Dagur - 10.06.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 10.06.1982, Blaðsíða 9
Bs ' a , •«'-(»> h mm Jónas Róbertsson á gott skot að marki Siglfirðinga, en markvörðurinn náði að verja. Hinsvegar fylgdi Guðjón Guðjónsson vel á eftir og potaði knettinum ■ nétið. Mynd: K.G.A. Þór sló Siglfirðinga út úr Bikarkeppninni Það var hart barist í leik Þórs og Siglfírðinga í fyrstu umferð Bikarkeppni KSI, sem fram fór á Þórsvelli í gærkveldi. Þrátt fyrir það að Siglfirðingar berðust eins og Ijón allan tímann, voru þeir slegnir út úr keppninni, en Þór sigraði með tveimur mörkum gegn einu. í fyrri hálfleik sóttu Þórsarar heldur meira, en þrátt fyrir það áttu Siglfirðingar mörg góð marktækifæri, en þeir beittu skyndisóknum sem oft á tíðum komu Þórsurum í opna skjöldu. Á sjöundu mínútu varði Eiríkur hörkuskot í horn en það koma eftir laglegan samleik Sigl- firðinga. Æfingartafla knattspyrnudeildar 7. flokkur. Mánud., miðvikud., föstud., kl. 1-3. Drengir 8 ára og yngri. Þjálfari Gunnar Gíslason. 6. flokkur. Mánud., miðvikud., föstud., kl. 3-5. Drengir 8-10 ára. Þjálfari Gunnar Gíslason. 5. flokkur. Þriðjud., föstud., kl. 5-6, sunnud., kl. 2-3. Drengir 11 og 12 ára. Þjálfari Tómas L. Vilbergsson. 4. flokkur. Mánud., miðvikud., föstud., kl. 6-7. Drengir 13 og 14 ára. Þjálfari Steinþór Þórarinsson. 3. flokkur. Mánud., miðvikud., fimmtud., kl. 7-8.15. Drengir 15 og 16 ára. Þjálfari Steinþór Þórarinsson. 2. flokkur. Þriðjud. kl. 7.30-9, fimmtud. kl. 8.15-9.30 og laug- ard. kl. 11-12.30. Drengir 17-19 ára. Þjálfari Einar Pálmi Árnason. Kvennaflokkur. Mánud., miðvikud., kl. 8.15-9.30, föstud. óákv. Þjálfari Trausti Haraldsson. Ath. Frjálsir knattspyrnutímar á KA-velli á þriðjud. og fímmtud. á millí 1 og 3. Leiðbeinandi Gunnar Gíslason. Æfingagjald kr. 150 allir flokkar. Leikjanámskeið KA innritun í Lundarskóla mánudaginn 21. júní frá kl. 10-12. Verðkr. 100. Hvert námskeið stendur í 2 vikur. Leiðbeinandi Gunnar Gíslason. Innritun í 6. og 7. flokk, á milli 10-12 alla virka daga fram til 18. júní, í Lundarskóla. Fáum mínútum síðar skaut Siglfirðingur framhjá eftir djarft úthlaup hjá Eiríki. Á 25. mínútu átti Rúnar Steingrímsson hörku- skot af löngu færi að Siglufjarð- armarkinu, en það fór aðeins framhjá. Á 26. mínútu fengu Þórsarar dauðafæri. Þeir spiluðu laglega á milli sín og Bjarni Sveinbjörns- son skaut úr mjög góðu færi, en ágætur markmaður Siglfirð- inga bjargaði meistaralega. Sigl- firðingar fengu mjög gott mark- tækifæri á 35. mínútu, en skutu framhjá. Á 40. mínútu kom fyrsta mark leiksins. Þá spiluðu ungu strák- arnir í Þórsliðinu laglega á milli sín og Jónas Róbertsson skaut hörkuskoti sem markmaður Siglfirðinga varði en missti bolt- ann frá sér fyrir fæturnar á Guð- jóni sem skoraði. Aðeins einni mínútu síðar bættu Þórsarar við öðru marki. Þá fékk Bjarni stungubolta upp hægri kantinn og hljóp með Siglfirsku vörnina á hælunum upp undir vítateig. Markmaður Siglfirðinga valdi þann kostinn að hlaupa á móti Bjarna, sem þá skaut yfir mark- manninn og í opið markið. í síðari hálfleik sóttu Siglfirð- ingar nær látlaust. Þeir sköpuðu sér mörg hættuleg tækifæri, en voru stundum of bráðir á sér og skutu úr of þrögum færum. Eiríkur, markmaður Þórs varði margsinnis mjög vel, en meiddist seint í hálfleiknum og þurfti að fara útaf. Á 40. mínútu sendu Siglfirð- ingar langan bolta fyrir Þórs- markið og leikmaður númer 11 skallaði örugglega í markið. Þrátt fyrir stöðuga pressu tókst Siglfirðingum ekki að gera fleiri mörk, en lið þeirra er ágætt og tvímælalaust besta þriðju- deildarlið sem hér á Akureyri hefur leikið á þessu sumri. Dómari leiksins var Þóroddur Hjaltalín, en það erfurðulegt að dómari úr Þór skildi dæma þenn- an leik, enda fékk hann oft að heyra það hjá Siglfirðingum, sem þarna voru, að hann væri heimadómari. Það býður bara heim leiðindum að láta dómara úr sama félagi og leikur, dæma leikinn. Næstu andstæðingar Þórs í bikarkeppinni verða Ólafsfirð- ingar og einnig leika saman Tindastóll og Vöisungar og fara þeir leikir fram 23. júní. Yngri flokkar Islandsmót yngri flokka er nú hafið og um helgina léku bæði lið Þórs og KA, Þór gegn Völs- ungi en KA gegn KS. I fimmta flokki sigruðu Þórs- strákarnir með 13 mörkum gegn engu. Þrír Þórsarar skoruðu þrjú mörk hvor, en það voru Árni Þ. Árnason, Þórir Áskels- son og Páll Gíslason. 1 fjórða flokki sigraði Þór með fimm mörkum gegn engu, en Völs- ungar sigruðu í þriðja flokki með einu marki gegn engu. í 5. flokki sigruðu Siglfirðingar KA með tveimur mörkum gegn engu. KA sigraði í fjórða flokki með níu mörkum gegn engu, og þar var Árni Hermannsson marka- hæstur með þrjú mörk. KA sigr- aði síðan í þriðja flokki með sex mörkum gegn engu. Jafnt hjá stúlkunum Fyrsti leikurinn í kvennabarátt- unni fór fram á sunnudaginn. Þá áttust við í vormóti Akureyrar- félögin Þór og KA. KA náði for- ystu í leiknum með marki Sól- eyjar Einarsdóttur, og skömmu síðar bætti Sirra Sævarsdóttir öðru marki við fyrir KA. Þannig var staðan í hálfleik, tvö mörk gegn engu fyrir KA. 1 síðari hálfleik minnkaði Inga Huld Pálsdóttir muninn fyrir Þór í tvö mörk gegn einu, og á síðustu mínútum leiksins fengu Þórsstúlkur víti, eftir að KA stelpa hafði handleikið knöttinn innan síns vítarteigs. Anna Einarsdóttir skoraði ör- ugglega úr vítinu og jafnaði fyrir Þór og rétt um leið var leikurinn flautaður af. Dómari var Geir Guðsteinsson. Vormót KRA Vormót KRA er nú hafið. Ann- ar flokkur Þórs og KA er búinn að leika og lauk leiknum með jafntefli, eitt mark gegn einu. Á þriðjudagskvöldið léku síðan fimmtu flokkar þessara liða. I A-liði fóru leikir jafnt, eitt mark gegn einu, en í B-liði sigr- aði KA með einu marki gegn engu, og KA sigraði einnig í C- flokki með þremur mörkum gegn engu. Um helgina Sá leikur sem hæst ber um helg- ina er fyrstudeildar leikurinn, en þá fá KA menn Keflvíkinga í heimsókn. Sá leikur verður á föstudagskvöldið á KA-velli og hefst kl. 20.00. Á laugardaginn leika síðan í annari deild Þór og Reynir frá Sandgerði og verður sá leikur á Þórsvelli kl. 14.00 á laugardaginn. Sama dag fara Völsungar til Borgarnes og leika við Skallagrím. A laugardaginn eiga einnig að leika í þriðju deild Tindastóll og Sindri, Huginn og KS, Árroðinn og HSÞ og Magni og Austri. í fjórðu deild eiga að leika Vaskur og Leifur, Hvöt og Svarfdælir, Dagsbrún og Reynir Ársk. og Glóðafeykir og Vorboðinn. Einsogsjámáverð- ur mikið úrval knattspyrnu- leikja fyrir alla knattspyrnu- áhugamenn. 10. júní 1982 - DAGUR - 9

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.