Dagur - 07.09.1982, Blaðsíða 12
RAFGEYMAR
í BlLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Kartöf I u u ppskera
varla í meðallagi
„Það má heita að kartöflugras
sé allsstaðar fallið á þessu
svæði,“ sagði Sveinberg Laxdal
bóndi í Túnsbergi í Eyjafiröi er
Dagur ræddi við hann, en
Sveinberg er formaður félags
kartöflubænda við Eyjafjörð,
„Það eru sennilega ekki nema
örfáir blettir sem hafa staðið af
sér þessi ágústfrost, en til
marks um þau má nefna að á
Mööru völlum í Hörgárdal var 9
stiga frost við jörðu aðfaranótt
29. ágúst.“
„Þegar grasið fellur svona hætt-
ir vöxtur nánast alveg. Ef stöng-
ullinn fellur ekki alveg sprettur
eitthvað lítillega í viku til 10 daga
eftir það, en ef öll blöð falla og
stöngullinn einnig þá stöðvast
vöxturinn alveg. Okkur fannst
þetta koma 10-15 dögum of
snemma varðandi sprettuna og
menn ætla að hún verði í lakara
meðallagi."
- Eru menn þá ekki að gera sig
klára til að fara að taka
upp'
„Ég held að það séu allir að
gera sig klára til að hefja það að
taka upp og margir hafa sennilega
byrjað um helgina. Það er ekki
eftir neinu að bíða með það, og
þegar við bætist að menn kvekkt-
ust illa í fyrra þá vinda menn sér
bara í það að ná þessu úr jörðinni.
Ég reikna með því að menn verði
búnir að taka upp um 20. septem-
ber ef tíð verður skapleg."
Eins og menn muna fóru kart-
öflubændur við Eyjafjörð mjög
illa út úr síðasta hausti, frosthörk-
ur og snjókoma urðu til þess að
margir bændur náðu litlum hluta
uppskerunnar úr jörðu. Við
spurðum Svanberg hvað hafi orð-
ið úr bótum eða aðstoð til þessara
bænda.
„Við fengum lán í maí til fimm
ára úr bjargráðasjóði með 28%
vöxtum og þurfum að borga af
þessum lánum strax næsta vor.
Menn fengu misjafnlega mikla
aðstoð, það var tekið mið af því
hvort menn höfðu mikinn annan
búskap eða hvort kartöfluræktin
var stór hluti heildarbúskapsins.
Annars var gengið út frá því að
bændur fengju lán sem svaraði til
70-80% af því tjóni sem þeir urðu
fyrir.“
„Alla-
ballar“
fengu
fund
„Þingmenn Alþýðubandalags-
ins sem komu hingað fengu það
í gegn að fá að halda hér kaffi-
stofufund með starfsfólkinu, en
það hefur hingað til ekki verið
leyft,“ sagði Örn Ingvarsson
formaður starfsmannafélags
Útgerðarfélags Akureyringa í
samtali við Dag.
„Þetta verður til þess að tals-
mönnum hinna pólitísku flokk-
anna verður gefinn kostur á að
halda hér einn slíkan fund. Ann-
ars er stjórn starfsmannafélagsins
á móti þessum fundarhöldum, og
nú stendur yfir könnun meðal
starfsfólksins á því hvort þeirri
venju aö leyfa ekki þessa fundi
verður framhaldið," sagöi Örn.
Verslunarmiðstöðin í Glerárþorpi:
Fjöldi verslana
á einum stað
Sólbakur liggur nú við Torfunefs-
bryggjuna, vandlega bundinn, og
mun ekki sigla fleiri ferðir eftir
þeim gula. Honum hefur nú verið
iagt eftir áralanga dygga þjónustu.
Ljósm.: KGA.
til húsa:
KEA mun verða þar með al-
menna dagvöruverslun, þarna
verður blóma- og gjafavöruversl-
un, sportvöuverslun, verslun
með dömufatnað, hljómtækja-
verslun, vefnaðarvöruverslun og
rekstur saumastofu, verslun með
bækur og ritföng, Búnaðarbank-
inn verður með útibú, þarna verð-
ur bókhalds- og endurskoðun-
arskrifstofa, barnafataverslun,
kaffistofa, skrifstofuvélaverk-
stæði og verslun með skrifstofu-
vélar, Ijósmyndavörur og skyldar
vörur, og loks má geta um skó-
verslun.
Þá verður í verslunarmiðstöð-
inni skrifstofuhúsnæði, KFUM
verður þarna með félagsaðstöðu
og fleiri fyrirtæki munu verða
þarna með rekstur sinn.
Eins og fram hefur komið í
Degi styttist nú í það að versl-
unarmiðstöðin í Glerárþorpi
verði tekin í notkun, en stefnt
er að því að starfsemi hefjist
þar seint í haust.
Ekki er endanlega vitað hvaða
verslanir verða í hinni miklu og
glæsitegu verslunarmiðstöð, en
samkvæmt þeim upplýsingum
sem við höfum aflað okkur er víst
að eftirtaldar verslanir verða þar
VerslunarmiAstödin í Glerárþorpi.
# Erfittaðfá
upplýsingar
Nú eru réttir að hefjast, og víst
er að marga sem búa í þéttbýli
fýsir að eyða eins og einni
dagstund { fjörugum réttum
einhversstaðar. Þess vegna
hafa fjölmiðlar jafnan reyntað
koma þeim upplýsingum á
framfæri hvar réttir eru hverju
sinni. Við á Degi hugðumst
komast yfir upplýsingar um
réttardaga á Norðurlandi, en
það hefur reynst erfiðara en
að segja það. Einu upplýsing-
arnar sem legið hafa á lausu
til þessa fengum við hjá Bún-
aðarfélagi íslands, en þeirra
vitneskja náði ekki yfir nema
helstu réttir i Húnavatnssýslu
og í Skagafirði en aðeins ein-
ar réttir í Eyjafirði. Þeir sem
vita eitthvað meira um réttar-
daga mættu að skaðlausu
setja sig í samband við rit-
stjórn blaðsins.
# Aðflug
úr suðri
Nú styttist óðum í það að tæki
sem auðvelda aðflug úr suðri
að Akureyrarfiugvelli verði
tekin í notkun, en uppsetning
þeirra stendur nú yfir. Með til-
komu þessara tækja styttist
flugtími til Akureyrar um
a.m.k. fimm mínútur í flestum
tilfellum, og einnig gera tækin
það að verkum að mun oftar
verður hægt að fljúga en áður,
þótt lágskýjað sé og dimmt
yfir. Þegar svo malbikið verð-
ur komið á lengingu flug-
Dalvík:
Síldin
að
koma
Hér á Dalvík eru menn byrjaðir
að huga að sfldarverkun. Einn
Dalvíkurbátur, Vinur EA 80
landaði í síðustu viku 47 tunn-
um af sfld á Ólafsfirði til beitu-
frystingar og önnur trilla hefur
einnig fengið nokkrar tunnur.
Á síðasta ári var saitað á vegum
Söltunarfélags Dalvíkur í 2600
tunnur, en söltunarfélagið byrjaði
aftur síldarsöltun fyrir tveimur
árum, fyrstir á Norðurlandi. í ár
hugsa söltunarfélagsmenn gott til
glóðarinnar og ætla sér stærri hlut
í ár en í fyrra að sögn Jóhanns
Antonssonar framkvæmdastjóra.
Sú síld sem þegar hefur veiðst
er mjög blönduð. Hluti hennar
hefur nægjanlegt fitumagn til sölt-
unar en þó ekki það mikið að leyfi
hafi fengist. Fitustig síldarinnar
þarf að vera ofan við 12-14% eftir
verkunaraðferðum. Fyrirfram-
sala á saltaðri síld gefur góðar
vonir um markaðshorfur að sögn
Jóhanns. Varðandi síldarfryst-
ingu er ekki vitað um magn og
verð samkvæmt upplýsingum frá
sjávarafurðadeild Sambandsins.
Áð lokum má geta þess að í fyrra
voru 15 bátar og trillur á síld héð-
an og í ár virðist áhuginn jafnvel
vera meiri.
A.G.
brautarinnar er loksins óhætt
að segja að flugvöllurinn á
Akureyri sé kominn í tölu al-
vöruflugvalla.
# Ermönnum
mismunað?
í haust hefur verið um það
skrifað að atvinnuleysi væri
talsvert á meðal vörubffreiða-
stjóra á Akureyri, og munu
víst sumir vera farnir að huga
að því að selja bíla sína af
þeim sökum. En mitt ( þess-
um skrifum hefur heyrst einn
hlutur sem menn eru víst við-
kvæmir fyrir að ræða, og það
er að sumir bílstjóranna hafi
stanslausa vinnu á meðan
aðrir fá einn og einn túr með
tveggja til þriggja daga milli-
bili. Mun víst vera mikill kurr í
mörgum bílstjóranna út af
þessu.
# Góðframmi-
staða
Það er full ástæða til þess að
þakka íþróttafréttamönnum
útvarpsins fyrir frammistöðu
þeirra sl. laugardag. Þá voru
þeir með beinar lýsingar frá
tveimur leikjum í 1. deild, og
fiuttu einnig af og til nýjar
fréttir frá tveimur öðrum leikj-
um. Stóðu íþróttafréttamenn-
irnir Hermann og Samúel sig
með mikillí prýði, og svo kom
sjónvarpið á eftir með leik
sem ekki var einu sinni yfir-
staðinn er sýning hófst á fyrri
hálfleiknum. Gott framtak hjá
Hemma, Samma og Bjarna
Fel. og vonandi verður fram-
hald á.