Dagur - 07.09.1982, Síða 9
StaðaKA
hættuleg
Á Iaugardaginn fór fram síð-
asti fyrstu deildar leikurinn í
knattspyrnu sem leikinn verð-
ur á Akureyri á þessu keppn-
istímabili. Þetta var, eins og
aðrir leikir deildarinnar, einn
af úrslitaleikjunum. Þá leiddu
saman hesta sína KA og Vík-
ingur, eða topp og botn liðið.
Leikir fóru þannig að topplið-
ið sigraði, Víkingar skoruðu
tvö mörk en KA ekkert.
Víkingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti, og áttu strax
hættuleg tækifæri. Peir fengu
aukaspyrnu á 2. mín., rétt utan
vítateigs en skutu rétt framhjá.
Á 3. mín. átti kolrangstæður
Víkingur dauðafæri en skaut í
þverslá. Á 10. mín. fengu Vík-
ingar ennþá dauðafæri en bolt-
inn skoppaði þvert fyrir markið
án þess að þeim tækist að pota í
boltann. Á 27. mín. kom fyrsta
markið.
t>á lék Ragnar Gíslason lag-
lega á Elmar alveg út við enda-
mörk og gaf vel fyrir markið, og
Sverrir Herbertsson skoraði ör-
ugglega.
Á 40. mín. fengu Víkingar
aukaspyrnu og Stefán Halldórs-
son sendi fastan bolta upp að
markinu sem .small í þverslá. Á
síðustu mín. fyrri hálfleiks átti
Ásbjörn hörkuskot úr skyndi-
sókn hjá KA, en skot hans fór
rétt yfir. Eins og fram kemur í
þessari upptalningu voru Vík-
ingar mun betri í fyrri hálfleik og
skot Ásbjörns nánast fyrsta
skotið á Víkingsmarkið.
KA-strákarnir komu hins veg-
ar mun frískari til síðari hálfleiks
og sóttu þeir mun meira en
Víkingar.
Á 4. mín. fengu KA-menn
aukaspyrnu rétt utan vítateigs
en gott skot var auðveldlega var-
ið af markmanni Víkinga. Á 12.
mín. átti Gunnar Gíslason fast-
an skallabolta rétt yfir þverslá
eftir fyrirgjöf frá Eyjólfi. Á 17.
mín. fengu Víkingar gott mark-
tækifæri en kiksuðu í dauðafæri.
Á 30. mín. komu KA-menn
boltanum í netið en dómarinn
taldi að brotið hefði verið á
markmanninum og markið því
ekki gilt.
Á 34. mín. fengu KA-menn
sitt besta marktækifæri og voru
sannarlega óheppnir að skora
ekki. Þá áttú þeir mjög vel út-
færða sókn sem endaði með því
að Elmar renndi boltanum á
Hinrik í dauðafæri fyrir opnu
marki, en hann skaut heldurfast
og boltinn fór í þverslá. Á 36.
mín. varði Þorvaldur mark-
maður hjá KA mjög vel skot frá
Ómari Torfasyni. Síðara markið
kom svo á 40. mín. Þá skoraði
Jóhann Þorvarðarson eftir að
Þorvaldur hafði varið skot frá
Heimi en misst boltann frá sér
og Jóhann fylgdi vel eftir og
skoraði.
Ekki gulltryggðu Víkingar sér
íslandsmeistaratitilinn með
þessum sigri því Vestmannaey-
ingar geta náð þeim að stigum,
ef þeir vinna síðasta Jeikinn og
Víkingar tapa.
KA er nú neðst í deildinni en á
ennþá fræðilegan möguleika á
að tolla í deildinni, ef síðasta
umferðin spilast þeim í hag og
þá verða þeir að vinna Breiða-
blik.
Sigurður
sigraði
Sigurður Ringsted frá Golf-
klúbbi Akureyrar varð sig-
urvegari í opna Volvomótinu
sem fram fór á Sauðárkróki
um helgina, en þá vígðu félag-
ar í Golfklúbbnum þar nýjan 9
holu golfvöll, Hlíðarendavöll.
Sigurður lék 18 holurnar á 84
höggum og var einu höggi betri
en Jón Þór Gunnarsson Golf-
klúbbi Akureyrar. Norður-
landsmeistarinn Kristján
Hjálmarsson frá Húsavík
hreppti þriðja sæti á 86 höggum.
í forgjafarkeppninni urðu
þeir jafnir Halldór Svanbergs-
son frá Ólafsfirði og Baldur
Karlsson frá Húsavík á 74 högg-
um og hafði Halldór heppnina
með sér er varpað var hlutkesti
um hvor skyldi hreppa 1. sætið.
Þriðji varð Stefán Petersen frá
Sauðárkróki á 76 höggum.
Félagar í Golfklúbbi Sauðár-
króks eru á bilinu 35-40 og hafa
þeir unnið mikið starf við þenn-
an nýja völl. Hann er vel á veg
kominn, og nú er fyrirhugað að
ráðast í byggingu 190 fermetra
golfskála á vallarsvæðinu.
Naumt tap hjá
KA-stúlkunum
Um helgina léku stúlkur úr
KA síöari leik sinn við stöllur
sínar úr Víði úr Garði, til úr-
slita um sigur í annarri deild.
Fyrri leikur þessara aðila var
leikinn um síðustu helgi en þá
fengust ekki úrslit.
KA-stelpurnar sóttu ekki gull
í greipar stallna sinna úr Garðin-
um því þær sigruðu með einu
marki gegn engu. Að sögn
Trausta Haraldssonar þjálfara
stúlknanna áttu þær mun meira í
leiknum, en þeim tókst ekki að
skora. Víðisstúlkur skoruðu sitt
mark í fyrri hálfleik og það
dugði þeim til að sigra aðra
deildina og leika í fyrstu deild
næsta keppnistímabil.
í 1. deild orðin
MMM
Steingrúnur Birgisson skorar fyrir KA - en ntarkið var dæmt ógilt.
Ljósm.: KGA.
Þórsarar sóttu
en töpuðu samt
Þór lék sinn næst síðasta leik í
annarri deild á sunnudaginn
en þá sóttu þeir Þróttara
suður, en Þróttur hafði þegar
unnið deildina. Að sögn
Ragnar Þorvaldssonar far-
arstjóra bjá Þór, gekk þeim
illa að skora.
Að frágengnum fyrstu 10
mínútum leiksins sóttum við all-
an leikinn, sagði Ragnar en okk-
ur tókst ekki að skora nema eitt
mark. Þróttarar fengu tvö
hættuleg marktækifæri, og skor-
uðu úr þeim báðum. Þetta tap
hjá Þór gerði það að verkum að
Reynir frá Sandgerði getur náð
Robert
McField
leikur
með Þór
Þórsarar hafa ráðið bandarísk-
an leikmann til að leika með 1.
deildar liði félagsins í körfu-
knattleiknum í vetur. Heitir
kappinn Robert McField og er
1.95 metrar á hæð.
McField er blökkumaður og
leikur stöðu bakvarðar. Hann
mun einnig sjá um þjálfun 1.
deildarliðs Þórs og að auki sjá um
yngri flokka deildarinnar. Robert
McFiels hefur leikið með nokkr-
um góðum liðum, og má í því
sambandi nefna háskólaliðið
Indiana State sem er í fremstu röð
háskólaliða í Bandaríkjunum.
þeim að stigum með því að vinna
síðasta leikinn og þá verður Þór
að tapa. Þór leikur síðasta leik-
inn á laugardag gegn Skalla-
grími sem berst í fallbaráttu.
Björn Axelsson varð sigur-
vegari í 36 holu unglingamóti í
golfí sem fram fór hjá Golf-
klúbbi Akureyara um helg-
ina. Björn lék á 166 höggum
og var tveimur höggum betri
en Olafur Þorbergsson sem
hafði leitt eftir fyrri dag
keppninnar. í þriðja sæti var
svo Ólafur Gylfason á 177
höggum.
í forgjafakeppninni sigraði
Ólafur Þorbergsson ' á 136
höggum, Björn Axelsson varð í
öðru sæti á 142 höggum og Ólaf-
urGylfasonþriðji á 146 höggum.
Það voru Borgarsalan og
Trésmíðavinnustofan Þór hf.
sem gáfu verðlaun til keppninn-
ar. Auk þess gáfu Híbýli hf.,
Sporthúsið, Tak hf. og Ferða-
Við munum ekkert gefa eftir í
þeim leik sagði Ragnar því jafn-
vel þótt okkar markahlutfall sé
mun betra en Reynis verðum við
að ná stigi í þessum leik.
skrifstofa Akureyrar vegleg
aukaverðlaun og hlutu þau
þessir:
Kristján Gylfason fyrir að
vera næstur holu á 4. braut fyrri
daginn, Ólafur Sæmundsson
fyrir að vera næstur holu á 14.
braut fyrri dag og hann hlaut
einnig verðlaun fyrir besta 9
holu hring með forgjöf fyrri
daginn. Kristján Gylfason fékk
verðlaun fyrir fæst pútt síðari
daginn, Ólafur Gylfason fyrir
lengsta upphafshögg á 9. braut
síðari daginn, Ólafur Sæmunds-
son hlaut verðlaun fyrir að vera
næstur holu á 11. braut síðari
daginn, Björn Axelsson fyrir
bestu 9 holur án forgjafar
síðari daginn og Olafur
Sæmundsson að vera næstur
holu á 18 braut.
Bjorn var
bestur
af ung-
lingunum
7. september 1982 - DAGUR - 9