Dagur - 20.07.1982, Qupperneq 12
s
I blóma lífsins.
Ljósmynd: KGA.
Margar
auglýs-
ingar um
nauðungar-
uppboð
í lögbirtingablaðinu sem kom
út s.I. miðvikudag eru hvorki
fleiri eða færri en 49 auglýsing-
ar um nauðungauppboð frá
bæjarfógetanum á Akureyri og
Dalvík og sýslumanninum I
Eyjafjarðarsýslu.
Dagur spuröist fyrir um það á
bæjarfógetaskrifstofunum á Ak-
ureyri hverju þetta sætti og hvort
hér væri ekki um .óvenjulegan
fjölda nauðungauppboðsaug-
lýsinga að ræða. Freyr Ófeigsson
sem varð fyrir svörum, tjáði blað-
inu að ekki væri hægt að draga
neinar ákveðnar ályktanir af
þessu, hér gæti verið um það að
ræða að safnast hefði fyrir hjá
embættinu á löngum tíma þetta
mikið af uppboðsbeiðnum en allt
eins væri líklegt að í næsta tölu-
blaði Lögbirtingarblaðsins yrði
ekki um neinar uppboðsauglýs-
ingar að ræða frá bæjarfógetanum
á Akureyri og Dalvík og sýslu-
manninum í Eyjafjarðarsýslu.
# Vondi
maðurinn
Að undanförnu hafa þeir tek-
ist á Bjarni Felixson íþrótta-
fréttamaður Sjónvarpsins og
Ellert B. Schram ritstjóri DV,
Videósonmaður og útvarps-
ráðsmaður og sakað hvorn
annan um að standa í vegi
fyrir því að við fengjum að sjá
beinar myndír frá HM-
keppninni sálugu. Bjarni
skaut fyrst, en Ellert svaraðí
um hæl og sagði Bjarna hafa
skotið út af eins og svo oft
áður. Ellert ætti að vita hvað
hann er að segja, því að þeir
félagar léku lengi saman (KR-
vörninni hér á árum áður. Ell-
ert birtir síðan langa grein í
DV um helgina þar sem hann
gerir hrefnt fyrir sínum
dyrum, og ekki verður annað
séð af lestri þeirrar greinar en
að sökin (fínna þarf sökudólg
vegna þess að ekki fengust
fleiri leikir í beinni útsend-
ingu) liggi hjá fjármálaspek-
ingum Sjónvarpsins. Það er
víst eftir öðru á þeim bænum
að það sé allt of áhættusamt
fjárhagslega að senda svona
efni beint út, þótt þeir ættu að
vita spekingarnir eins og
aðrir landsmenn að hver ein-
asta beina knattspyrnuút-
sending hefur skilað umtals-
verðum hagnaði í tóma
kassa. Það væri fróðlegt að
reikna út, hvað þyrfti
marga beina knattspyrnuleiki
til þess að hagnaðurinn af út-
sendingu þeirra nægði fyrir
eins og einum „Lénharði fóg-
eta“ eða þannig sko ...
# Kreppu-
einkenni
Hreiðar Jónsson starfsmaður
á íþróttavellinum á Akureyri
er gamansamur maður og
„ótrúlega hittinn" þegar sá
gállinn er á honum. Á dögun-
um sendi hann „skotastúku-
gestum“ (það eru þeir sem
tíma ekki að borga sig inn
og fylgjast með leikjum utan
vallarsvæðisins) skemmtilegt
„skeyti“, og síðan bætti hann
betur um sl. föstudagskvöld.
Þá léku KA og KR í 1. deild-
Innl, og stór hópur fólks var í
„skotastúkunni". Skyndilega
vakti rödd Hreiðars athyli vall-
argesta er hann ávarpaði
„skotana", en þá voru 25 mín-
útur til leiksloka: „Þar sem
kreppueinkenni hafa hlaðíst
upp hér utan vallargirðingar-
innar vil ég taka það fram að
það fá allir ókeypis aðgang
eftir 20 mínútur.“ Kom los á
„skotastúkugesti" við þetta
„skeyti“ en þeir sem höfðu
greitt aðgangseyri skemmtu
sér konunglega!
Grenivík:
Útibú KEA í nýtt
glæsilegt húsnæði
ur er tæpir 150 fermetrar, en aö
auki um 100 fermetrar fyrirbens-
ínsölu með tilheyrandi olíu- og
bifreiðavörum, auk verkfærasölu
og svo kaffiteríu þar sem seldar
verða ýmsar léttari veitingar.
Slíka þjónustu hefur ekki verið
hægt að fá á Grenivík til þessa.
Um 20 manns geta drukkið þar
kaffi samtímis.
Bensínsalan verður opin frá kl.
9 til 19.30 virka dagaenfrá kl. 9 til
21 um helgar. Kaffiterían verður
hinsvegar opin í sumar frá kl. 14
til 19.30 virka daga og frá kl. 9 til
21 laugardaga og sunnudaga.
Almenn ánægja er ríkjandi á
Grenivík og í nágrenni með þessa
framkvæmd kaupfélagsins. Versl-
unarhúsið er teiknað á teiknistofu
Sambandsins, byggingarmeistari
var Sveinn Jónsson, múrarameist-
ari Magnús Gíslason og málara-
meistari Ingólfur Benidiktsson.
Ljósgjafinn hf. sá um raflagnir,
Karl og Þórður um pípulagnir,
Oddi hf. um kælingar og Ásgeir
og Óskar um jarðvegsskipti.
Verkfræðingur var Birgir Ágústs-
son og byggingarstjóri Guðmund-
ur Jónsson.
Hið nýja verslunarhús KEA á Grenivík.
S.l. föstudag flutti útibú KEA á
Grenivík starfsemi sína í nýtt
og glæsilegt verslunarhúsnæði
að Túngötu 3 sem er við inn-
keyrsluna í þorpið. Var öllum
íbúum Grenivíkur og nágrennis
boðið að skoða þessa stórbættu
verslunaraðstöðu og þiggja
veitingar af þessu tilefni í kaffl-
teríu útibúsins.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur
rekið verslunarútibú á Grenivík
síðan 1941, en síðustu 20 árin hef-
ur verslunin verið rekin í húsi því
sem nú var flutt úr og orðið var
þröngt og óhentugt fyrir verslun-
ina.
Framkvæmdir við nýja verslun-
arhúsið hófust í júní s.l. sumar og
er það nú fullfrágengið innan sem
utan og aðkeyrslur og bílastæði
malbikuð. Verslunin er vel búin
tækjum og varningi. Húsið allt er
497 fermetrar að flatamáli, gólf-
flötur aðal verslunarinnar fyrir
dagvörur og aðrar nauðsynjavör-
Flugdagur
á Akureyri
Nk. laugardag 24. júlí verður
haldinn flugdagur á Akureyri
og er þar um að ræða einhverja
stærstu flugsýningu, sem haldin
hefur verið hcrlendis. Kl. 13.30
á föstudag hefst forsala að-
göngumiða á Torginu og kl.
16.00 sama dag verður happ-
drættismiðum dreift úr flugvél-
um yfír KA-velli, Sanavelli og
Þórsvelli. Að sögn aðstand-
enda dagsins má búast við
a.m.k. 60 flugvélum á Akur-
eyrarflugvelli á laugardaginn
og jafnvel fleirum ef veður leyf-
ir.
Dagskráin hefst kl. 13 með
flugminjasýningu. Þar verða m.a.
tvö elstu flugtæki landsins, gamlir
mótorar og skrúfur ásamt mörg-
um öðrum gömlum og merkileg-
um munum sem tengjast flugi,
heimasmíðaðar flugvélar ásamt
nýtísku flugvélum.
Á sama tíma er módelsýning,
sú stærsta sem haldin hefur verið
hérlendis. Sýnd verða mótor-
módel, svifflugmódel og þyrlur,
allt fjarstýrt.
Kl. 14.30 hefst svo flugsýning.
Ómar Ragnarsson sýnir listir
sínar á Frúnni, Magnús Norðdahl
sýnir listflug á TF-UFO, sýnt
verður fallhlífarstökk úr þyrlu í
fyrsta skipti hér á landi, listflug á
svifflugu, gírókoptaflug, Húnn
Snædal sýnir listflug á TF-KEA,
Landhelgisgæslan verður með
björgunaræfingu, þotuflug verður
á dagskrá og áfram mætti telja.
Flugfélag Norðurlands mun
kynna starfsemi sína, og Stræt-
isvagnar Akureyrar verða með
ferðir á flugvöllinn á hálftíma
fresti frá Glerárstöð, Iðnskólan-
um og Sjallanum. Kl. 12-17 verð-
ur matur í Sjallanum fyrir flug-
áhugamenn og kl. 19 um kvöldið
verður flugveisla, þar sem boðið
verður upp á flugseðil kvöldsins.
Stakfell er
farið á veiðar
Hinn nýji togari Þórshafnar- og
Raufarhafnarbúa, Stakfell, er
nú farið á veiðar, en skipinu var
siglt til Reykjavíkur, þar sem
norskir sérfræðingar fóru um
borð til að gera við vanstillingu
á spilútbúnaði skipsins.
Norðmennirnir fóru með skip-
inu í veiðiferð en voru síðan settir
í land eftir að búið var að koma
spilunum í lag. Eftir því sem Dag-
ur hefur fregnað gengur allt að
óskum, þótt veiði hafi verið
dræm.