Dagur - 09.09.1982, Page 3
I
Blómasýning
á Akureyri
Blómamiðstöðin hf. sem hefur
aðsetur í Reykjavík hefur
ákveðið að gangast fyrir blóma-
sýningu á Akureyri dagana
17.-19. september til kynning-
ar á framleiðslu blómabænda.
Blómamiðstöðin er í eigu
blómabænda en fyrirtækið dreifir
og selur blóm til verslana um allt
land. Hefur verið lögð rík áhersla
á að þjóna landsbyggðinni hvað
þetta snertir. Framleiðsla blóma-
bænda Blómamiðstöðvarinnar er
fjölbreytileg, bæði hvað varðar
afskorin blóm og pottaplöntur.
Til sýningarhaldsins hafa
bæjaryfirvöld Akureyrar góðfús-
lega veitt Blómamiðstöðinni af-
not af húsnæði í salarkynnum
innan anddyris hinnar nýju og
glæsilegu Svæðisíþróttahallar við
Þórunnarstræti. Sömuleiðis mun
Opið í
hádeginu.
Passamyndir.
Tilbúnar strax.
nonðun
mynol
LJÓSMVN DASTOFA
Sfmi 96-22807
Glerðrgötu 20
Pósthólf 464
602 Akureyri
mmmmmmm—^
Þar sem töluvert hef-
ur borið á því að Dag-
ur komist ekki til skila
vegna illa merktra
póstkassa eru áskrif-
endur beðnir að
ganga úr skugga um
að merkingar á póst-
kössum þeirra séu
með þeim hætti að
ekki sé hætta á rugl-
ingi.
IME
Bílasala
Bílaskipti.
Stór og bjartur
sýningasalur.
Bílasalan Ós,
Akureyri sími 21430.
É
Bílbeltín
hafa bjargað
Allar
tryggingar!
umboðið hf.
Radhustorgi 1 (2. hæð),
simi 21844, Akureyri.
garðyrkjustjóri Akureyrar og
hans stafslið veita aðstoð við
undirbúning sýningainnar.
Vakin skal athygli á að hér
verður um að ræða fyrstu sýningu
á inniblómaframleiðslu garð-
yrkjubæna sem haldin er á
Norðurlandi. Þótti Akureyrarbær
sjálfkjörinn í þessu skyni, enda
hefur ræktunarmenning verið
hvað lengst þar við lýði og til fyrir-
myndar. Blómamiðstöðin væntir
þess að bæði Akureyringar og
íbúar nágrannabyggðanna kunni
að meta þetta framtak blóma-
bænda og fjölmenni á sýninguna
til að sjá og kyrmast þeim gróðri
sem er ómissandi liður í allri hí-
býlaprýði.
Blómasýningin í íþróttahöll-
inni verður opin almenningi frá
kl. 15-22 á föstudag 17. sept. og
frá kl. 10-22 laugardainn 18. sept.
og sunnudag 19. sept.
Leðurjakkar
með vetrarfóðri.
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 15. september nk. kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Freyr Ófeigsson og Valgerður
Bjarnadóttir til viðtals í fundarstofu bæjarráðs,
Geislagötu 9,2. hæð.
Bæjarstjóri.
Skrifborðin komin aftur
Skrifborðsstólar
í ýmsum litum.
Möppur
Pappaskúffur
Korktöflur
Blaðapokar
Rusladallar
KOMPAN
SKIPAGÖTU 2 AKUREYRI
9. september 1982 - DAGUR - 3