Dagur - 09.09.1982, Blaðsíða 1
GULLKEÐJUR
8 K. OG 14 K.
ALLAR LENGDIR
VERÐ FRÁ
KR. 234.00
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 9. september 1982
98. tölublað
Mikill áhugi eyfirskra
bænda á nytjaskógrækt
— 38 bændur vilja leggja fram samtals 900 ha lands
Ðorun
að hefjast
í Flatey
Upp úr hádegi í gær fór Drang-
ur frá Akureyri og var áfanga-
staður frekar óvenjulegur, því
hann var á leið til Flateyjar á
Skjálfanda.
Flutningur Drangs til Flateyjar
var bor frá Orkustofnun og ýmiss
annar búnaður, en þar eru nú að
hefjast setlagarannsóknir sem
sumir ætla að geti orðið upphaf
olíuævintýris, en flestir telja þó að
muni ekki verða. En líf mun fær-
ast í Flatey á næstunni, hver svo
sem niðurstaða setlagarannsókn-
anna verður.
Mjög harður árekstur tveggja
fólksbfla varð á gatnamótum
Þórunnarstrætis og Hrafna-
gilsstrætis í fyrradag.
Annarri bifreiðinni var ekið
vestur Hrafnagilsstræti sem er
aðalbraut, en hinni bifreiðinni
suður Þórunnarstræti. Á gatna-
mótunum skullu bifreiðarnar
saman, og kastaðist önnur þeirra
yfir gangstétt og á hús sem er
þarna á horninu.
Fjórir voru fluttir á sjúkrahús,
en meiðsli þeirra reyndust ekki
vera alvarleg þótt furðulegt megi
teljast. Báðar bifreiðarnar eru
mikið skemmdar.____________
Sinfónían
á hringferð
um landið
í gær hófst hringferð Sinfóníu-
hljómsveitar íslands um landið
með tónleikum á Blönduósi.
Stjórnandi hljómsveitarinnar í
ferðinni er Páll P. Pálsson en
einsöngvari verður Kristján
Jóhannsson, sem kemur gagn-
gert frá Ítalíu til að taka þátt í
söngferðinni.
Samtals verða um 60 manns í
för. Efnisskráin verður blönduð
og reynt að höfða til sem flestra.
Að loknum tónleikunum á
Blönduósi verða tónleikar á
Sauðárkróki í dag síðan á Siglu-
firði á morgun, Ólafsfirði á laug-
ardag, Akureyri á sunnudag og
Húsavík og Skjólbrekku á mánu-
dag.
Miðaverð á tónleika Sinfóníu-
hljómsveitarinnar er 120 krónur.
Bændur við Eyjafjörð hafa sýnt
nytjaskógrækt mikinn áhuga.
Þannig hafa 38 bændur boðið
fram iand til skógræktar, sam-
tals tæplega 900 hektara. Þegar
er búið að girða rösklega 100
hektara þessa lands og talið er
að um 300 hektarar séu gott
skógræktarland, að sögn Odds
Gunnarssonar, formanns
Skógræktrarfélags Eyfirðinga.
Upphaf þessa máls var það að á
aðalfundi skógræktarfélagsins í
Á uppleið.
fyrra var samþykkt að kanna
áhuga bænda við Eyjafjörð á
skógrækt.
Þetta var kynnt í frétta-
bréfi Búnaðarsambands Eyja-
fjarðar og svör bárust frá 38
bændum, eins og áður sagði. Por-
bergur Hjalti Jónsson, sem er við
nám í skógræktarfræðum, var síð-
an fenginn til að gera könnun á
þessum landspildum í sumar og
var hún síðan kynnt á aðalfundi
Skógræktarfélags íslands, sem
haldinn var á Akureyri nýlega.
í könnuninni er lagt til grund-
vallar að ræktaður verði nytja-
skógur til framleiðslu á borðviði
úr lerki og stafafuru. Miðað er við
að trén geti náð 10-12 metra hæð
á 30-40 árum.
Oddur sagði að
lauslegar áætlanir gerðu ráð fyrir
að kostnaðurinn við girðingar,
plöntur, og plöntun væri um 1
milljón króná á ári í 10 ár miðað
við þessa 300 hektara sem best
væru fallnir til skógræktar. Þeir
staðir eru í Saurbæjar,- Hrafna-
Mynd KGÁ
gils,- Öngulstaða,- Arnarness- og
Skriðuhreppi.
Enn hefur ekki verið rætt að
ráði hvernig mætti fjármagna
þetta verkefni. Talað hefur verið
um að bændur legðu fram landið,
sem í mörgum tilfellum nýtist
ekki til annarrar ræktunar, og
jafnvel girðingar, en fengju síðan
plönturnar og plöntunina. Oddur
sagði að erlendis væru svona verk-
efni víðast hvar fjármögnuð af op-
inberum aðilum. Unnið verður að
þessu máli í vetur.
Jarðborinn Narfi:
Enginn
árangur í
Ólafsfirði
Jarðborinn Narfí hefur verið í
Ólafsfírði undanfarnar vikur og
borað þar rétt hjá þeirri holu
sem bærinn fær aðallega heitt
vatn úr.
Sú hola er 1160 metra djúp, en
núna hefur verið boruð 1200
metra hola. Hefur þessi borun
gengið fremur illa, og árangur er
ekki góður. Áætlað er að fara
niður á 1500 metra dýpi, en menn
í Ólafsfirðl eru ekki bjartsýnir á
að þessi hola muni gefa árangur.
I Ólafsfirði hefur að undan-
förnu verið unnið við lengingu
flugbrautarinnar. Er áformað að
lengja hana um 300 metra til
suðurs. Það fer eftir því hvernig
gengur að fjármagna þessar fram-
kvæmdir hvenær þeim lýkur, en
eftir lenginguna verður flug-
brautin rúmlega 1000 metrar á
lengd.
Vörubílstjórar á Akureyri:
Farnir að huga að
því að selja bílana
„Ástandið hefur lagast lítillega
síðustu dagana. T.d. voru fímm
bflar frá okkur að keyra fyrir
Dalvíkinga ■ síðustu viki og var
hún sæmileg. í heildina hefur
sumarið verið ferlega lélegt og
sáralítið að gera, eins og reynd-
ar hefur komið fram hjá ykkur
áður. Ætli megi ekki segja að
bflarnir hafí haft verkefni
þriðja hvern dag, þegar yfir
heildina er litið,“ sagði Stefán
Árnason hjá Bifreiðastöðinni
Stefni í viðtali við Dag.
„Annars hefur þetta verið svo-
lítið mismunandi, því segja má að
allir kranabílarnir á stöðinni hafi
haft nær stanslausa vinnu í sumar.
Það sem við erum fyrst og fremst
óánægðir með er skipting opin-
bers fjár til ■ vegaframkvæmd^.
Nóg virðist vera að gera fyrir
vörubíla bæði fyrir vestan okktir
og austan og þar eru þeir jafnvel í
vandræðum hvernig þeir eiga að
eyða peningunum, en hér
nánast ekki neitt.
er
Horfurnar í vetur eru bágborn-
ar og.það þarf að koma eitthvað
■ sérstakt' til ef ekki á að koma til
meiri varidræða. Ég reikna með
að nokkur hópur bílstjóra hætti
þessu og þegar er komið svolítið
los á menn. Menn eru þegar farnir
að huga að því að selja bíla sína,“
sagði Stefán Árnason að lokum.