Dagur - 20.07.1982, Page 9
Ðreiðabliksstúlkurnar
unnu öruggan sigur
„Ég átti alls ekki von á að ég
myndi vinna upp þessi átta
högg sem Jón Þór hafði í for-
ustu fyrir síðasta daginn, en er
ég hafði jafnað við hann þegar
5 holur voru eftir sá ég að ég
átti möguleika á sigri“ sagði
Héðinn Gunnarsson, 15 ára
piltur sem um helgina varð
yngsti Akureyrarmeistari í
golfi frá upphafí.
Héðinn sigraði þá Jón Þór
bróðir sinn sem hefur verið
ókrýndur konungur kylfinga á
Akureyri undanfarin ár, og
Baldur Sveinbjörnsson, í æsi-
spennandi keppni á Jaðarsvell-
inum. Reyndar leit ekki út fyrir
þessa miklu keppni lengst af,
Jón Þór hafði 8 högg í forskot á
Héðin þegar 18 holur af 72 voru
óleiknar, og Héðinn átti þrjú
högg á Baldur.
En þegar 5 holur voru óleikn-
ar voru þeir allir jafnir og
„Iyktin“ af einhverju óvæntu fór
að berast um völlinn. Þeir fylgd-
ust j af nir að þar til á næst síðustu
holu að Baldur tapaði einu
höggi og því var ljóst að bræð-
umir myndu gera út um málin á
síðustu holunni.
Upphafshögg þeirra voru líka
álíka löng á miðri braut. Annað
högg Héðins var í flatarkanti en
Jón Þór of langur. Þriðja högg
hans var yfir sandtorfæm og
inná flötina og hann þurfti tvö
pútt til að koma boltanum í hol-
una. Þriðja högg Héðins - inná-
skotið - var mjög gott og hann
tryggði sig fyrir að geta sett
niður 4. höggið og titilinn var
hans.
„Púúúfffff . . .jú þetta var
erfitt, ég hreinlega titraði yfir
boltanum á síðustu holunum,“
sagði Héðinn eftir sigurinn. Jón
Þór tók ósigrinum karlmannlega
og sagði: „Héðinn var einfald-
lega betri en ég og átti þetta
skilið. Það er bót í máli fyrir mig
að titilinn skuli enn vera innan
fjölskyldunnar.“
í kvennaflokki varði 'Inga
Magnúsdóttir titil sinn frá síð-
asta ári léttilega. Keppendur í
þessum flokki voru fáir, og
greinilegt að eitthvað þarf að
gera til þess að laða kvenþjóðina
meira að golfinu.
Páll Pálsson virtist vera að
gera út um málin í 2. flokki karla
þegar keppnin var hálfnuð en
hann gaf eftir í lokin og Þórður
Svanbergsson kom siglandi á
fullri ferð og hirti titilinn örugg-
lega. í 1. flokki var Sverrir Þor-
valdsson með forystuna framan
af en hann gaf eftir eins og Páll
og missti af titlinum.
í drengjaflokkftum var
óvenjugóð þátttaka og einnig
óvenjuvel spilað. Er ljóst að Ak-
ureyringar eru að eignast harð-
snúinn hóp pilta sem eiga eftir
að gera góða hluti ef þeir halda
sig við efnið. Sömu piltar röð-
uðu sér í efstu sætin og í fyrra,
Björn Axelsson hinn öruggi sig-
urvegari og Ólafur Gylfason og
Örn Ólafsson börðust um 2. sæt-
ið mikilli baráttu. En lítum þá á
úrslitin.
m.fl. karla
1. Héðinn Gunnarsson ....... 328
2. Jón Þór Gunnarsson ...... 329
3. Baldur Sveinbjörnsson ... 330
m.fl. kvenna
1. Inga Magnúsdóttir ....... 367
2. Jónína Pálsdóttir ....... 389
3. Auður Aðalsteinsdóttir .. 452
l.fl. karla
1. Jón G. Aðalsteinsson .... 352
2. Sverrir Þorvaldsson ..... 366
3. Birgir Björnsson ........ 392
2.fl. karla
1. Þórður Svanbergsson ..... 371
2. Páll Pálsson ............ 385
3-4. Ragnar Lár ............ 387
3-4. Bessi Gunnarsson ...... 387
Ragnar sigraði í aukakeppni.
drengjaflokkur
1. Björn Axelsson .......... 335
2. Ólafur A. Gylfason ...... 357
3. Örn Ólafsson ............ 358
Þá voru veitt aukaverðlan,
„golfglasabakkar" gefnir af
„Ég titraði
yfir boltanum á
síðustu holunum“
Titilinn er í höfn og Júnína Pálsdóttir móðir Héðins fagnar afreki sonarins.
Mynd: gk.
Ragnari Lár. Smári „Jöggvan“
Garðarsson hlaut einn þeirra
fyrir mestan mun á hringjum,
hans versti var 72 högg en sá
besti 46; - Héðinn Gunnarsson
hlaut verðlaun fyrir mestan
stöðugleikann í sínu spili, og
hinn eldsnöggi og skemmtilegi
stjórnandi mótsins síðasta
daginn, Hörður Tuliníus, hlaut
sérstök verðlaun fyrir frábæra
frammistöðu. Sögðu menn að
það væri álitamál hvort hann
ætti ekki að hætta dómarastörf-
um í körfuknattleik þar sem
hann hefur alþjóðleg réttindi og
snúa sér alfarið að
mótstjórn. . . gk-.
Stórsigur KA
Á blautum grasvellinum áttu
KA-menn ágætan leik gegn
KR, og vann KA stóran sigur
- skoraði þrjú mörk, en KR-
ingar skoruðu alls ekki.
KR-ingar voru ákveðnari
framan af og Aðalsteinn í KA-
markinu mátti taka á honum
stóra sínum eftir aukaspyrnu.
Óskar Ingimundarson átti gott
skot sem fór framhjá. Á 36. mín-
útu áttu KA-menn hornspyrnu,
og úr henni barst boltinn inn í
teiginn, þaðan sem varnar-
maður KR skallaði hann frá,
beint til Ragnars Rögnvalds-
sonar KA-manns, sem sendi
knöttinn með glæsilegu skoti í
bláhorn KR-marksins. í síðari
hálfleik voru KA-menn sprækir
og Elmar tók aukaspyrnu. Gaf á
Eyjólf, sem sendi fyrir markið,
þar sem Gunnar Gíslason var í
þröngri aðstöðu en náði að
skalla knöttinn í netið. Á 38.
mínútunni voru þeir Elmar,
Gunnar og Ragnar komnir einir
inn fyrir KR-vörnina - Elmar
gaf á Gunnar, sem gaf á Ragnar,
sem afgreiddi boltann í netið
með föstu skoti. Þar með var
sanngjarn sigur KA innsiglaður,
en allur vindur var úr KR-
ingum.
KA
qegn
Víking
Á miðvikudaginn klukkan
20.00 leika á Akureyrarvelli í
8 liða úrslitum bikar-
keppninnar, KA og Víkingur.
Tap hjá Þór
„Við vorum óheppnir að tapa
þessum leik, því jafntefli var
sanngjarnast“ sagði Ragnar
Þorvaldsson sem var farar-
stjóri Þórsara til Njarðvíkur,
cn þeir léku þar við heima-
menn í annarri deild á laugar-
daginn.
Leikið var í roki og á blautum
grasvelli, og Ieikurinn nokkuð í
stíl við það. Njarðvíkingar
gerðu sitt eina mark í síðari hálf-
leik, en það dugði þeim til
sigurs, og tvö dýrmæt stig í höfn.
Staðan í annari deild er nú mjög
tvísýn og jöfn, en Þróttur frá
Reykjavík hefur nokkuð örugga
forustu en síðan koma ein fimm
lið sem berjast um annað sætið í
deildinni sem um leið gefur
fyrstu deildar sæti næsta
keppnistímabil.
Bautamótið svokallaða sem
er keppni í kvennaknatt-
spyrnu fór fram um helgina.
Áð þessu sinni mættu tíu lið til
mótsins, tvö frá Akureyri og
átta utanbæjar. Þetta er í ann-
að sinn sem svona mót er
haldið, en það mun verða ár-
viss atburður í framtíðinni.
Það er Bautinn á Akureyri
sem gefur farandbikar til
keppninnar og einnig verðlaun-
apeninga handa þremur efstu
liðunum. Þá gaf Bautinn einnig
hressingu meðan á leikjunum
stóð og gaf keppendum afslátt af
mat meðan mótið fór fram. Að
öðru leyti er það KRA sem sér
um framkvæmd mótsins. Leikið
var í tveimur riðlum og kepptu
síðan efstu liðin til úrslita. Tvö
næstu um þriðja og fjórða sætið
o.s.frv. Alls voru leiknir tuttugu
og fimm leikir í þessu móti,
þannig að nóg var fyrir fram-
kvæmdaraðila að gera meðan á
keppninni stóð.
Um fyrsta og annað sætið
keppti Breiðablik og KR og sigr-
uðu Breiðabliksstúlkurnar með
þremur mörkum gegn engu. Um
þriðja og fjórða sætið kepptu
Akranes og Valur og sigraði
Akranes með þremur mörkum
gegn tveimur. Víkingar sigruðu
Völsunga og höfnuðu í fimmta
sæti, með einu marki gegn engu,
KA sigraði FH með fjórum
mörkum gegn þremur og höfn-
uðu KA stúikurnar í sjöunda
sæti.
_ Þór sigraði síðan Fram með
þremur mörkum gegn tveimur
og lentu Þórsstúlkurnar í
níunda sæti.
2Qvjúlí,1982- DAGUR-5