Dagur - 10.06.1982, Blaðsíða 12
MONRO-MATIC ®
SHOCK ABSORBER
HÖGGDEYFAR
Í FLESTA BÍLA
Þungatakmarkanir á vegum:
Tvöfaldur
kostnaður
við mjólkur-
flutninga
Þungatakmörkunum á vegum
hefur nú víðast hvar verið
aflétt. Öxulþungi er nú aðeins
takmarkaður á nokkrum heið-
um, s.s. Vaðlaheiði, Lágheiði
og um Mývatnsöræfi. Þunga-
takmarkanir hafa nú staðið
mun lengur en venjulega,
vegna þess hve tíðarfarið hefur
verið óvenju slæmt. Hefur
þetta komið hart niður á
ýmsum, s.s. vörubílstjórum og
öðrum, sem mikið þurfa að
notast við þungaflutninga.
Blaðið hafði samband við Þor-
gils Gunnlaugsson, bónda á
Sökku í Svarfaðardal og sagði
hann þungaskatt og takmarkanir
hafa komið hart niður á bændum
þar. „Ég gæti trúað, að kostnaður
við mjólkurflutninga héðan hefði
tvöfaldast á þessum tíma. Bændur
hér hafa verið að mjatla áburði
heim á heyvögnum og er það sér-
staklega óhagkvæmt fyrir þá, sem
þurfa að fara lengra. Ég álít, að
vegagerðin geti ekki boðið okkur
upp á þetta. Hér í Svarfaðardal
mátti aka hlöðnum vörubílum um
veginn mun fyrr en leyft var. Hér
voru tveir eða þrír pyttir, sem lítill
vandi hefði verið að lagfæra með
ofaníburði.“
Ennfremur sagði Þorgils, að
sjálfsagt væri að hafa þungatak-
markanir á vegum á vorin, en
ófært, að nokkrir menn á Akur-
eyri hefðu það á valdi sínu, hve-
nær þungaflutningar yrðu leyfðir í
Svarfaðardal. Eins væri ófært, að
vörubílstjórar yrðu fyrir atvinnu-
missi og tapi af þessum sökum, án
þess að einhverjar bætur kæmu
til.
Listakosning í
Hrafnagilshreppi
26. júní nk. fara fram kosningar
til sveitarstjórna í hreppum
landsins. Algengast er, að
kosningar þessar séu óhlut-
bundnar, þ.e. kosnir eru ein-
staklingar, en þó er töluvert um
það, að boðnir séu fram listar.
í Hrafnagilshreppi hafa verið
lagðir fram tveir listar - annars
vegar H-listi fráfarandi hrepps-
nefndar og hins vegar I-listi
áhugamanna um sveitarstjórnar-
mál. Listakosninghefurekki farið
fram í hreppnum í 20 ár og lék
blaðam. forvitni á að grennslast
um, hvað réði að nú kæmu fram
listar og hringdi í efstu menn á
hvorum lista, Harald Hannesson
af H-lista og Önnu Guðmunds-
dóttur af I-lista.
Haraldur sagði, að hann væri
heldur á móti svona kosningum,
en þetta kæmi upp með ákveðnu
millibili að ungt fólk vildi spreyta
sig og væri það ekki óeðlilegt.
Anna sagði, að listi hennar hefði
verið boðinn fram af ýmsum
ástæðum, en fyrst og fremst vegna
þess, að á síðustu árum hefði
fjölgað mjög í hópi launafólks í
hreppnum, en það ætti ekki full-
trúa í hreppsnefndinni, sem skip-
uð væri bændum.
Bæði voru þau samnrála um
það, að ekki væri nein vonska í
kosningunum og allt væri þetta í
góðu meint.
Mikill vöxtur hefur verið í ám og lækjum í hitunum að undanförnu. Þessi mynd var tekin af vinnusvæði brúarsmiða
við Árgerði í Svarfaðardal. Þeir voru heldur betur á flæðiskeri staddir og gátu fátt gert annað en beðið eftir því, að
flóðið sjatnaði. Mynd hh
Bruni í Hafnarstræti
Á þriöjudagseftirmiðdag kom
upp eldur viö húsið Hafnar-
stræti 81 þar sem verslunin Ein-
ir hefur verið til húsa.
Eldurinn kom upp fyrir utan
húsið að vestanverðu en flutning-
ar stóðu yfir hjá fyrirtækinu.
Komst eldurinn í léttan vegg og
síðan inn í húsið á annari hæð um
það bil er slökkvilið Akureyrar
kom á vettvang. Þar urðu tals-
verðar skemmdir af reyk og vatni.
Þegar Dagur hafði samband við
rannsóknarlögregluna fengust
þær upplýsingar að eldsupptök
væru ókunn en málið væri í
rannsókn.
Aðfaranótt þriðjudagsins var
brotist inn í Flugstöðina á Ak-
ureyri. Mun innbrotið hafa átt
sér stað eftir miðnætti.
Þjófurinn komst í peninga í
flugstöðvarbyggingunni en litlar
skemmdir voru unnar á staðnum.
Málið er í rannsókn hjá Rann-
sóknarlögreglunni á Akureyri.
Ný brauð frá KEA
Brauðgerð KEA á Akureyri er
þessa dagana að senda á mark-
aðinn tvær nýjar tegundir af
brauði. Er hér um að ræða
gróf, sykurlaus brauð sem bera
heitin Trimmbrauð og Þriggja
korna brauð.
í Trimmbrauðinu er hveiti,
grúska (gróf kornblanda), heil
hveitikorn, rúgmjöl, maltöl, ger,
alt og leyfileg aukaefni. Þriggja
korna brauðið inniheldur hveiti,
sigtimjöl, mulinn rúg, hörfræ, salt
jurtafeiti, ger, súrdeig, maltmjöl,
valmúafræ og leyfileg aukaefni.
Þetta eru nýjustu brauðin frá
Brauðgerð KEA, en fleiri tegund-
ir eru reyndar nýkomnar á mark-
aðinn. Má af þeim nefna sykur-
lausa Víkingabrauðið, sykurlausa
Heilsubrauðið og Sojabrauð, en
það síðast talda hefur þegar náð
gífurlegum vinsældum.
Þessi brauð eru öll seld niður-
skorin í smekklega hönnuðum
plastpokum sem innihalda um 20
sneiðar hver. Þau brauð sem
nefnd hafa verið hér að framan
eru aðeins lítill hluti framleiðsl-
unnar á grófum brauðum hjá
KEA því að þar eru framleiddar
12 tegundir af grófum brauðum
fyrir utan rúgbrauð, franskbrauð
og mörg fleiri.
>T /TYfT trp 'T r"" dJi
ÍlL /liy IS S Jií.
# Margir í
nefndum
Á fyrsta bæjarstjórnarfundin-
um þurfti bæjarstjórn Akur-
eyrar að kjósa ekki færri en
340 aðalmenn og varamenn í
um það bil 50 nefndir, stjórnir,
ráð og stofnanir bæjarins. Ef
hver maður hefðí verið kosinn
í eina nefnd (algengt er, að
einn maður sitji í tveimur
nefndum), er ekki fjarri lagi,
að 4-5% bæjarbúa hefði hlot-
ið kosningu í einhverja nefnd
eða stjórn. Af þessu má ráða,
að stjórn eins bæjarfélags er
viðamikið verk og nefndirnar
eru bráðnauðsynlegar, svo
að hlutirnir geti gengið eðli-
lega fyrir sig.
# Ættiaðselja
bílinn?
Dagur sagði frá því fyrir
skömmu, að bíll sá, sem
keyptur var til að flytja fatlaða,
hefði lítið sem ekkert að gera,
auk þess lýsti forstöðumaður
SVA því yfir, að bíllinn væri
óhentugur til síns brúks.
Margir hafa komið að máli við
starfsmenn Dags og spurt,
hvers vegna í ósköpunum
bíllinn sé ekki seldur og keypt-
urannar-ef þörfertalináþví.
Það getur ekki verið neinum í
hag að sitja uppi með bíl, sem
getur ekki gegnt því hlutverki,
sem honum var ætlað í upp-
hafi.
# Ungirsjálf-
stæðismenn
óánægðir
Það er opinbert leyndarmál,
að ungir sjálfstæðismenn á
Akureyri eru ákaflega
óánægðir með efstu menn
listans, ungu mennirnir telja,
að þeir gömlu hafi síður en
svo staðið sig vel í meirihluta-
viðræðunum. Að sjálfsögðu
munu þeir gömlu ekki hlusta á
ungu flokksmennina, slíkt er
ekki siður á þeim bæ.
# Forðagæslu-
stjóri og
löggilt klof
Götustrákur íhaldsblaðsins
sagði aðeins hálfan sannleik-
ann fimmtudaginn 3. júní.
Þann góða dag stóð í íhalds-
blaðinu, að Jón Sigurðarson
hafi viljað gera vin sinn,
Benedikt Ólafsson, að forða-
gæslustjóra við nefndarkosn-
ingar í bæjarstjórn. Einnig
sagði götustrákurinn að Jón
hefði ekki heldur fengið það í
gegn, að Benedikt yrði gerður
að fjallskilastjóra. Hinn helm-
ingurinn af sannleikanum er
þessi: Benedikt kom aldrei til
álita eftir að búið var að kanna
líkamsvöxt mannsins, það
kom nefnilega í ijós, að hann
hafði hvorki iöggilt klof eða
iöggiltan faðm. Benedikt var
sem sagt hafnað á faglegum
forsendum.