Dagur - 20.07.1982, Síða 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 20. júlí 1982
77. tölublað
Árni Reynisson, erindreki Stálfélagsins:
Talið að 2 þúsund tonn
af brotamálmi séu á Akureyri
— Stálfélagið kannar möguleika á samstarfi við sveitarstjórnir,
fyrirtæki og búnaðarsambönd um söfnun brotajárns
„Talið er að til falli í landinu
ÖIIu um 15 þúsund tonn af
brotamálmi á ári að meðaltali,
og að úr þessu megi vinna 13
þúsund tonn af steypustyrktar-
járni, sem er nokkurn veginn
ársþörfin. Hugmyndin er að ná
samstarfi við sveitarfélög og
fleiri aðila víðs vegar um landið
um hagkvæmustu lausn fyrir
alla aðila við að safna þessu
saman, en víða er brotajárn
mikið umhverfisvandamál.
Sem dæmi má nefna, að talið
er, að um 500 tonn af brotajárni
úr niðurbrotnum sfldarverk-
smiðjum liggi á Siglufirði.
„Sumt hefur verið grafið með
ærnum tilkostnaði og þar sem
þetta er grafið er t.d. ekki hægt
að byggja, því að við byggjum
ekki á stáli. Það er einfaldlega
of dýrt að grafa skurði með
Iogsuðntækjum,“ sagði Árni
Reynisson, sem ráðinn hefur
verið erindreki Stálfélagsins, í
viðtali við Dag.
Undirbúningur að brotajárns-
verksmiðju hefur nú staðið hátt á
annan áratug. Stálfélagið var
stofnað í apríl sl. og í kjölfarið
fylgdu lög, sem heimila ríkinu að
kaupa allt að 40% hlutafjár f stál-
bræðslu. Félagið hefur tryggt sér
lóð í Straumsvík, og þar er nú
þegar hafin móttaka brotamálms.
„Meðal staða, sem ég hef farið
til, eru Siglufjörður, Dalvík og
Skagaströnd, og á öllum þessum
stöðum hefur erfiðlega gengið að
losna við brotajárnið. Ég get
nefnt, að talið er, að um 2 þúsund
tonn af brotajárni gætu legið á
Akureyri, vítt og breitt um bæinn.
Erindi mitt um landið er að ræða
við fulltrúa sveitarstjórna, fyrir-
tækja, búnaðarsambanda og fleiri
um hvernig best sé að nálgast allt
það brotajárn, sem er í landinu og
hvernig auðveldast sé að koma
því á vinnslustað. Eins og stálverð
er í dag, er vart hægt að segja, að í
þessu járni sé verðmæti, þar sem
flutningskostnaður er um sjö
sinnum meiri en fæst fyrir góðan
málm. Því þarf samvinnu þessara
aðila, sem ég nefndi um að leysa
þetta umhverfisvandamál og jafn-
framt reyna að gera verksmiðjuna
arðbæra, athuga hvaða möguleik-
ar eru á tilfallandi flutningum og
koma upp söfnunarportum út um
landið, þar sem málmurinn yrði
búinn til flutnings," sagði Arni
Reynisson ennfremur.
Hann sagði, að komið hefði til
tals að reisa fyrirtækið í þremur
áföngum, byrja á brotajárnsgarði
með fullkomnum tækjum til for-
vinnslu, þ.e. skurðar og press-
unar, síðan kæmi bræðslan og þar
næst úrvinnslan, sem væri lang-
arðbærust. Því væri best að reisa
verksmiðjuna í einu lagi, en ef
söfnun gengi ekki alveg að
óskum, væri ágætlega fært að
byggja verksmiðjuna í áföngum.
Árni sagði, að móttökur hefðu
verið mjög jákvæðar víðast hvar,
bæði varðandi söfnunina og þátt-
töku í fyrirtækinu. Hann sagði, að
fjárfestingin væri eins og í tveimur
skuttogurum, starfslið í verk-
smiðjunni yrði eins og áhafnir
tveggja togara og allt starfið í
kringum þetta samsvaraði vinnu
fyrir fólk, sem samsvaraði starfs-
mannafjölda eins frystihúss, eða
þar um bil, svo að notaðar væru
kunnar samlíkingar. Ef allt gengi
að óskum, gæti verksmiðjan risið
á tveimur árum.
Ekið
ápilt
Tólf ára piltur liggur nú meðvit-
undarlaus á sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri eftir hörmulegt umferð-
arslys sem varð á móts við bæ-
inn Spónsgerði í Arnarnes-
hreppi á föstudag.
Ekið var aftan á piltinn þar sem
hann var á ferð á reiðhjóli og var
hann fluttur á sjúkrahús. Sam-
kvæmt þeim fréttum sem Dagur
aflaði sér í gær var drengurinn
mikið slasaður og ennþá meðvit-
undarlaus.
Valur
tapar
í gærdag tók dómstóll Knatt-
spyrnusambands íslands fyrir
kæru Isfirðinga gegn Val, en ís-
firðingamir kærðu valsmenn
fyrir að hafa notað ólöglegan
leikmann - Albert Guðmunds-
son - í leik liðanna í 1. deild.
Áður hafði dómstóll Knatt-
spyrnuráðs Reykjavíkur fjallað
um málið og dæmdi hann Isfirð-
ingum í vil þannig að leikurinn
skyldi vera Val tapaður. Dómstóll
KSÍ staðfesti síðan þann dóm í
gær.
Þetta mál snertir fleiri félög því
eins og þeir sem fylgjast með
knattspyrnu vita kærði KA vals-
menn á sömu forsendum og ís-
firðingarnir. Er því hægt að ganga
út frá því sem gefnu að KA muni
vinna sitt kærumál. Þáð þýðir ein-
faldlega að KA skýst upp í 2. sæt-
ið í 1. deild, en á botninum sitja
Valsmenn með sárt ennið.
Ljósmynd: KGA.
Drangur hinn nýi kom til Akureyrar í gærmorgun í fyrsta sinn.
Skapa
þarf
4000
ný atvinnu-
tækifæri
Unnin hefur verið skýrsla á
vegum Fjórðungssambands
Norðlendinga, sem ber yfir-
skriftina „Spá yfir mannafla á
Norðurlandi eftir atvinnugrein-
um 1980-1990“. Höfundur
hennar er Hafþór Helgason
starfsmaður samtakanna.
Skýrslan var lögð fram á fundi
stjórnar FSN og fulltrúa vinnu-
markaðarins í síðustu viku.
í skýrslunni kemur m.a. fram
að gera megi ráð fyrir fólksfjölgun
hlutfallslega undir landsmeðaltali
á þcssum áratug en að hlutfalls-
legur vöxtur mannafla verði meiri
á landsbyggðinni en á höfuðborg-
arsvæðinu á sama tíma.
Einnig er í skýrslunni gert ráð
fyrir áframhaldandi fækkun árs-
verka í frumvinnslugreinunum,
landbúnaði og fiskveiðum en
fjölgun í úrvinnslugreinum og
þjónustugreinum og reiknað með
að skapa þurfi ný atvinnutækifæri
fyrir rúmlega 1300 manns í úr-
vinnslugreinum og tæplega 2700
manns í þjónustugreinum á ára-
tugnum, samtals 4000 manns.
I lok skýrslunnar kemur fram
að hlutfallsleg fólksfjölgun í
fjórðungnum er mun minni en á
landinu í heild og haldi sú þróun
áfram er fyrirsjáanlegur sam-
dráttur á öllum sviðum. Einnig
kemur fram að tekjur manna í
fjórðungnum eru yfirleitt undir
landsmeðaltali og skráð atvinnu-
leysi hlutfallslega hærra.
Sjá kafla úr skýrslunni bls. 4