Dagur - 07.09.1982, Blaðsíða 7

Dagur - 07.09.1982, Blaðsíða 7
Ráðstefna, aðalfundur eru kallaðir, en fáir útvaldir, þegar til þess kemur að benda á meistaraverkin. En því fleiri sem stunda listræna iðju því meiri líkur eru til þess að meist- araverk séu unnin. Listgáfan ein nægir ekki til þess að skapa lista- verk. Án vinnu og verkgleði get- ur ekkert gerst á því sviði fremur en öðrum. Um það bera vitni ummæli mikilla listamanna hér- lendis og erlendis. Vinna og áhugi er nauðsynlegt hreyfiafl í heimi listanna. En vitrir menn hafa ekki síður lagt áherslu á menntunina í þessu sambandi, það að „læra“ að búa til myndir, „læra“ að þekkja eðli og lífslög- mál myndlistar. Enginn verður góður listamaður nema hann vinni af áhuga og sýni vilja til að menntast. Skólaganga er í því efni góð, en engin höfuðnauð- syn, heldur menntunarhugarfar- ið, viljinn til þess að læra og þroskast. Ég flyt Menningarsamtökum Norðlendinga heillaóskir og þakka öllum, sem hlut áttu að stofnun þeirra, vel unnin störf í því sambandi.“ Að lokinni opnun sýningar- innar hófst málþing eða ráð- stefna í Gagnfræðaskólanum. Jónas Jónasson, deildarstjóri út- Ráðstefnugestir ræddu um skipulag listastarfsins á Norðurlandi. Ungir sem aldnir fjölmenntu á sýninguna sem vakti mikla athygli. varpsins á Norðurlandi, flutti framsöguerindi um fjölmiðla og listir. Ræddi hann einkum um þátt ríkisútvarpsins og sýndi fram á hversu mjög leitast er við að þjóna listum í landinu í ríkis- útvarpinu. Leitaði hann eftir samstarfi við listamenn um allt Norðurland og kvað verulega undir þeim komið hversu vel til tækist að koma listamálefnum á framfæri. Síðan voru umræður um skipulag listastarfseminnar á Norðurlandi. Á laugardagskvöld bauð bæjarstjórn Húsavíkur til kvöld- verðar og þar sáu þingeyskir listamenn um blandaða dagskrá. Á sunnudag var umræðum hald- ið áfram og síðan var aðalfundur Menningarsamtakanna. í stjórn voru kosnir Kristinn G. Jó- hannsson, formaður, Bragi Sig- urjónsson, Þórey Aðalsteins- dóttir, Óli G. Jóhannsson og Atli Guðlaugsson, öll frá Akur- eyri. Var þessi ráðstöfun nokk- uð umdeiid þar sem samtökin spanna allt Norðurland. Mótrök voru þau að stjórnin yrði starf- hæfari með þessu móti. í vara- stjórn voru kosnir fimm, einn frá Akureyri og hinir fjórir úr Þing- eyjarsýslum. Á laugardag og sunnudag var haldin á Húsavík ráðstefna um listir og skipulag listastarf- semi á Norðurlandi í tengslum við aðalfund Menningarsam- taka Norðlendinga. Þá var einnig opnuð á laugardag samsýning á myndverkum norðlenskra listamanna í Safnahúsinu á Húsavík. Sýningin var opnuð með ávörpum Bjarna Aðalgeirs- sonar, bæjarstjóra á Húsavík, og Níelsar Á. Lund, fulltrúa menntamálaráðherra. Tuttugu og sjö listamenn tóku þátt í þess- ari sýningu, sem stendur til næstu helgar. Ingvar Gíslason menntamálaráðherra skrifar eftirfarandi í sýningarskrá: „Eitt af fyrstu verkefnum ný- stofnaðra Menningarsamtaka Norðlendinga er að efna til þess- arar myndlistarsýningar norð- lenskra listamanna á Húsavík. Hér er um mjög víðfeðma þátt- töku listamanna að ræða og ánægjulegt til þess að vita, hversu margir finna yndi sitt í því að skapa listaverk. Auðvitað verður það ávallt svo, að margir 7. september 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.