Dagur - 20.07.1982, Síða 5
Óráðið í stöðu
bæjarritara
Ekki hefur enn verið gengið frá
ráðningu bæjarritara á Dalvík
eins og til stóð að gera í síðustu
viku og sagt var frá í Degi.
Rögnvaldur Skíöi Friöbjörns-
son hefur nú dregið umsókn sína
til baka en að sögn Valdimars
Bragasonar bæjarstjóra verður
sennilega gengið frá ráðningu
bæjarritara í þessari viku. í síð-
ustu viku var hins vegar Stefán
Jón Bjarnason ráðinn bæjarstjóri
á Dalvík. Hlaut hann 4 atkvæði í
bæjarstjórn.
Hestamóti frestað
Akveðið hefur verið að fresta
hestamóti Léttis, Funa og Þráins
sem átti að vera á Melgerðismel-
um 24. og 25. júlí nk. til 21. og 22.
ágústnk.
Astæðan er í fyrsta lagi sú að fé-
lagsmenn Funa og Þráins eru mjög
bundnir í heyskap sem fór frekar
seint af stað á Eyjafjarðarsvæðinu. í
öðru lagi er mjög stutt liðið frá lands-
móti og óvíst með áhuga knapa og
annarra félagsmanna á að vinna að
öðru móti.
Mótstilhögun verður nánar auglýst
síðar.
Rauða húsið
Ýmsir menningarlegir viðburð-
ir eiga sér stað þessa dagana í
Rauða húsinu. Þar á sér nú stað
10 daga samfelld röð myndlist-
arsýninga og annarra viðburða
sem hófst þann 16. þessa mán-
aðar og endar 25. Á hverjum
degi gefur þar að líta nýja
myndlistarsýningu og á kvöldin
kl. 21 eru tónleikar, fyrir-
lestrar, upplestur eða viðburð-
ir.
Nú þegar hafa Kristján Guð-
mundsson, Haraldur Ingi Har-
aldsson, Guðjón B. Ketilsson og
Jón Laxdal Halldórsson haldið
myndlistasýningar og kvöldstund-
ir verið í höndum Jóns Óskars
Pálls Skúlasonar, Haralds Inga
Haraldssonar og Jóns Laxdal
Halldórssonar.
í dag stendur yfir myndlistar-
sýning Rúnu en hún hefur kennt
myndlist í Þingeyjarsýslu undan-
farna tvo vetur. Óg í kvöld kl. 21.
heldur Helgi Hallgrímsson nátt-
úrufræðingur fyrirlestur um Lag-
arfljótsorminn. Á morgun, mið-
vikudag, verður sýning á verkum
hollensku myndlistarkonunnar
Henriette van Egten.
Annað kvöld heldur BARA-
Flokkurinn tónleika kl. 21. Margt
fleira verður á dagskrá í Rauða
húsinu á næstunni og verður getið
um það sfðar. Sjá nánar í síðasta
Helgar-Degi.
Vorum að taka upp
Södahl vörur:
Bollapör, bakka,
sykursett, smjörskálar,
sultukrúsir, pipar og salt
Dekkservéttur, svuntur,
pottalappa, bakkabönd
og efni í sama mynstri
Ný sending af
7lrzbetq)postui,ni,
vasar, kertastjakar,
krúsir og m. fleira
Vatnsþétt stakkaefni
2 þykktir
Röndótt draktaefni
Pífu pilsefni
Möve handklæði í
3 stærðum
Opið á laugardögum
frá kl. 10-12.
alll tilsawna
Sfc
Is
___l_!
FNR. 8164 -5760
Ýemman
SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI
Lokað
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa mín lokuð frá
19. júlí til 9. ágúst.
Fasteignasalan er þó opin eftir sem
áður og er sölustjóri Pétur Jósefsson
með fasta viðtalstíma á skrifstofunni
frá kl. 16.30-19.30 alla virka daga eða á
öðrum tímum eftir samkomulagi.
Heimasími hans er 24485.
Ðenedikt Ólafsson, hdl.
0*
Lokað
vegna sumarleyfa 1. ágúst til 8. ágúst.
MOL&SANDUR HF.
V/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
liteí
ÖKUMENN!
BLÁSUM El
SUMRINU BURT
|JU^JFERÐAR
AKUREYRARBÆR ||||
Til leigu
eru tvær íbúðir
Umsóknum skal beint til Félagsmálastofnunar,
Strandgötu 19b, pósthólf 367, sem fyrst á um-
sóknareyðublöðum er þar fást.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
EINSTAKT TÆKIFÆRI!
Skemmtisigling með
lúxusskipi fró Reykjavík til
Noregs og þýskalands
(nunvtiL
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstíg 1. Símar 28388 og 28580
Nú gefst Islendingum tækifæri á siglingu með einu
glæsilegasta skemmtiferðaskipi Evrópu Ms. MAXIM
GORKI (áður Hamburg) sem er 25 þús. tonna fleyta.
Skipið kemur til Reykjavíkur 29. ágúst og fer kl. 8 að
kvöldi 30. ágúst.
Skipið verður til sýnis á Ak-
ureyri sunnudaginn 25. júlí
kl. 4-6 sd.
Þeir sem áhuga hafa á skoðun vinsam-
iegast hafið samband við Hilmar Daníels-
son í síma 61318 og 61319 á vinnutíma og
61173 á kvöldin.
MAXIM GORKI er lúxusskip. Allar vistarverur eru með sturtu
og w.c. Á meðan dvalið er um borð er farþegum séð fyrir fullu
fæði og fá þeir aðgang að öllum þægindum um borð, svo sem
sundlaug, leikfimisherbergi, borðtennis, kvikmynda- og veit-
ingasölum, börum og næturklúbb, svo að eitthvað sé nefnt.
Umboðsmenn ATLANTIK á Norðurlandi:
Akureyri: Ingimar Eydal, sími 21132
Dalvík: Hilmar Daníelsson, sími 61318 og 61173
Húsavík: Bjarni Bogason, sími 41474
Ólafsfjörður: Ágúst Sigurlaugsson, sími 62152.
20l')ú(í,4962 - PAGMR - 5