- urna niður í Skemmu og skjót- um þá úr skammbyssum. Þetta hljómar dálítið fjarstæðukennt, en maður verður að horfast í augu við það, að sú staða gæti komið upp, að við þyrftum að notast við kunnáttu okkar á þessu sviði. Við höfum ekki þurft að gera það ennþá og ég ætla svo sannarlega að vona, að það verði aldrei. Að svo mæltu fer Daníel með okkur í „sightseeing" um lög- reglustöðina og sýnir okkur meðal annars tæknideild rann- sóknarlögreglunnar. D: Við erum orðnir mjög vel búnir tækjum og þurfum ekki að kvarta, hvað það varðar. Hérna erum við með mjög góða að- stöðu til myndatöku og fram- köllunar - segir hann á meðan hann dregur upp úr töskunni hverja myndavélina og linsuna á fætur annarri, svo að ljósmynd- ari Dags fær vatn í munn og glampa í augu. Þá sýnir hann okkur áhöld til að ná fingraför- um, fíkniefnaprufu og annað, sem komið getur að haldi við rannsóknir afbrotamála. í steininn Þá liggur leiðin í fangelsið, og fáum við til fylgdar við okkur Erling Pálmason, yfirlögreglu- þjón. E: Hérna eru 13 fangaklefar fyrir menn, sem koma inn vegna ölvunar og svo er hér af- plánunardeild með 4 klefum og rúmar hún 5-6 menn í einu til af- plánunar. Hér eru menn yfirleitt stuttan tíma, af því að hér er engin vinnuaðstaða, yfirleitt 1-2 mánuði. Menn koma hingað alls staðar að af landinu. Hér var kvennafangelsi, en nú er búið að leggja það niður. Fangelsið er tómt, þegar við göngum um ganga þess og segir Erlingur, að það sé heldur óvenjulegt. - Þeir eru eitthvað að slappast í afbrotunum fyrir sunnan - segir hann og hlær. E: Það er ekki óalgengt, að menn óski þess frekar að koma hingað en fara á Litla-Hraun. Það eru menn, sem ekki vilja vera of nálægt heimilum sínum í afplánun. Hér koma hvítflibba- menn, sem seilst hafa of langt ofan í sjóðinn, sem þeim var treyst fyrir. Blm: Bætir það menn að vera hérna? E: Nei, það bætir engan. Það er nokkuð klárt. Þetta heitir að vísu betrunarhús, en það bætir engan. Það eru skiptar skoðanir á því, hverjum tilgangi þetta þjónar eða hvað annað sé hægt að gera. Og meðal þeirra, sem hérna vinna, eru uppi allarskoð- anir á þessu máli. Blm: Hvað eru margir fanga- verðir? E: Það eru 3 lögregluþjónar, sem ganga svokallaðar fanga- vaktir. Hér er ýmsu ábótavant. Það er sérlega bagalegt, að ekki skuli vera meiri aðskilnaður milli þeirra, sem eru í refsivist og þeirra, sem koma hingað sökum ölvunar eina nótt. Þeir öivuðu hafa yfirleitt hátt og láta ófrið- lega, og verður við það lítill svefnfriður fyrir hina. Þá er bagalegt að hafa enga vinnuað- stöðu fyrir langtímafanga. Við ljúkum við að skoða fang- elsið í fylgd Erlings, sem hlær og gerir að gamni sínu og er á báðum áttum, hvort hann eigi nokkuð að hleypa okkur út aftur, - það er svo tómlegt að hafa fangelsið svona mannlaust, segir hann. Á endanum sleppum við þó og skiljum að það er engin framtíð í bófabransanum fyrir okkur með aðrar eins löggur á hælunum. 8. júní 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.