Dagur - 23.07.1982, Page 4

Dagur - 23.07.1982, Page 4
ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSÍMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Skapa þarf 4000 nýstörf Fjórðungssamband Norðlendinga hefur gert spá um mannafla á Norðurlandi eftir atvinnu- greinum á áratugnum frá 1980-1990. Heild- arniðurstaða þessarar spár er sú að þörf er fyrir 4 þúsund ný atvinnutækifæri fram til árs- ins 1990. Þar af er gert ráð fyrir að rúmlega 1300 manns fari til starfa í úrvinnslugreinum og tæplega 2700 manns í þjónustugreinum. Talið er að Norðurland eystra þurfi að mæta um 75% þessarar aukningar og Norðurland vestra 25%. í skýrslunni segir m.a. á þessa leið: „Það er ljóst að í frumvinnslugreinunum, landbúnaði og fiskveiðum, er fyrirsjáanlegur samdráttur. Báðar greinarnar eiga það sameiginlegt að vera komnar á endimörk framleiðslugetunnar og mun framleiðniaukning vegna tækniþróun- ar í þessum greinum skila sér í færri launþeg- um og þeim þarf að skapa atvinnu við annað. “ Þá segir að í úrvinnslugreinum þ.e. fiskiðn- aði, öðrum iðnaði, veitum og byggingastarf- semi, sé gert ráð fyrir aukningu mannafla sem nemi rúmlega 1300 störfum. HlutfaUslega er þó gert ráð fyrir samdrætti í byggingariðnaði og kyrrstöðu í fiskiðnaði en aftur á móti vexti í öðrum iðnaði. „Miðað við þá þenslu sem verið hefur í byggingastarfseminni á síðasta áratug er eðlilegt að reikna með hlutfallslegum sam- drætti í henni í næstu framtíð," segir í spá Fjórðungssambandsins. „Hlutdeild þjónustugreina í mannaflanum á Norðurlandi mun skv. spánni vaxa úr 36,8% í 45,1 % á umræddu tímabili. Þar er aðallega um að ræða störf fyrir um 1100 manns í verslun og viðskiptum og rúmlega 1400 manns í annnarri þjónustu en innan hennar er opinber þjónusta lang fyrirferðarmest . . . Til samanburðar má geta þess að hlutdeild þjónustunnar í mann- aflanum á höfuðborgarsvæðinu 1980 var 66,5%.“ í spánni er gert ráð fyrir betri nýtingu mannaflans á næstu árum m.a. vegna þess að hlutastörfum fækki. Þar kemur fram að mann- fjölgun á Norðurlandi á síðasta ári hafi verið töluvert undir landsmeðaltali eða aðeins 0,68% á móti 1,23% fjölgun á landinu öllu og 0,82% fjölgun á landsbyggðinni í heild. Á höf- uðborgarsvæðinu varð fjölgunin hins vegar 1,61%. „Haldi þessi þróun áfram er samdrátt- ur fyrirsjáanlegur á öllum sviðum miðað við það sem spáð hefur verið og þá verulegri á Norðurlandi vestra en eystra," segir í spá Fjórðungssambandsins. Þó taka verði spár sem þessa með fyrirvara virðist hún gefa nokkuð ljósa vísbendingu um það sem framundan er á Norðurlandi. Nauð- synlegt er að efla þjónustustarfsemi á svæð- inu og úrvinnslugreinar, einkum í iðnaði. Ekki er að vænta aukningar í frumvinnslugreinum, landbúnaði og fiskveiðum. Aðalstræti 4. Fjaran og innbærinn: Aðalstrætí 4 gamla apótekið Aðalstræti 4, gamia apótckið, er mjög sérstakt hús af ýmsum ástæðum. í fyrsta lagi er húsið sjáift merkilegt aldurs síns vegna, en þó fyrst og fremst vegna gerðar og stærðar. Það var talið fallegasta hús bæjar- ins í marga áratugi, og eins og sjá má af gömlum Ijósmynd- um hefur það verið mjög skrautlegt. Húsið var lengi það stærsta í bænum, það stóð ofar en flest önnur hús og blasti víða við. Apótekið er það húsa bæjarins, sem einna mestan svip hefur sett á bæinn síðustu öldina. í öðru lagi er húsið merkilegt vegna þeirra athafna, sem þar hafa farið fram. Það var apótek bæjar- ins í meira en hálfa öld og þar bjuggu ýmsir af merkismönn- um bæjarins. Útliti hússins hefur verið gjörbreytt með múrhúðun og gluggabreytingum, en lögun þess er óbreytt frá fyrstu tíð. Að innan eru breytingarnar sennilega minni, þó að allt þurfí húsið mikilla endurbóta við. Lóðina þarf alla að snyrta og endurbæta. Hús þetta er eitt þeirra merkustu í Innbæn- um og íhuga þarf hvort rétt sé að friða það samkvæmt þjóðminjalögum. Saga: Oddur Thorarensen Stefánsson, amtmanns, fékk konungsleyfi til lyfjaverslunar á Akureyri 17. des. 1819. Árið 1820 lét hann byggja fyrstu lyfja- búð Akureyrar, rétt sunnan við lækinn, skammt vestan við Tul- iníusarhús. Oddur tók við lyfja- búðinni í Nesi við Seltjörn 1823 og féll þá lyfsala á Akureyri niður til ársins 1840 er Oddur fluttist til Akureyrar á ný. Sonur Odds, Jóhann Pétur Thorarensen, lét reisa stórt og glæsilegt hús fyrir lyfjaverslun- ina árið 1859. Húsið byggði Jón Chr. Stephánsson, timburmeist- ari, og þótti það lengi bera af öðrum húsum bæjarins. Jóhann Pétur fluttist af landi brott til Ástralíu árið 1864. Árið eftir tók við lyfsölunni danskur maður, Henrik Johan Peter Hansen; hann keypti lyfjabúðina 1868 og rak hana til 1886. Hansen var alla ævi ókvæntur. Hann þótti vel gáfaður, en undarlegur í tali svo að ókunnugir menn héldu oft að hann væri ekki með öllum mjalla. Hann var manna gest- risnastur og stóð hús hans opið öllum mönnum. Seinustu ár ævi hans kom enginn sá dagur fyrir að ekki sætu 3 eða 4 menn morg- unverð hjá honum og stóð hann venjulega um þrjár klukku- stundir. Maturinn var venjulega góður íslenskur matur, og brennivínsflaskan var alltaf við höndina. Árið 1885 tók við lyfjaversl- uninni Oddur Carl Thoraren- sen, sonur Stefáns sýslumanns og bæjarfógeta. Á aldarafmæli lyfjaverslunar Akureyrar tók sonur hans og alnafni við versl- uninni. Um 1865 bjó amtmaður- inn í húsinu. Apótek, skrifstofa og vörugeymsla var á neðri hæð- inni en íbúð uppi. Árið 1869 byggði Hansen úthýsi við hús sitt, sem nú er löngu horfið. Oddur Thorarensen keypti viðbótarlóð fyrir sunnan lyfja- búðina árið 1896 og hóf þar trjárækt og lét gera þar garðhýsi. Árið 1921 var gerður stein- steyptur skúr vestan við apótek- ið. Um 1930 var apótekið flutt norður í miðbæinn en gamla húsið leigt til íbúðar. Bræðurnir Björn og Óli Magnússynir keyptu húsið árið 1934. Var þá neðri hæðinni einn- ig breytt í íbúð og bjó Óli þar. Sölvi Sölvason keypti síðan hlut Óla og nú hefur Hjalti Berg- mann tekið við þeim hluta hússins. Peir Björn og Óli létu múrhúða húsið að utan fyrir u.þ.b. 25 árum og var þá einnig fjarlægður timburpallur, sem var fyrir framan húsið. Kafli þessi er tekinn upp úr skýrslu Hjörleifs Stefánssonar og Peters Ottosonar um húsin í Fjörunni og Innbænum. 4-DAGUR-23. júlí 1982

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.