Dagur - 07.09.1982, Blaðsíða 6

Dagur - 07.09.1982, Blaðsíða 6
Verðum að viðurkenna 20% kjaraskerðingu sem orðin er —segir Marteinn Friðriksson framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðárkróks „Þetta gengur illa og bullandi tap bæði á veiðum og vinnslu,“ sagði Marteinn Friðriksson, framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðárkróks og stjórnarfor- maður Úgerðarfélags Skagfirð- inga í stuttu spjalli við Dag. „Ég er sammála mörgum um það að efnahagsaðgerðir ríkis- stjórnarinnar komu allt of seint fram og með þeim erenganveginn tekið nægjanlegt tillit til þeirra kostnaðarhækkana sem orðnar eru og verða í framhaldi af þess- um aðgerðum. Það verður bara einfaldlega að viðurkennast að það hefur orðið 20% kjaraskerð- ing í landinu. Atvinnuvegirnir þola ekki að á þá sé hlaðið allri þeirri þjónustu sem gert hefur veriö. Ég tel að þjónustukostnað- urinn sé orðinn einum þriðja hluta meiri en atvinnuvegirnir sem standa eiga undir öllu saman geta þolað. Eg tel að á sumum sviðum sé hægt að minnka þjón- ustuna, gæta meiri sparnaðar og nauðsynlegt er að bæta rekstrar- skilyrði undirstöðuatvinnuveg- anna. Þó held ég að rekstrarskil- yrðin verði aldrei bætt svo að atvinnuvegirnir standi undir þessu öllu. Það er nauðsynlegt að draga í land.“ „Má ekki að sumu leyti bæta rekstur fyrirtækjanna?“ „Jú, vafalaust má gera það, en til þess að fyrirtækin geti bætt sig hvað þetta snertir og bætt tækja- kost sinn þurfa þau miklu meira svigrúm og meira fjármagn. Þau hafa verið kvalin áfram undanfar- in ár. Allar framkvæmdir til fram- fara kosta mikið einkum þegar fjármagnskostnaðurinn er svona hár. Ég held að snögg lækkun fjármagnskostnaðarins gæti lækk- að dýrtíðina í landinu. Svo er það náttúrlega fyrir neðan allar hellur að sætta sig við að atvinnureksturinn sé ekki rek- inn með gróða. Ef fyrirtækin eru rekin með hagnaði er hægt að gera kröfur til þeirra um bættan rekstur." „Nú gerir Útgerðarfélag Skag- firðinga út þrjá togara. Hvernig er með endurnýjun á þeim?“ „Skipin eru öll á svipuðum aldri, yngsta byggt 1975 og hin 1972 og 1973. Það er mjög nauð- synlegt að gera ráðstafanir til þess að endurnýjunin verði ekki öll á sama tíma. Hins vegar er lítið hægt að gera því það eru engir peningar. Við höfum verið að gera áætlanir um endurbyggingu og endurbætur á skipunum til að lengja líftíma þeirra. Slippstöðin á Akureyri er nú að gera áætlanir um endurbyggingu Hegranessins. Um síðustu áramót skulduðum við sem svaraði 11-12 milljónum á hvert skip. Þrátt fyrir þetta er reksturinn mjög erfiður og ég fæ ekki skilið hvernig hægt er að reka ný skip sem kosta 60-90 milljónir króna. Þess má geta að við erum að stækka fiskvinnsluhús Fiskiðj- unnar. Þegar þetta nýja hús er komið í gagnið gerum við ráð fyrir að geta tvöfaldað afkastagetuna. Aðstaðan í dag er óskaplega þröng. Þetta hefði þurft að vera komið í gagnið 1978 eða 79 en framkvæmdir hafa sífellt dregist vegna fjárskorts. Nú standa vonir til að hægt verði að taka vinnslu- salinn í notkun fyrir árslok.“ „Nú ástundið þið fiskmiðlun milli Sauðárkróks og Hofsóss, sem fær afla úr einu skipanna. Hvernig hefur þetta gengið?,, „Öllum aflanum er landað hér á Sauðárkróki og þeim hluta sem fer til Hofsóss er ekið þangað. Það er ódýrara að flytja fiskinn þessa 40 kílómetra leið heldur en að koma upp löndunaraðstöðu og mannskap á Hofsósi. Þetta hefur gengið vel. Hráefnisöflunin er við það miðuð að allir hafi alltaf nóg að gera, en aflinn fer í tvö hús á Sauðárkróki og eitt á Hofsósi. Við gætum aukið þetta samstarf t.d. við Skagstrendinga ef vegur væri kominn yfir Þverárfjall, sem stytti leiðina á milli um helming," sagði Marteinn Friðriksson að lokum. Marteinn Friðriksson. 6 - DAGUR - 7. september 1982

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.